Föstudagsgesturinn okkar í dag var leikarinn Ólafur Darri Ólafsson. Það var áhugavert að tala við hann um ferilinn, æskuna og uppvöxtinn, í Bandaríkjunum og Breiðholti, ferðalagið í gegnum lífið og hvað er framundan. Við komum víða við, enda hefur Ólafur Darri átt mjög farsælan feril bæði hér á landi og úti í hinum stóra heimi. Ólafur sagði okkur svo frá Sumarljósi og svo kemur nóttin, nýrri kvikmynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar upp úr sögu Jóns Kalmann, sem verður frumsýnd um helgina á RIFF.
Í matarspjallinu í dag töluðum við um sinnep. Nú eru blikur á lofti í framleiðslu sinneps og Sigurlaug Margrét er búin að kynna sér málið og við rökræddum um hvaða sinnep er best t.d. á pylsur/pulsur.
Tónlist í þættinum í dag:
Sendu nú Gullvagninn / Björgvin Halldórsson (erl-Jónas Friðrik)
Towers of song / Tom Jones (Leonard Cohen)
Litli tónlistarmaðurinn / Erla Þorsteinsdóttir (12.september (Freymóður Jóhannsson))
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR