MANNLEGI ÞÁTTURINN 28.september
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Margrét Blöndal
Matarspjall Sigurlaugar Margrétar er að þessu sinni um matarmyndir fyrr og nú. Við könnust eflaust flest við að hafa birt myndir af dásamlegum mat, af veitingastöðum og úr okkar eigin pottum og pönnum. Bara girnilegur kaffibolli verður oft tilefni til myndbirtingar en þetta er ekki nýtt, þeas það er ekki tilkomið með samfélagsmiðlum að birta myndir af mat. Hvar annars staðar en í Flórens á 14 öld byrjuðu menn að mála myndir af mat? Sigurlaug leiðir okkur í allan sannleik um þetta hér á eftir.
Á morgun opnar Norræna húsið glæsilega gagnvirka sýningu fyrir börn um barnabækur og furðuheim þeirra. Sýningin ber heitið Barnabókaflóðið og byggist á virkri þátttöku gesta. Börnin fá að taka þátt í að skapa sínar eigin sögu og sögupersónur, geta mátað sig í mismunandi hlutverkum með grímugerð og búningum, siglt víkingaskipi og skoða kort af raunverulegum og ímynduðum stöðum úr barnabókum. Heyrum meira um þetta hér á eftir.
.. og svo er það föstudagsgesturinn okkar - Eiríkur G. Stephensen - ný ráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar - og hálfur hundur í óskilum