Leikritið Lóaboratoríum verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Leikritið er eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og fjallar um fjórar mis-starfhæfar konur í tveimur íbúðum sem þurfa að þola hverja aðra í ótilgreindan tíma. Leikritið er samið fyrir og í samstarfi við leikhópinn Sokkabandið. Eins og segir í kynningartexta verður leitast við að afbyggja staðalímynd kvenna á grátbroslegan og hjartnæman hátt og er verkið byggt á samnefndum teiknimyndasögum sem Lóa Hlín hefur gefið út er þetta er fyrsta leikverk hennar. Lóa Hlín var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag.
Félag Íslenskra Söngkennar( FÍS) kynnir Úrslitakvöld Vox Domini en það er söngkeppni ætluð söngnemendum sem stundað hafa nám í íslenskum tónlistarskólum. Vox Domini var haldin í fyrsta sinn í janúar 2017 og fór þátttaka fram úr björtustu vonum. Rödd ársins 2017 var Marta Kristín Friðriksdóttir sem stundar nú framhaldsnám í Vínarborg. Þau Egill Árni Pálsson, tenórsöngvari og Margrét Eir Hönnudóttir söngkona komu í þáttinn og sögðu okkur meira af þessari söngkeppni sem greinilega er komin til að vera.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir var hjá okkur í dag með matarspjallið sitt. Í þetta sinn fræddi hún okkur um matarvenjur Loðvíks 14. frakkakonungs, sem hafði til dæmis alltaf áhorfendur þegar hann borðaði.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson