
Sign up to save your podcasts
Or


,,Líkamsræktin mín er aðallega að dansa uppá borði á Prikinu."
Hún er einfaldlega legend. Hún er tískumógúll útaf fyrir sig, ultimate skvísa, lögfræðinemi, vegan activisti, feministi og woke gyal, fyrrum Ungfrú Ísland keppandi og litla systir mín. Hún er Helga Margrét Agnarsdóttir og ég gæti ekki hugsað mér lífið án hennar. Við ræddum um hugtök á borð við sjálfselsku og sjálfsöryggi, mikilvægi þess að þau séu jákvætt hlaðinn, uppbyggingu á sjálfinu, vera í liði með sjálfri sér, the voice within, hafa uppbyggileg áhrif, hætta að tala illa til sín og að sjálfsögðu að njóta. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía.
Hún er mögnuð kona sem ég lít mjög mikið upp til. Hún er fyrrum verðbréfasali sem ákvað að breyta um stefnu og afla sér jógakennararéttindi og í framhaldi af því stofna Jógastúdíóið Sólir úti á Granda. Hún er Sólveig Þórarinsdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora þessa vikuna. Við ræddum um hvað það var sem fékk hana til þess að treysta á sjálfa sig og breyta algjörlega um stefnu í lífinu, mikilvægi núvitundar, að vera í flæðinu og ótal kosti þess að stunda jóga. Einnig sagði hún mér frá því þegar hún hélt Ted Talk um daginn þar sem hún lagði áherslu á kraft ástarinnar. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fjöllistakona, instagram legend og meme queen sem hefur vakið athygli á einkennandi og áberandi stíl bæði sem artisti og einstaklingur. Í vor var hún með sýningu á Feneyjatvíæringnum þar sem hún söng karaoke lög klædd sem trúður. Hún er Ágústa Ýr, betur þekkt sem Ice ice baby spice og var viðmælandi minn í Radio J'adora þessa vikuna. Við ræddum svo margt skemmtilegt, um instagram og samfélagsmiðla, alter ego, list og kúltúr okkar samtíma, ljósmyndanámið hennar í New York, daglegt líf í London þar sem hún er búsett og fleira litness! Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er grímuverðlaunahafi, skemmtikraftur, leikkona, bráðfyndin, powergirl og eldklár stelpa. Hún er Vala Kristín og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við spjölluðum um leiklistina, hvernig það er að setja sig í mismunandi hlutverk á trúverðugan hátt og hvernig hvert hlutverk tengist sjálfinu, mikilvægi opinnar umræðu á erfiðum málefnum, átröskun og bataferli, samfélagsmiðla, innblástur og margt fleira magnað. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er superstjarna og lék á sviði í Las Vegas. Hún er leikkona, söngkona, listakona, fyrrum Solla Stirða, mikið legend, LA lady og stórvinkona mín. Unnur Eggerts er viðmælandi minn í Radio J’adora þessa vikuna. Við spjölluðum um allt á milli himins og jarðar, meðal annars um leiklistarnámið í New York, hvernig það er að leggja land undir fót og fara ung út í hinn stóra heim, hvað það er mikilvægt að vera alltaf með sjálfri sér í liði og óþæginlegar áheyrnaprufur þar sem karlmenn reyna að lítillækka konur. Við ræddum einnig um andlega heilsu, mikilvægi núvitundar og sjálfsræktar, samfélagsmiðla, innblástur og að yfirstíga hræðslu. Tune in! Xoxo DJ Dóra Júlía
Hún er hlaupalegend sem var að hlaupa Laugaveginn. Hún er mögnuð og yndisleg og temur sér ótrúlega jákvætt og fallegt lífsviðhorf eftir að hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika síðastliðið haust. Hún er Gréta Rut og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um hlaupið, innblástur og markmið, hvernig lífið heldur áfram eftir áföll og hvað er mikilvægast við lífið. Enn fremur ræddum við um samtökin Gleymérei sem Gréta ætlar að hlaupa fyrir í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst, en hún og kærastinn hennar Ragnar eignuðust andvana dreng í október síðastliðinn. Segir hún samtökin hafa gert mikið fyrir þau og hjálpað þeim að varðveita fallegar minningar litla Hinriks Leós. Tune in <3 xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er dansari sem útskrifaðist frá dansdeild Juilliard í New York, einni bestu dansdeild í heimi, og hefur dansað stanslaust frá þriggja ára aldri. Hún er Lilja Rúriksdóttir og var viðmælandi minn á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna í Radio J'adora. Við spjölluðum um dansinn, fjölbreytt verkefni, New York lífið, þróun á okkur sem einstaklingum, sjálfstæði og að taka af skarið, innblástur, hvað lætur manni líða vel og margt fleira krassandi. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Söngkona, tískumógúll og fyrrum barnastjarna sem aðeins tvítug skrifaði undir risa plötusamning í Hollywood. Svala Björgvins kom til mín í Radio J'adora síðasta fimmtudagskvöld og ræddi um LA lífið, hvernig hún hefur þróast og breyst frá því hún flutti fyrst út í hinn stóra heim, Steed Lord ævintýrið og hversu mikilvægt það er að geta verið frjáls eftir að hafa verið samningsbundin í nokkur ár við plötufyrirtæki sem vildi skapa útgáfu af Svölu sem hún sjálf fékk ekki mikið um að segja. Einnig ræddum við um innblástur, fyrirmyndir, andlega heilsu, möntrur og hvað í lífinu hefur komið henni á óvart! Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Sólrún Diego. Frumkvöðull á sviðum samfélagsmiðla. En hver er Sólrún Diego frá hennar point of view? Hvað veitir henni innblástur og hvernig bregst hún við neikvæðri gagnrýni? Og hvernig komst hún á þann stað að vera einn fremsti áhrifavaldur okkar Íslendinga? Hlustaðu á þáttinn til að fá öllum þessum spurningum svarað og meira til. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er samfélagsmiðla legend með meiru, business babe og stendur fyrir Miss Universe Iceland keppnunum ásamt því að vera hluti af Miss Universe teyminu úti í hinum stóra heimi. Svo er hún líka fellow California Girl, en við kynntumst einmitt í LA þegar við fórum saman í sushi party til Nicole Richie. Ég er að sjálfsögðu að tala um snapchat drottninguna Manúelu Ósk, en hún var gestur minn í Radio J'adora í þessum þætti. Við ræddum um fegurðarsamkeppnir, girlpower, feminisma, samfélagsmiðla, tísku, hönnun, innblástur, hvernig það er að vera áberandi einstaklingur í íslensku samfélagi og svo margt fleira. Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
From the publisher's feed