Ísland er í öðru sæti á heimslistanum þegar kemur að hæstu dánartíðni vegna Parkinsonsjúkdómsins - á eftir Finnlandi. Þetta er óhugguleg staðreynd sem Parkinson samtökin eru að vekja athygli á. Þessi sjúkdómur virðist herja á mun yngra fólk en áður. Samtökin hleyptu af stokkunum vakningarherferð fyrir landsleik Íslands og Ghana, í samvinnu við KSÍ í síðustu viku. Vilborg Jónsdóttur formaður samtakann kom í þáttinn í dag.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir var hjá okkur í dag, en hún stofnaði Tröppu, þar sem talmeinafræðingar geta sinnt börnum m.a. með málþroskaraskanir í gegnum fjarþjónustu. Þau þjónusta nú 33 staði á landsbyggðinni. Auk þess stofnaði hún félagið Köru, sem býr til hugbúnaðinn sem Trappa notar, en yfir 100 sérfræðingar nota nú Köru til að sjá um allt er varðar rekstur skrifstofa í meðferð og/eða til að nýta sem fjarþjálfunartæki.
Lesandi vikunnar í þetta skipti var Ævar Þór Benediktsson, hann er lærður leikari og hefur starfað víða sem slíkur, en hann hófst handa við skriftir fljótlega eftir útskrift og hefur gefið út á annan tug bóka, aðallega fyrir börn og unglinga, sem hafa fengið frábærar viðtökur. Hann hefur fengið fjölda viðurkenninga og verðlauna og í dag sagði hann okkur hvaða bækurhann er að lesa þessa daganaog hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina, meðal annars Roald Dahl, Stephen King, Kurt Vonnegut og Lemony Snicket.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson