Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri.
Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin.
Hann hefur talað um 11. september, Íraksstríðið, innrásina í Lýbíu, fall Gaddafis, peningakerfið, hlýnun jarðar, covid og óteljandi önnur hitamál sem flestir almennir borgarar kjósa algerlega að hundsa. Allt í nafni þess sem hann kallar réttlæti og sannleiksleit.
Hann var meðal þeirra fyrstu hérlendis sem gagnrýndu samkomutakmarkanir og sóttvarnaráaðgerðir í Covidinu. Hann var með Epstein málið á vörunum áður en almenningur vissi hver sá maður yfir höfuð væri. Hann stóð fremstur í broddi fylkingar í búsáhaldabyltingunni, beitti RÚV þrýstingi til að sýna Zeitgeist Addendum, sem þeir svo gerðu og kastaði snjóbolta í Jón Ásgeir eins og frægt er orðið. Sumum fannst hann táknmynd mótmælanda og anarkista. Aðrir sáu bara ruglaðan gaur með mikinn hávaða. Enn aðrir litu á hann sem athyglissjúkan trúð.
Svo líður tíminn og eitthvað breytist. Sami maður og áður var áður flokkaður í hóp róttækra stjórnleysingja, þá frekar vinstra meginn línunnar, sem barðist gegn NATO, nýfrjálshyggju og alþjóðlegum valdablokkum er í dag farinn að dásama Donald Trump og Miðflokkinn, auk þess sem hann kallar aðgerðir í loftslagsmálum plott leynilegrar valdaklíku til að ná heimsyfirráðum. Hvað gerðist eiginlega?
Er Guðjón einfaldlega enn eitt skólabókadæmið um gamla síendurtekna sögu, um ungan róttækan vinstri mann mann sem eldist, þroskast og mýkist í sumu, harðnar í öðru og færist hægt og rólega frá róttæku vinstri yfir í íhaldssamt hægri?
Er það bara það að svokallaðar samsæriskenningar Trump og Miðflokksins eigi við rök að styðjast og hann sé ennþá, eins og áður bara í einlægri leit að sannleikanum, tilbúinn að standa upp fyrir málsstöðum sem almenningur sér sem óvinsæl eða skammarleg. Eða er eitthvað mun vafasamara og óhugnanlegra í gangi?
Er einhver að stýra Guðjóni á bakvið tjöldin eða er hann sjálfur að spinna psyop á allt samfélagið með því að gera álhatta að samheiti yfir ruglumbull, tóma tjöru og vitleysu.
Eða erum við einfaldlega að horfa á mann sem hefur alltaf verið eins og hinar meintu nýju skoðanir ekki kúvending heldur ný einfaldlega birtingarmynd eða önnur hlið á sama gamla peningnum?
Í þessum þætti af Álhattinum velta þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því upp hvort Guðjón sé raunverulegur Álhattur eða undirförull og útsmoginn leppur hulduaflanna (e.psyop). Hvort hann sé ósérhlífinn sannleiksleitandi, sem sannleiksleitin leiddi á þessar óvæntu slóðir eða hvort hann sé búinn að hafa okkur öll að háði og spotti, í einhverju í stærra leikriti, þar sem hann gefur sig út fyrir að vera „borgarstjóri Samsæríu“ en handritið er í raun skrifað annars staðar á bakvið tjöldin af Skuggavaldinu.
Þetta og svo margt margt fleira áhugavert, undarlegt og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeirri spurningu er velt fyrir sér hvort að Guðjón Heiðar sé í raun leiksoppur og leppur hulduaflanna(e.Psyop)
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.