Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar


Listen Later

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


- Allt í einu stóð ég ein:

„Ég var tólf ára þegar ég fékk alvarlegt áfall. Stundum velti ég fyrir mér hvort um hafi verið að ræða það sem í daglegu tali er kallað taugaáfall. Fram að þessum degi var ég glaður krakki, fullur trausts á mannfólkið. Eftir þetta fylltist ég tortryggni og ótta og það tók mig mörg ár að finna sjálfa mig aftur.


- Engin sorg:

„Fyrr á þessu ári skildi dóttir mín við mann sinn. Fljótlega kom í ljós að hann var kominn með aðra konu og samband þeirra hafði staðið yfir í fjóra mánuði þegar hann ákvað að yfirgefa eiginkonu sína og börn. Sú ákvað að fara aftur til eiginmanns síns og nú hefur fyrrverandi tengdasonur minn búið með fjórum konum og virðist skipta þeim út jafnauðveldlega og tilfinningalaust og aðrir myndu skipta um sokka.“


- Ég var látin gjalda systur minnar:

„Fyrir nokkrum árum vann ég hjá litlu einkafyrirtæki. Starfið var mjög skemmtilegt og eigandinn hvatti starfsfólk sitt til að sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum. Mér leið mjög vel í þessu umhverfi og blómstraði. Svo var fyrirtækið selt og allt breyttist.“


- Ég öðlaðist nýtt líf:

„Sólin skein en mér fannst hún ekki skína fyrir mig. Þótt ég væri búin að vera edrú í bráðum átta mánuði fannst mér enn jafnerfitt að fara fram úr á morgnana og horfast í augu við daginn. Þessi dagur var verri en allir aðrir fram að þessu því ég var komin heim og átti í fyrsta skipti að mæta á AA fund í kirkjunni þar sem ég fermdist um kvöldið. Tilhugsunin var bókstaflega skelfileg.“


- Systir mín hatar barnsföður sinn:

„Gunna systir hefur alltaf verið sérstök og getur verið einstaklega þrjósk og þver og langrækin. Fyrir rúmum tuttugu árum kynntist hún Lárusi, eða Lalla, eins og hann er alltaf kallaður. Þau voru saman í nokkra mánuði og þrátt fyrir andstöðu foreldra okkar og okkar systkinanna, virtist ást hennar bara aukast, ef eitthvað var. Lalli drakk nefnilega mjög mikið sem gerði okkur hrædd um Gunnu. Annars upplifði ég Lalla sem góðmenni, mann sem gerði ekki flugu mein. Hann varð aldrei illur með víni, bara enn ljúfari en drepleiðinlegur eins og allir þeir sem fá sér of mikið neðan í því.“


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Lífsreynslusögur VikunnarBy Birtingur Utgafufelag

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

1 ratings


More shows like Lífsreynslusögur Vikunnar

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

118 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

27 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

37 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

2 Listeners

Mystík by Ghost Network®

Mystík

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners