Mannlegi þátturinn

Páll Einarsson, skjátími og Kontóristinn um viðskiptaferðalög


Listen Later

Flatarmál hraunsins, sem runnið hefur úr gosinu í Fagradalsfjalli, hefur stækkað töluvert frá síðustu mælingu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands eða um rúmlega 60 þúsund fermetra á dag, eða sem samsvarar um níu knattspyrnuvöllum á degi hverjum. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur var gestur þáttarins í dag og við ræddum við hann um eldgosið í Geldingardölum frá mörgum hliðum.
Nú á tímum snjalltækja og samfélagsmiðla þá veltum við því talsvert fyrir okkur hversu mikill tími fer í þessa blessuðu nýju tækni. Hversu lengi við störum á símana okkar og tölvurnar á dag og hvaða áhrif það hefur á okkar líf. Svo ekki sé minnst á börnin og unglingana, sem hafa alist upp með snjalltækin í höndunum og þekkja ekki þá tíma þegar þessi tækni var ekki til. Nú er auðvitað spurning hversu góðar fyrirmyndir við erum fyrir þau í þessu tilliti, hvort við þurfum ekki að byrja á því að breyta okkar hegðun fyrst, ef við viljum takmarka skjátíma barnanna. En svo eru kannski ekki allir sem vita að það eru til mjög nytsamleg forrit og tól, sem mörg hver fylgja með snjalltækjunum, þar sem hægt er að gera einmitt þetta. Sem sagt takmarka skjátíma og aðgengi að netinu. Bæði fyrir börnin og einnig fyrir okkur sjálf. Guðmundur Jóhannsson samskiptafulltrúi hjá Símanum kom í þáttinn og sagði frá þessu.
Við fengum nýja hugvekju frá Kontóristanum Steinari Þór Ólafssyni, í dag. Í þetta sinn velti hann fyrir sér viðskiptaferðalögum. Kórónuveiran hefur sannað fyrir okkur að viðskiptatengt ferðalög sem tóku drjúgan tíma margra fyrir kórónuveiruna má vel leysa af hólmi með fjarfundum en Kontóristinn velti fyrir sér í dag hvernig þetta muni þróast nú þegar sér fyrir endan á þessu ferðabanni okkar.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners