Mannlegi þátturinn

Marta leikhússtjóri LA og Trausti Valsson og Plan B


Listen Later

Fimmtudagar í Mannlega þættinum í september eru helgaðir sviðslistum. Í dag tengdumst við hljóðveri RÚV á Akureyri, þar var Marta Nordal leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Við fengum að vita hvernig ástandið í kófinu hefur farið með leikhúslífið fyrir norðan og forvitnuðumst um dagskrá vetrarins sem er rétt nýhafinn.
Svo fengum við Trausta Valsson, prófessor emiritus í skipulagi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, í þáttinn. Hann skrifaði bók fyrir 15 árum sem heitir How the World will Change... With Global Warming. Þessi bók var líklega fyrsta bókin í heiminum sem lýsir, með aðferðum skipulagsfræði, hvernig hnattræn mynstur byggða og kerfa mun breytast ef ekki tekst að stöðva hlýnunina. Og í bókinni dró hann upp það sem hann kallaði Plan B. Sem sagt hvað væri hægt að gera ef jarðarbúar myndu ekki ná markmiðum sínum í að halda hlýnun jarðar niðri. Nú 15 árum síðar ætlar hann að halda fyrirlestur um málið, kl. 12 á morgun, föstudag, í Þjóðminjasafninu, þar sem hann fer yfir stöðuna og skoðar þetta Plan B, miðað við stöðu mála í dag. Við fengum Trausta til að segja okkur betur frá þessu í þættinum. Þess má geta að fyrirlestrinum verður streymt á netinu, ef fólk leitar að Trausta Valssyni á facebook verður hægt að sjá hlekk sem hægt verður að smella á til að annað hvort horfa á í beinni útsendingu, eða að horfa á upptökuna.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners