Gömul steypustöð og bifvélaverkstæði á Hvolsvelli hefur fengið nýtt líf en núna hýsir byggingin fjölskyldu og ferðaþjónustufyrirtækið Midgard. Þar er hótel, veitingastaður, ferðaskrifstofa og ævintýraferðir undir sama þaki auk þess sem þar eru reglulega haldnir menningarviðburðir sem heimamenn sækja í miklum mæli. Það er samheldin fjölskylda og vinir sem reka staðinn saman og Viktoría Hermannsdóttir hitti þrjú þeirra, þau Arnar Gauti Markússon, eiginkona hans Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir og móðir hans, Björg Árnadóttir á dögunum.
Við fáum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í París. Í þessu póstkorti verður meðal annars sagt frá áhugaleysi Frakka á Júróvisjón, en þeir eru samt með sigursælustu þjóðum í þessari sérkennilegu keppnisgrein. Það verður líka sagt frá undirbúningi Parísarbúa vegna væntanlegrar flóðbylgju fólks og fyrirtækja frá Bretlandi vegna Brexit og það segir líka af símaáráttu fransmanna, kröfugöngu Hollywoodstjarna og dómi yfir fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Frakklands vegna skattsvika sem uppljóstruðust í Panama skjölunum frá Mossack Fonseca lögmannsstofunni alræmdu.
Kristján Krossdal hefur í á þriðja ár hannað eigin byssuskefti úr límtré og meðal annars sigrað í frumkvöðlakeppnum sem haldnar hafa verið á Austurlandi en nú síðast sýndi hann skeftin á einni stærstu skotvopnasýningu heims. Við sláum á þráðinn austur í land í þættinum og fáum að vita meira frá Kristjáni.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson