Á sunnudaginn fór fram málþingið Refsing eða endurhæfing, þar sem fjallað var um ferðalag fanga frá afplánun til frelsis frá ýmsum sjónarhornum. Hvernig er þetta ferli í dag? Sigrún Margrét Óskarsdóttir fangaprestur og Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga komu í þáttinn í dag, en þau voru bæði með erindi á málþinginu.
Það er auðvitað mikilvægt að hlúa að geðheilsunni, að þekkja helstu einkenni geðraskana og vita hvert á að leita ef eitthvað kemur upp. Hugrúnar geðfræðslufélag er rekið í sjálfboðaliðastarfi af háskólanemum og snýr öll starfsemi félagsins að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum um geðheilsu. Föstudaginn næstkomandi mun hefja göngu sína Hugvarpið, sem er nýr hlaðvarpsþáttur á vegum Hugrúnar. Hugvarpið fjallar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði sem standa til boða. Þær Þóra Jóhannsdóttir formaður Hugrúnar og Karen Geirsdóttir, fyrrverandi formaður, komu í þáttinn í dag.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Stórhöfði í Vestmannaeyjum er einn af uppáhaldsstöðum Magnúsar, enda frægur vegna veðurhams og lundabyggðar. Í póstkorti dagsins sagði hann frá Stórhöfða sem er höfuðborg lundaættarinnar. Það eru kosningar framundan og samgöngumálin eru á oddinum eins og nærri má geta útí Vestmannaeyjum. Hann fjallaði um Landeyjahöfn og hugmyndina um göng milli lands og Eyja. Í lokin sagði Magnús frá símaviðtali sem hann átti við ítalska söngvarann Andrea Bocelli.
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON