Mannlegi þátturinn

Portrett myndir af Kópavogbúum,Sturlungabardagi og Kynningarbréfið


Listen Later

MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 23.JÚNÍ
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MARGRÉT BLÖNDAL
Við brugðum okkur aftur til Sturlungaaldar hér á eftir og berjumst við hlið Sturlu Sighvatssonar í Örlygsstaðabardaga eða svo gott sem. Á Sauðárkróki er gagnvirk sögusýning sem nefnist 1238 baráttan um Ísland. Þar er frægustu viðburðum Sturlungaaldarinnar (1220 - 1264) gerð skil en þetta er blóðugasta og afdrifaríkasta tímabilið í sögu Íslands þar sem ættar- og höfðingjaveldi börðust í allsherjar borgarastyrjöld sem lauk með því að Íslendingar glötuðu sjálfstæðinu. Áskell Heiðar Ásgeirsson segir okkur betur frá þessari sýningu og ýmsu fleiru líka því nútíminn fær líka sinn sess í húsnæði sýningarinnar. Þar er m.a. veitingastaður og í gærkvöldi voru þar tónleikar með Valdimar og Erni Eldjárn.
Margrét Rún Styrmisdóttir er fatahönnuður og teiknari, og frá júní til ágúst er hún frá 9-5 að vinna í portrettteikningum af Kópavogsbúum. Hún sendi út opna beiðni í byrjun sumars og fékk samband við 150 einstaklinga, og vinnur hörðum höndum af því að teikna nákvæmt portrett af hverjum og einum auk þess að eiga í samtali við viðkomandi um daginn og veginn. Þannig fangar hún þversnið af bæjarbúum, sögum þeirra og upplifunum, en hver og einn sendir henni þá mynd af sér sem þau vilja sjálf að birtist. Þá stefnir hún að því að í lok sumars muni hún geta raðað saman mósaíkmynd af sjálfvalinni birtingarmynd bæjarbúa.
Í síðustu viku tók Steinar Þór Ólafsson fyrir ferilskrána. En í dag tókum við fyrir kynningarbréfið sem algengt er að óskað sé eftir, en, liggur kannski meira á huldu hvernig eigi að setja fram. Hvað á að skrifa í þetta kynningarbréf? Á þetta að vera ítarlegri upplistun á ferilskránni? Og hversu mikið vægi hefur kynningarbréfið? Getur frábært kynningarbréf bætt upp fyrir skort á t.d. starfsreynslu og menntun? Og hvað á það að vera langt? Steinar talar við Ingu Björg Hjaltadóttur, framkvæmdastjóra Attentus, til að fræðast betur upp þetta óræða skjal sem kynningarbréfið er.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

23 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

9 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

20 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners