Radio J'a­dora

Radio J'a­dora

By Útvarp 101Society & CultureArts
Download on the App Store

Radio J'a­dora episodes

  • Aníta Briem

    Leikkonan og lífskúnstnerinn, hin yndislega Aníta Briem. Aníta ræddi við mig um lífið í Hollywood, Me Too bylgjuna og hvað varð til þess að hún ákvað að stíga fram, hvernig lífið hefur breyst til hins betra með tilkomu vitundarvakninga og samfélagsmiðlahreyfinga, aðstæðna sem hún þurfti að glíma við í upphafi ferilsins þar sem henni var meðal annars ráðlagt að kaupa stærri brjóstahaldara fyrir áheyrnaprufu, ný verkefni á Íslandi, andlega heilsu og margt fleira magnað! Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min
  • Birna

    Í þessum þætti fékk ég til mín kynlífsfræðarann, listakonuna og activistann Birnu, sem er Íslendingur sem er fædd og uppalin í New York og fór viðtalið fram á ensku í þetta skipti. Birna er ótrúlega áhugaverð og skemmtileg stelpa og undanfarið hefur hún unnið hörðum höndum að því að skipuleggja “The Period Project” sem auðveldar aðgang að túrtöppum, dömubindum og fleiru slíku fyrir konur, sem og að framleiða heimildamynd um sex workers (veit ekki besta íslenska orðið fyrir það?) sem væntanleg er á næstu misserum. Við ræddum mikilvægi þess að opna bæld umræðuefni, samfélagsmiðla sem vettvang fyrir hreyfingar og byltingar, hvað veitir hamingju, innblástur og uppbyggingu á sjálfinu okkar. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    56 min
  • Donna Cruz

    Samfélagsmiðla skvísan, tölvuleikjalegendið, vinsælasta stúlkan og leikkonan Donna Cruz. Hún spjallaði við mig um lífið og tilveruna, hvenær hún fór að vekja athygli í íslensku samfélagi, hlutverk í íslenskri bíómynd, hvaða ábyrgð áhrifavaldar hafa gagnvart fylgjendum sínum og andlega heilsu svo eitthvað sé nefnt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    38 min
  • Kristín Lilja
    Supermódelið, laganeminn, stórvinkona mín og legendið Kristín Lilja Sigurðardóttir. Módelferill Kristínar Lilju fór á flug fyrir tæpu ári síðan en á þeim tíma hefur hún verið búsett í París, Mílanó og London og labbað fyrir tískurisa á borð við Dior, Kenzo og Ganni ásamt því að vera í fjarnámi í lögfræði við Háskóla Íslands. Þessi powergirl hafði frá mörgu skemmtilegu að segja og ræddum við um daglegt líf í módelheiminum, gildi og viðhorf í lífinu, djammið í Reykjavík, fyrirmyndir, mátt jákvæðninnar og fleira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
    54 min
  • Great Grief

    Great Grief, hard core rock hljómsveitin kom í skemmtilegt spjall til mín í Radio J'adora þar sem við ræddum um tónlist, innblástur, tattoo, að fullorðnast og fleira skemmtilegt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    55 min
  • GDRN

    Talentið, töffarinn og söngkonan með seiðandi röddina Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, kom til mín í Radio J'adora á valentínusardaginn sjálfan. Við ræddum meðal annars um tónlist og sköpun, alter ego, innblástur frá öðrum artistum og hvert stefnan er sett. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    57 min
  • Tanja Ýr

    Ultimate skvísa, Business mogul, og samfélagsmiðlalegend með meiru. Athafnakonan Tanja Ýr var viðmælandi vikunnar í Radio J'adora. Hún ræddi við mig um lífið sem ung business kona og hvernig hlutir þróast frá því að hugmynd kviknar og úr verður fyrirtæki, ásamt því að ræða innblástur, fyrirmyndir, trú á eigin getu og að leyfa sér ekki að efast um sig og aftra sjálfri sér. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    54 min
  • Edda Falak

    Crossfit legend, feministi og instagram queen. Edda Falak var viðmælandi vikunnar hjá mér í Radio J'adora. Við ræddum um mikilvægi þess að trúa á sig, listina að not give a fuck, mátt samfélagsmiðla, daglega lífið í Köben þar sem Edda er búsett og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min
  • Sandra Björg

    Fyrsti viðmælandinn í Radio J'adora var fagkonan og snillingurinn Sandra Björg Helgadóttir. Sandra er með Bs gráðu í verkfræði, hefur kennt dans í áratug, tekið að sér alls kyns fjölbreytt og skapandi verkefni og stendur núna fyrir námskeiðunum Absalout Training sem hafa notið gríðarlegra vinsælda. Við ræddum um markmiðasetningar, innblástur, vináttu, samspil sálar og líkama og hvað það var ótrúlega fyndið þegar hún gat ekki skilið hvap Jay Z var að segja þegar hann spurði hana eitt sinn einfaldrar spurningar. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min

About Radio J'a­dora

From the publisher's feed

Velkomin í Radio J'adora, í boði íslensku hamborgarafabrikkunnar. Öll fimmtudagskvöld fæ ég til mín mismunandi gesti þar sem fjölbreyttar fagkonur eru í forgrunni. Við spjöllum um allt milli himins og…