Radio J'a­dora

Radio J'a­dora

By Útvarp 101Society & CultureArts
Download on the App Store

Radio J'a­dora episodes

  • Rakel Unnur

    Rakel Unnur er eigandi og verslunarstjóri Wasteland Reykjavík, glænýrrar vintage búðar í miðbænum. Ég kynntist henni árið 2015 þegar hún stíliseraði mig fyrir Nostalgíu myndatöku og síðan þá hefur verið magnað að fylgjast með henni blómstra í tískuheiminum. Rakel er gesturinn minn í þessum þætti af Radio J'adora og við ræddum um þetta magnaða menningarfyrirbæri sem tíska er, mikilvægi þess að velja vintage, umhverfisáhrif tískubransans, innblástur, markmið, trú á eigin getu og hvernig það var að taka af skarið og opna sína eigin verslun. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    49 min
  • Bryndís Silja

    Bryndís Silja er legendary pía. Hún er varaformaður Íslands-Palestínu og hefur talað máli félagsins í mörg ár. Svo er hún búin að vera vinkona mín síðan við vorum saman á leikskóla, gamla góða Örkin hans Nóa. Í þessum þætti ræddum við Bryndís um hið stóra eurovision mál, starf félagsins, hið daglega líf í Palestínu þar sem Bryndís hefur eytt dágóðum tíma ásamt því að ræða ýmislegt milli himins og jarðar þar sem við komum meðal annars að gildum í lífinu, fyrirmyndum, innblæstri og hvað sé mikilvægt að gera til þess að hlúa að sálinni. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía

    48 min
  • Steinunn Camilla

    Hún gerði það gott í stærsta íslenska girlbandi allra tíma, starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum, hannaði sína eigin skartgripalínu og vinnur nú sem öflugur manager ásamt því að sitja í stjórn félags kvenna í atvinnulífinu. Hún er Steinunn Camilla og var gestur minn í Radio J'adora. Við ræddum um LA lífið, Me Too bylgjuna, hvernig það var að vera í stelpubandi og grípa þau mögnuðu tækifæri sem gáfust, muninn á því að vera stelpa í dag og að vera stelpa fyrir 10 árum, viðbrögð við hatri og internet tröllum, það að þróast og enduruppgötva sig, hvaðan innblástur kemur og margt fleira. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min
  • Telma Huld

    Telma Huld er ung og upprennandi leikkona og fer með aðal hlutverk í nýrri íslenskri bíómynd sem heitir Eden. Hún var gestur hjá mér í Radio J'adora og spjallaði við mig um leikkonulífið, kvikmyndina Eden, hvernig hún setur sig í mismunandi hlutverk, hvað veitir henni innblástur, draumahlutverk, markmið og þar fram eftir götum. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    34 min
  • Sigríður Margrét

    Hún er framkvæmdarstjóri Lyfju, fagkona og frænka mín. Hún er Sigríður Margrét Oddsdóttir og var viðmælandi vikunnar hjá mér í Radio J'adora. Hún ræddi við mig um lífið sem kona í stjórnunarstöðu, hvernig drifkraftur og markmið hafa veitt henni byr undir báða vængi, hvað veitir henni innblástur ásamt því að luma á nokkrum góðum ráðum fyrir hlustendur. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    41 min
  • Sóley Kristjánsdóttir

    Mögnuð kona, mikil fyrirmynd mín, jákvæðnis bomba, fyrrum DJ legend og snillingurinn Sóley Kristjánsdóttir, fyrrum þekkt sem DJ Sóley. Hún var gestur hjá mér í Radio J'adora og ræddi við mig um allt milli himins og jarðar, frá því hvernig hún hóf störf sem plötusnúður og hvernig það þróaðist hjá henni yfir í lífið sem hún lifir í dag, hvað veitir henni innblástur, álit á samfélagsmiðlum og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    56 min
  • Sóla Þorsteinsdóttir

    Sóla Þorsteinsdóttir er eldklár og frábær fagkona sem hefur undanfarið látið í sér heyra hvað varðar loftslagsbreytingar og hefur talað mikið máli loftslagsverkfallsins sem að stúdentar og krakkar allt niður á grunnskólaaldur hafa staðið. Við ræddum um loftslagsbreytingar og hvað þær fela í sér, mikilvægi verkfallanna, hvað þarf að hafa í huga til að sporna við eyðileggingu jarðar, andlega heilsu og innblástur svo eitthvað sé nefnt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    50 min
  • Kristín Hulda

    Hún er pía sem er inspiration á svo mörgum levelum, eldklár og dugleg, jarðbundin og á sama tíma full af krafti. Formaður geðfræðslufélagsins Hugrúnar, mastersnemi í klínískri sálfræði og jógakennari svo eitthvað sé nefnt. Hún er Kristín Hulda og var gestur hjá mér í Radio J'adora. Hér ræðum við um starf Hugrúnar, mikilvægi opinnar umræðu á andlegum veikindum, jákvæðar breytingar í samfélaginu, samfélagsmiðla byltingar, kosti og galla samfélagsmiðla, jóga, hugleiðslu, "hamingju" pælinguna og hvað hugtakið hamingja felur í sér og margt fleira spennandi. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min
  • Mosha Lundström Halbert

    Mosha Lundstrom er kanadísk athafnakona, búsett í Miami og á rætur að rekja til Íslands. Mosha rekur tískufyrirtækið Thermakota ásamt systur sinni og móður og leggja þær áherslu á hlýjar og góðar yfirhafnir þar sem litagleði og glimmer getur ráðið ríkjum. Hún er mikill tískumógull og skrifar meðal annars pistla fyrir Vogue - en við kynntust einmitt þegar Mosha gerði umfjöllun um mig og fleiri groovy íslenskar stelpur, Nordic Cool Girls Guide to Reykjavik, fyrir vogue.com sumarið 2017.  Við Mosha ræddum um mikilvæga hluti á borð við tísku og kraftinn sem fylgir því að finna sinn eigin stíl, innblástur, fyrirmyndir, samfélagsmiðla, Ísland og hvað væri gott að hafa í huga við að skapa sér tækifæri og láta drauma sína rætast. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía

    1 hr
  • Rakel Tómasdóttir

    Hún er listakona með meiru sem er líklega þekktust fyrir andlitsteikningar af konum. Algjör töffari, ultimate cool gurl og ótrúlega hlý og klár stelpa. Hún er Rakel Tómasdóttir. Við ræddum um lífið og listina, listina að lifa, hvernig það er að vera freelance listakona og fá nóg af verkefnum, ferðalög og frelsi, innblástur, fyrirmyndir, vald samfélagsmiðla og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía

    58 min

About Radio J'a­dora

From the publisher's feed

Velkomin í Radio J'adora, í boði íslensku hamborgarafabrikkunnar. Öll fimmtudagskvöld fæ ég til mín mismunandi gesti þar sem fjölbreyttar fagkonur eru í forgrunni. Við spjöllum um allt milli himins og…