Í dag ræddum við um námsval í þættinum. Á tímamótum þarf oft að taka ákvarðanir sem geta verið erfiðar, vegna þess að eitt er ekki endilega betra en annað. Hvaða nám á ég að velja mér og hvaða þætti ætti ég að skoða? Gréta Matthíasdóttirr náms- og starfsráðgjafi hjá HR skoðaði málin með okkur.
Svo heyrðum við af Endurvinnslukortinu. En tilgangur Endurvinnslukortsins er að fræða almenning um endurvinnslu, hvetja fólk til að taka þátt í því að minnka magn sorps sem fer óflokkað í heimilistunnuna og gefa eins fullkomið yfirlit og mögulegt er yfir hvar á landinu sé tekið við hverjum endurvinnsluflokki. Einar Bergmundur tækniþróunarstjóri sagði okkur söguna á bak við kortið og vefinn náttúran.is í þættinum.
Sauðburður er hafinn með sínum næturvökum, gleði og stundum sorgum. Mörgum þykir sauðburðurinn besti tími ársins og svo er um Agnesi Jónsdóttur sem fer á hverju ári heim til afa síns á bænum Steinadal til að vaka yfir ánum. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Agnesi og átti við hana spjall.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson