Mannlegi þátturinn

Listmeðferðarfræði, Vatnajökulsvinkill og Pedro Gunnlaugur lesandinn


Listen Later

Kerfisbundin, markviss rannsókn á samanburði á áhrifum teikningar og skrifaðra orða á minni var framkvæmd í fyrsta sinn, eftir því sem best er vitað, í heiminum árið 2000 og stóð Unnur Óttarsdóttir, doktor í Listmeðferðarfræði, fyrir henni. Í stuttu máli voru niðurstöður þær að níu vikum seinna mundu börnin að jafnaði fimm sinnum fleiri teikningar en orð sem þau höfðu skrifað. Þetta kallast minnisteikning. Nú í maí hélt Unnur námskeið á Ítaliu fyrir listmeðferðarfræðinga sem starfa í skólum. Málefnin sem voru þar á dagskrá voru til dæmis minnisteikning, skrifmyndir, mikilvægi listrænnar tjáningar í námi og einnig var henni boðið að flytja fyrirlestur þar. Unnur kom í þáttinn í dag.
Eins og flesta mánudaga fengum við svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn að sjálfum Vatnajökli.
Svo er það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Pedro Gunnlaugur Garcia rithöfundur. Hann skaust fram á sjónvarsviðið með fyrstu bók sinni Málleysingjarnir árið 2019 og hlaut svo íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir sína aðra bók, Lungu, sem kom út í fyrra. Við fengum að vita hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pedro Gunnlaugur nefndi eftirfarandi bækur:
Jerúsalem e. Goncalo M. Tavares
Læknir verður til e. Henrik Geir Garcia
Sápufuglinn e. Maríu Elísabetu Bragadóttur
Obbuló í Kósímó - Snyrtistofan e. Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Halldór Baldursson
Hamskiptin e. Franz Kafka
The Sound and the Fury e. William Faulkner
Tónlist í þættinum í dag:
Guð og ég / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Kormákur Bragason)
Vesturgata / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Haukur Símonarson)
The list / Gordon Lightfood (Gordon Lightfood)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners