Mannlegi þátturinn

Líknardeildin 25 ára, vinkill og Heiðar Ingi lesandinn


Listen Later

Líknarmeðferð er hugtak sem margir tengja við yfirvofandi lífslok einstaklinga með illkynja sjúkdóma, þegar „ekkert er lengur hægt að gera“. Staðreyndin er að líknarmeðferð er mun meira en meðferð við lok lífs og margt hægt að gera til að bæta líðan og efla lífsgæði. Líknardeildin í Kópavogi sinnir einstaklingum 18 ára og eldri og fjölskyldum þeirra og þar starfar þverfaglegur hópur starfsfólks, meðal annars læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfi, sálfræðingur, prestur og sérhæft starfsfólk. Líknardeild Landspítala í Kópavogi átti 25 ára afmæli í síðustu viku og þær komu í þáttinn Ólöf Ásdís Ólafsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á líknardeildinni og Arna Dögg Einarsdóttir yfirlæknir og sögðu okkur frá deildinni.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og í dag fjallaði vinkillinn um vorkomuna og örnefnið Fagridalur fékk svolitla umfjöllun, ekki síst sá á Reykjanesskaga. Höfundur kvæðisins um Tuma sem fór á fætur við fyrsta hanagal og fleiri góðra, Freysteinn Gunnarsson, var fæddur og alinn upp í Flóanum; við heyrðum örlítið af uppvexti hans en héldum næst austur yfir Þjórsá og heimsóttum Bergstein Kristjánsson, samtíðarmann hans og þjóðháttasafnara, fengum eina þjóðsögu frá Jóni Þorkelssyni og enduðum á bjartsýni í lok vinkilsins.
Og svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags bókaútgefenda. Á morgun er alþjóðlegur dagur bókarinnar, og af því tilefni sagði hann okkur frá félaginu og bókaútgáfu á Íslandi. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Heiðar Ingi talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur.
Gegnumtrekkur e. Einar Lövdahl.
Sápufuglinn e. María Elísabetu Bragadóttur.
Haugalygi e. Sigtrygg Baldursson
Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdahl.
og svo um höfundana Indriða Úlfsson, Diddu, Hallgrím Helgason, Tryggva Emilsson og Pedro Gunnlaug Garcia.
Tónlist í þættinum
Á sjó / Þorvaldur Halldórsson og hljómsveit Ingimars Eydal (erl.lag, texti Ólafur Ragnarsson)
Cabayo / Les Baxter
Perfect Day / Lou Reed (Lou Reed)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners