Álhatturinn

Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀


Listen Later

Risastór hátæknileg og afar hljóðlát  flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk?

Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og  aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni? 

Drónarnir hafa flestir sést í og við bandarískar herstöðvar og orkuver  sem gæti bent til þess að drónarnir séu að fylgjast sérstaklega með herstöðvum og leita uppi hernaðarleg gögn eða leynilega tækni sem bandaríkin  vinna að. 

En gætu þessi ógnarstóru fljúgandi fyrirbæri átt heima á herstöðvunum og verið á vegum bandarískra yfirvalda? Hvað ef flýgildin eru hönnuð til þess að fylgjast með almenningi? Þá hefur heyrst að bandarísk yfirvöld hafi tekið að sér að varðveita úkraínskan kjarnaodd en síðar týnt honum og drónadónarnir séu á sveimi í leit að þessum kjarnaoddi. 

Önnur skýring er að þarna séu kínverskir njósna drónar á ferð og hefur það verið rökstutt með því að drónarnir sjást oft á sveimi nálægt bóndabýlum og ræktarlandi í eigu kínverskra fyrirtækja. Einhverjir vilja meina að drónarnir komi upp úr sjónum og að á hafsbotni séu risastórar og hátæknilegar herstöðvar kínverja. 

Aðrir trúa nokkurnvegin því sama nema segja herstöðvarnar og drónadónana vera á vegum Írana eða jafnvel Rússa. Hvað sem því líður og hvaðan sem þessi flýgildi og drónadónar koma þá er morgunljóst að eitthvað verulega bogið er við þetta mál. Drónadónarnir eru svo margir og svo mikið á víð og dreif um heiminn að það er eiginlega ekki hægt að útsskýra þá.

Jafnvel þó allir miðaldra karlmenn í heiminum hefðu ákveðið að fá drónaæði á sama tíma gætum við ekki útskýrt þessa dróna fjölgun. Enda eru þessir drónadónar langtum stærri en hefðbundnir drónar sem eru aðgengilegir almenningi á almennum markaði og töluvert hljóðlátari en nokkuð sem sést hefur áður. Jafnvel stærstu iðnaðar dónar sem Amazon og fleiri nota til þess að afhenda vörur eru ekki svo stórir. Hver er skýringin?

Þetta er einmitt viðfangsefni nýjasta þáttarins af Álhattinum, hvar þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu samsæriskenningu að „Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin og víðar séu leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur.“


HLEKKIR Á ÍTAREFNI

  • https://rumble.com/v2yiy06-how-a-ufo-shuts-down-nuclear-warheads.html
  • https://www.youtube.com/watch?v=VgziDyPSUog
  • https://www.youtube.com/watch?v=Ag44dRO8LEA
  • https://www.youtube.com/watch?v=_iBH9LKOKy0
  • https://www.youtube.com/watch?v=xglaXVtQcis

Support the show

UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

ÁlhatturinnBy Álhatturinn

  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5

4.5

2 ratings


More shows like Álhatturinn

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

479 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

125 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

128 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

25 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

18 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners