Mannlegi þátturinn

Lyfjamisnotkun, póstkort frá París og sorgartengd streita


Listen Later

Á morgun stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir málþingi um forvarnir í lyfjamálum þar sem meðal annars verður fjallað um mikilvægi þess að stuðla að lyfjalausu og heilbrigðu umhverfi í líkamsrækt., tengsl milli notkunar á fæðubótarefnum og lyfjamisnotkunar og Fredrik Lauritzen, forstöðumaður forvarna- og lýðheilsumála hjá Anti-Doping Norway, mun sýna dæmi um forvarnaráætlanir í Noregi. Davíð Rúrik Ólafsson, formaður Lyfjaráðs ÍSÍ kom í þáttinn í dag.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í París í dag. Í þessu póstkorti sagði hann frá vorkomunni í París, páskahaldinu og ferð á fínan veitingastað. Hann sagði líka frá miklum átökum á vinnumarkaði sem eru hafin, þar sem takast á stálin stinn; Macron forseti og frönsku verkalýðsfélögin. Í lokin sagði Magnús svo frá komandi réttarhöldum yfir Nicolas Sarkozy fyrrum forseta Frakklands en hann verður dreginn fyrir rétt vegna meintrar spillingar og mútuþægni.
Í kvöld flytur Margrét Grímsdóttir erindi sem hún nefnir „Sorgartengd streita. Orsakir, einkenni og leiðir að betri líðan" í safnaðarheimili Háteigskirkju. Margrét hefur áralanga þekkingu og reynslu af fræðslu og meðferð einstaklinga með streitu og kulnun í lífi og starfi, og stýrir streitumeðferð á Heilsustofnun. Við heyrðum í henni í þættinum.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners