Mannlegi þátturinn

Pálmi Sigurhjartarson föstudagsgestur og kökuspjall


Listen Later

Föstudagsgesturinn okkar í dag var tónlistarmaðurinn Pálmi Sigurhjartarson. Inná vefnum ÍSMÚS - Íslensk músík og menningararfur, stendur eftirfarandi um Pálma: Pálmi Sigurhjartarson byrjaði að sjálfmennta sig á píanó 1972 með því að æfa og læra bandaríska þjóðsönginn. Upp frá því var hann sendur í tónlistarnám í Barnamúsíkskóla Reykjavíkur, þá Tónskóla Sigursveins, og var seinna í einkatímum í klassískum píanóleik til 12 ára aldurs en ráðlagt að hætta námi af kennara sínum er hann lék hið hugljúfa popplag ?My life? eftir Billy Joel á jólatónleikum hins klassíska píanókennara. Má segja að þetta hafi skipt sköpum fyrir okkar mann sem byrjaði upp úr 12 ára aldri að þroska tónlistarhæfileika sína upp á eigin spýtur, og ákvað að gera tónlistina að sínu starfi. Frá árinu 1985 hefur Pálmi, sem er auðvitað þekktastur fyrir að vera í Sniglabandinu, tekið þátt í gerð fjölda hljómplatna, sem hljóðfæraleikari, útsetjari, upptökustjóri, lagahöfundur og söngvari. Þá hefur hann einnig starfað sem hljómsveitar- og tónlistarstjóri í sjónvarpi, útvarpi og leikhúsi, undirleikari hjá fjölda listamanna og unnið við tónlistarkennslu.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, besta vini bragðlaukanna. Í dag sagði hún okkur frá frönskum súkkulaðikökum og napóleonskökum. Sem sagt gómsætt og gott matarspjall í dag.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners