Mannlegi þátturinn

Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar, Alfreð Clausen og póstkort


Listen Later

Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hún, ásamt Elísabetu Jökulsdóttur, eru verndarar menntunarsjóðsins. Með Unni kom Lilja Kristjánsdóttir, sem hefur þegið styrk til náms úr sjóðnum. Þær sögðu okkur frá menntsjóðinum og Lilja sagði okkur sína sögu.
Jónatan Garðarsson kom svo aftur í þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í síðustu viku sagði Jónatan okkur frá Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu og í dag fræddi Jónatan okkur um Alfreð Clausen, einn af frumkvöðlum í íslenskum dægurlagasöngi.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá víðavangshlaupinu Puffin Run sem fram fór um liðna helgi á Heimaey. Þar hlupu næstum ellefu hundruð manns í blíðskaparveðri. Magnús veltir fyrir sér af hverju hlaupið er kallað Puffin Run en ekki „bieg maskonurów“ uppá pólsku því töluvert fleiri pólverjar en bandaríkjamenn tóku þátt í hlaupinu. Hann segir líka frá heimsókn sinni til Víkur í Mýrdal þar sem fleiri tala ensku en íslensku, en hann endar á Ítalíu þar sem bæir og borgir eru að taka til á heiðursborgaralistum sínum.
Tónlist í þættinum í dag:
Þú og ég / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Æskuminning / Alfreð Clausen (Ágúst Pétursson og Jenni Jóns)
I Can’t Give You Anything But Love / Alfreð Clausen (Dorothy Fields og Jimmy McHugh)
On the Road Again / Canned Heat (Alan Wilson & Floyd Jones)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners