Málþing um transfólk, heilbrigði og réttlæti var haldið síðastliðinn föstudaginn í tilefni þess að Samtökin 78 fagna í ár 40 ára afmæli sínu en málþingið var haldið í samstarfi við RIKK. Svandís Anna Sigurðardóttir, kynjafræðingur, sem hélt erindi um upplifun transfólks af transtengdri heilbrigðisþjónustu á Íslandi, var gestur þáttarins í dag.
Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fór í heimsókn í Grunnskólann á Hólmavík og hitti skólastjórann Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur og nemendur sem sögðu frá margvíslegum verkefnum sem þau fást við í skólanum.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson