RIFF, alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík verður sett í 15. sinn 27.sept. Þessi hátíð hefur sett sterkan svip á menningarlíf Reykjavíkur frá árinu 2004, hingað koma árlega erlendir hátíðargestir, fjölmiðlar og heiðursgestir hátíðarinnar sem margir hafa markað djúp spor í kvikmyndasöguna. Börkur Gunnarsson, kynningarstjóri hátíðarinnnar og Guðrún Helga Jónasdóttir, dagskrárstjóri heimildarmynda á RIFF komu í þáttinn og sögðu frá hverju má eiga von á í þetta sinn, heiðursgestum hátíðarinnar og dagskránni.
Blábankinn á Þingeyri stóð fyrir vinnustofu í síðustu viku þar sem japanskir gestir sögðu frá því sem þeir hafa kallað skapandi fólksfækkun. Þetta vakti forvitni okkar. Arnar Sigurðsson, Blábankastjóri, var í símanum frá Þingeyri og sagði frá því hvaða fyrirbæri Blábankinn er og hvað kom fram í máli japönsku gestanna.
Lesandi vikunnar í þettta sinn var Halldór Bragason gítarleikari. Við heyrðum hvaða bækur eru á náttborðinu hans, hvað hann hefur verið að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðína.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson