Þriðjudagur 27. maí
Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur
Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna ræðir um gervigreind, myndlist, falsanir og höfundarrétt við Oddnýju Eir. Margt bendir til þess að fjárhagsleg afkoma íþróttafélaga ráði för þegar áfengi er selt á viðburðum í kringum börn. Spurt er hvort vegi þyngra, fjármál eða lýðheilsa barna. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi segir áfengismenninguna út úr kú. Björn Þorláks ræðir við hann. Christian Schultze, umhverfisskipulagsfræðingur og landslagsarkitekt, sviðsstjóri rannsókna- og alþjóðamála í Landbúnaðarháskóla Íslands kemur þar á eftir til Oddnýjar Eirar og segir okkur frá alþjóðasamstarfi og nýjustu verkefnum og ræðir mikilvægi öflugs rannsóknarumhverfis á sviði landbúnaðar á nýjum tímum. Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur lokar svo samtali kvöldsins einnig með Oddnýju og ræðir við hana um nýjan náttúruvef fyrir borgarbörn og önnur náttúrubörn.