Síðastliðið haust lét Umhverfisstofnun endurtaka könnun á viðhorfi Íslendinga til matarsóunar. Fimm spurningar voru endurteknar úr fyrri könnun frá haustinu 2015 og einni spurningu bætt við. Spurt var hve mikið fólk reyni að lágmarka magn matar og drykkjar sem hent er á heimilinu. Niðurstöður sýna að meirihluti fólks reynir að lágmarka matar- og drykkjarsóun eða um 75%. Samanburður við niðurstöður frá 2015 sýnir að staðan hefur lítið breyst. Við fengum Ingunni Gunnarsdóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun til að fara yfir niðurstöðurnar.
Magnús R. Einarsson sendi okkur póstkort frá París í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá óvenjulegu veðurfari í borginni, en í París hafa sólarstundir í vetur verið aðeins brot af því sem venjulega er. Það er líka sagt frá flóðinu í Signu sem flæðir yfir bakka sína og er að valda tjóni. Að lokum sagði Magnús frá fyrirhugaðri en umdeildri lækkun á hámarkshraða á þjóðvegum Frakklands.
Gimsteinar hafa heillað mannkynið frá örófi alda. Heimur gimsteinanna er spennandi, sveipaður dulúð og ævintýraljóma. Við kynnumst demöntum, rúbínum, safír, emeröldum og fleiri tegundum gimsteina í þættinum í dag. Farið verður yfir öll mikilvægustu atriðin í viðskiptum með gimsteina, sem og uppruna þeirra. Er það góð fjárfesting að kaupa gimstein og er óhætt að kaupa hann hvar sem er? Eru gimsteinar á Íslandi? Hvar hægt er að læra gimsteinafræði og hvað kostar það? Óskar Haraldsson rekstrarfræðingur er menntaður í gimsteinafræðum og kom í þáttinn í dag.
Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson