
Sign up to save your podcasts
Or


Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina.
Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fyrir aldur fram. Eða svo segir sagan. En getur verið að Elvis eða einhverjri aðrir á hans vegum hafi hreinlega sviðsett dauða hans?
Var þetta ein allsherjar blekking skipulögð af Elvis og útgáfurisunum til þess að græða meiri peninga? Eða fór Elvis í vitnavernd og felur eftir að hafa borið vitni gegn svikahrappi fyrir rétti? Eða getur verið að mafían og aðrir eigendur spilavídda í Vegas hafi haft eitthvað með málið að gera?
Hvað með vini allra álhatta í FBI? Eða vildu Elvis og fjölskylda kannski fá frið frá öllu sviðsljósinu og um leið skapa mystík í kringum andlát hans til þess að geta markaðssett búgarð hans og heimili Graceland sem stórfenglegan ferðamannastað um ókomna tíð og gera plötur hans vinsælli?
Lengi hefur fólk karpað um það hvort Elvis hafi raunverulega látist 16.Ágúst 1977 eða hreinlega farið í felur. Ef Elvis væri enn á lífi væri hann orðinn níræður sem verður að teljast afar ólíklegt í ljósi óheilbrigðra lifnaðarhátta hans og rokkstjörnu lífernis.
Hann var í mikilli yfirþyngd og bruddi allskyns lyfseðilsskyld lyf af mikilli áfergju, slíkt getur hæglega dregið mann til dauða. En kannski er það bara yfirklór frá FBI, mafíósum til þess að fela sannleika? Heyrst hefur að maður að nafninu John Burroughs, sme var þekkt dulnefni Elvisar, hafi keypt flug frá Menphis til Argentínu sama dag og Elvis lést, en það hefur ekki fengið staðfest auk þess er ekkert beint flug var frá Memphis til Argentínu á þessum tíma.
Hvers vegna var nafnið hans rangt skrifað á dánarvottorðið og legsteininn? Hvað raunverulega varð um Elvis, hvort hann lést 16.ágúst 1977 eða mörgum árum síðar eða lifir jafnvel enn góðu lífi á einhverri sólarströnd, hefur löngum verið mörgum aðdáendum tónlistarmannsins og Álhöttum um veröld alla mikil ráðgáta.
En þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri langlífu og mjög svo áhugaverðu samsæriskenningu að dauði Elvis Presley hafi verið sviðsettur og eitt stórt sjónarspil. Yfirgaf Elvis í raun bygginguna sem vér köllum Hótel Jörð eða er hann etv enn í byggingunni og á meðal vor?
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk?
Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni?
Drónarnir hafa flestir sést í og við bandarískar herstöðvar og orkuver sem gæti bent til þess að drónarnir séu að fylgjast sérstaklega með herstöðvum og leita uppi hernaðarleg gögn eða leynilega tækni sem bandaríkin vinna að.
En gætu þessi ógnarstóru fljúgandi fyrirbæri átt heima á herstöðvunum og verið á vegum bandarískra yfirvalda? Hvað ef flýgildin eru hönnuð til þess að fylgjast með almenningi? Þá hefur heyrst að bandarísk yfirvöld hafi tekið að sér að varðveita úkraínskan kjarnaodd en síðar týnt honum og drónadónarnir séu á sveimi í leit að þessum kjarnaoddi.
Önnur skýring er að þarna séu kínverskir njósna drónar á ferð og hefur það verið rökstutt með því að drónarnir sjást oft á sveimi nálægt bóndabýlum og ræktarlandi í eigu kínverskra fyrirtækja. Einhverjir vilja meina að drónarnir komi upp úr sjónum og að á hafsbotni séu risastórar og hátæknilegar herstöðvar kínverja.
Aðrir trúa nokkurnvegin því sama nema segja herstöðvarnar og drónadónana vera á vegum Írana eða jafnvel Rússa. Hvað sem því líður og hvaðan sem þessi flýgildi og drónadónar koma þá er morgunljóst að eitthvað verulega bogið er við þetta mál. Drónadónarnir eru svo margir og svo mikið á víð og dreif um heiminn að það er eiginlega ekki hægt að útsskýra þá.
Jafnvel þó allir miðaldra karlmenn í heiminum hefðu ákveðið að fá drónaæði á sama tíma gætum við ekki útskýrt þessa dróna fjölgun. Enda eru þessir drónadónar langtum stærri en hefðbundnir drónar sem eru aðgengilegir almenningi á almennum markaði og töluvert hljóðlátari en nokkuð sem sést hefur áður. Jafnvel stærstu iðnaðar dónar sem Amazon og fleiri nota til þess að afhenda vörur eru ekki svo stórir. Hver er skýringin?
Þetta er einmitt viðfangsefni nýjasta þáttarins af Álhattinum, hvar þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu samsæriskenningu að „Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin og víðar séu leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur.“
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu.
Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölvar og ragnar þjálfaranum og liðinu. En getur verið að þetta hafi ekkert með liðið, þjálfarann óheppni eða meiðsli að gera? Hvað ef það er verið að svindla á okkur? Getur verið að einhver eða einhverjir hafi mútað dómurunum? Eða að úrslitin séu hreinlega ákveðin fyrirfram og að íslenska liðið hafi í raun aldrei átt séns gegn því gjörspillta ofurefli sem evrópska og alþjóða handknattleikssamböndin eru?
Í þessum þætti af Álhattinum kynna þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér skuggahliðar íþrótta og þá sérstaklega handknattleiks velt upp þeirri spurningu hvort úrslitum á stórmótum í handbolta sé ítrekað og skipulega hagrætt með vitneskju og samþykki alþjóða sambandanna.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum.
Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstjórn bróður síns. Árið 1968 ákveður Bobby Kennedy nokkuð óvænt að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta Lyndon B Johnson í forvali demókrata og sigrar fyrsta forvalið í New Hampshire nokkuð örugglega og stuttu seinna sigrar hann í Kaliforníu.
Allt leit út fyrir að Bobby yrði næsta forsetaefni Demókrata og miklar líkur voru taldar á að hann yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Vinsældir hans voru svo gífurlegar, þvert á alla þjóðfélagshópa. Hann virðist hafa verið dáður af öllum. Algjörlega óháð kyni, kynþætti eða efnahag.
Það var því mikið reiðarslag fyrir bandarískt samfélag þegar hann var myrtur af Sirhan Sirhan á Ambassador hótelinu í Los Angeles eftir að hafa sigrað í forvali Demókrata í Kaliforníu sama kvöld. Sirhan Sirhan, ungur maður af Palestínskum uppruna, vatt sér þá að Bobby nokkuð auðveldlega og óhindrað og skaut hann fjórum sinnum með 22 kalibera byssu. Sirhan var snögglega yfirbugaður af nærstöddum og færður í varðhald.
Upphaflega játaði Sirhan morðið og lýsti því yfir að stuðningur Bobby við Ísrael væri ástæða voðaverksins. Í dagbókum Sirhan fundust blaðsíður fullar af setningunni RFK must die og fjölmörg vitni voru að því þegar Sirhan Sirhan skaut bobby inni í eldhúsi á hótelinu svo þetta ætti að vera nokkuð borðliggjandi mál ekki satt?
Margt er loðið við atburðinn og Robert F Kennedy Jr, sonur Bobby Kennedy, efast um opinberu skýringuna og lýst því yfir að Sirhan Sirhan eigi að fá reynslulausn. Sirhan hefur ítrekað sjálfur lýst því yfir að hann muni ekkert eftir verknaðnum og hefur fólk velt því fyrir sér hvort hann hafi jafnvel verið dáleiddur eða heilaþveginn á einhvern hátt til verksins. Jafnvel af háttsettum aðilum innan bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem var í nöp við Bobby Kennedy.
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guuðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að "Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, hafi verið dáleiddurt af CIA til verksins, Zoolander oolander style"
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða gefa sem flestum tækifæri?
Eða búa aðrar og annarlegar ástæður að baki? Hvað ræður því hvaða fögum er gert hátt undir höfði og hvaða fögum ekki? Hvaða fólk er þetta sem tekur þessar ákvarðanir og í hvaða tilgangi? Skiptir kannski engu sérstöku máli hvað er á námskrá og hvað ekki? Eða er þetta alltsaman þaulskipulagt og vel undirbúið ráðabrugg illa innrætts fólks með myrkar hvatir?
Dæmi eru um það í mannkynssögunni að hin ýmsu yfirvöld hafi beitt menntakerfinu markvisst til þess að gera ákveðinni hugmyndafræði hátt undir höfði eða bæla aðrar hugmyndirniður, m.a til þess að tryggja sjálfum sér enn frekari eða áframhaldandi völd eða koma í veg fyrir einhverskonar uppreisn eða mótmæli borgaranna.
Ef menntakerfið getur aukið þekkingu og færni á ákveðnum sviðum með áherslubreytingum, gætu stjórnvöld þá ekki allt eins ákveðið að halda aftur af ákveðnum fögum eða þekkingu og letja fólk til þess að sækja sér ákveðna þekkingu eða færni í stað þess að hvetja?
Mao í Kína og Nasistarnir í Þýskalandi nýttu menntakerfið grimmt til að heilaþvo þjóðir sínar og ota sínum tota til að selha fólkinu hugmyndafræði sína og dæmi eru um samfélög þar sem yfirvöld hafa keyrt í gegn gífurlegar endurbætur á menntakerfi sínu til þess að ná fram auknum lífsgæðum og velmegun td með aukinni áherslu á hátækni, vísindi eða verkfræði. Önnur samfélög hafa jafnvel lagt ofur áherslu menntun lækna og heilbrigðisstarfsfólks svo hægt sé að koma á heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða.
Það er staðreynd en ekki kenning eða samsæri að stjórnvöld hafa margoft í gegnum tíðina gert róttækar breytingar á menntakerfum og grunn menntastefnu landa sinna og oft með góðum árangri. Hvað er því þá til fyrirstöðu að ákveðin stjórnvöld nýti sér menntakerfið til eigin hagsmuna eða til lýðsstjórnunnar?
Eru yfirvöld raunverulega að undirbúa okkur af kostgæfni fyrir lífið eða eru þau einfaldlega að reyna að gera okkur háð þeirra kerfi og hlekkja okkur í einhverskonar hugmyndafræðilegan þrældóm svo auðveldara sér að stjórna okkur eftir hentugleika?
Þetta og svo margt, margt fleira er snýr að menntakerfi heimsins í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Valdastéttin nýti menntakerfið til þess að framleiða undirgefna borgara.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
https://www.youtube.com/watch?v=6TLo4Z_LWu4 Þessi í heild bara 40 sek
https://www.youtube.com/watch?v=8QBylIs_lXI 00,00-00:19
https://www.youtube.com/watch?v=ICx9wOdtZJE Öll klippan
https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGE 2:20-4:44
https://www.youtube.com/watch?v=1lgeKD-VGtM YES!
https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGE
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki.
Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægrardvöl og oft á tíðum jafnvel fræðandi í leiðinni.
En getur verið að þessi dægurmenning sé ekki einunigs saklaust afþreyingarefni hannað til að stytta fólki stundir og okkur til yndisauka? Hvað ef Hollywood stúdíóin og streymisveiturnar eru að lauma duldum skilaboðum og jafnvel heilaþvotti í afþreyinguna til þess að ganga erinda eiganda sinna eða hulduaflanna?
Eru moldríku jakkafatakakkalakkarnir í Hollywood með stór plön og annarleg markmið um að stýra heiminum og umræðunni í ákveðna átt, svo þeir geti grætt enn meiri pening eða komið sínu fólki að í stjórnmálum?
Eða snýst þetta kannski bara um að reyna að gera gott bíó og þjóna almenningi með því að færa fólki það sem það vill?
Stýra fjölmiðlar samfélaginu eða endurspegla þeir einfaldlega samfélagið hverju sinni? Eða eru hin margumræddu hulduöfl allt í öllu í kvikmynda og skemmtanaiðnaðinum og ekki verður komist hjá því að lenda í heilaþvottavélum iðnaðarins?
Hverjir eiga í alvörunni þessar streymisveitur og kvikmyndaver og hversu mikil raunveruleg afskipti hafa þessir aðilar af efnistökum afþreyingarinnar? Ef einhver? Hittast oligarkarnir og peningapúkarnir reglulega í reykfylltum bakherbergjum og ræða hvaða woke málefni skuli sett á oddinn næst og hvaða hræðsluáróður skuli næst notaður til að stjórna fólki?
Þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum hvar þeir kumpánar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Netflix og stóru Hollywood kvikmyndaverin séu heilaþvottavélar fyrir hulduöflin í samfélaginu.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um leið höfðu þessi fúlmenni og keyrt öfgastefnu sína fram af slíku offorsi að þeim hafði tekist að murkað lífið úr miljónum manna og leggja hálfa heimsálfuna í rúst og gott betur en það.
Að lokum tókst Bandamönnum og Sovétmönnum þó blessunarlega að þjarma nóg að nasistunum svo Hitler og kumpánar gáfust upp og Hitler flúði ofan í neðanjarðarbyrgi sitt, þar sem hann ákvað að binda endi á þetta allt saman og taka bæði inn blásýru og skjóta sig. Eða hvað? Er möguleiki í að Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu 30.Apríl 1945 og komist lífs af til Argentínu?
Lengi hafa verið til sagnfræðingar sem efast hafa um söguskýringuna og bent hafa á að það sé örlítið varasamt að fara að treysta orðum Sovétmanna, sem segjast hafa komið á vettvang eftir að líkið hafði verið brennt og flutt öskuna í burtu og grafið á leynilegum stað.
Það myndi eflaust henta þeim afar vel að stjórna söguskýringunni og koma út einsog einhverskonar sigurvegarar og frelsarar Evrópu. Svo hefur fundist fjöldinn allur af neðanjarðarbyrgjum og leynigöngum í allar áttir, sem staðfest hefur verið, að notuð voru af öðrum háttsettum nasistum, sem síðar dúkkuðu upp í Argentínu og víðar í S-Ameríku.
Þá eru það allir sjónarvottarnir hingað og þangað um heiminn sem eru sannfærð um að þau hafi séð Hitler á vappi, sprelllifandi og kampakátann. Allt frá Danmörku og Noregi til Spánar, Portúgal og jafnvel Kólumbíu, Brasilíu og einmitt Argentínu. Allskonar fólk sem er alveg 100% sannfært um að það hafi séð Hitler sprækan einhversstaðar á stangli. Meira að segja er til fólk sem fullyrðir að þau hafi aðstoðað við að koma Hitler undan huldu höfði.
Eru þetta bara glórulausar staðhæfingar einhverra vitfirringa í óráði eða er eitthvað mögulega til í þessum staðhæfingum? Hvers vegna eyddi Bandaríska alríkislögreglan(FBI) tíma og orku í að rannsaka málið ef ekki er arða af sannindum til í kenningunni? Hvernig stendur þá á því að Josef Stalin, og Dwight D Eisenhower stóðu í þeirri trú að Hitler hafi komist undan? Við erum vissulega með framburð fjölda vitna úr neðanjarðarbyrginu sem segjast öll hafa séð Hitler skjóta sig en þau voru öll nánir samstarfsmenn Hitlers og yfirlýstir nasistar, af hverju ættum við að treysta þeim? Gætu þau ekki allt eins hafa verið með í ráðum?
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór, ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Adolf Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu, heldur komist lífs af og flúið til Argentínu, þar sem hann lifði til gamals aldurs.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna.
Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem eiga sér hugsanlega enga stoð í raunveruleikanum.
Eða eru þau mögulega þau einu sem muna eftir hinum sanna raunveruleika og við hin erum eitthvað að misskilja eða í sýndarveruleika? Hér er um að ræða mjög sambærilega hluti og þeim sem finnast í hinum ruleikanum, bara örlítið frábrugðna. Eða eru mögulega til fleiri en einn veruleiki? Og er kannski hægt að flakka um þessa veruleika eða víddir, bæði óvart og jafnvel vísvitandi?
Þessi meinti misskilningur, eða fölsku minningar, sem einhver vilja meina að sé staðfesting á tilvist víddaflakks hafa verið kölluð Mandela áhrifin og eru nefnd eftir þeirri algengu falsminningu eða misskilningi að Nelson Mandela fyrrverandi forseti Suður Afríku hafi látist í fangelsi og aldrei orðið forseti.
Til eru fjölmörg dæmi um bækur, bíómyndir, teiknimyndir og jafnvel heimsþekkt vörumerki sem fólk er sannfært um að haf eitt sinn verið á einn veg en séu nú á annan veg. Næstum því eins, en samt ekki. Líkt og heimur okkar sé farinn að skarast eða renna saman við annan heim eða aðra vídd sem sé svo ótrúlega lík okkar veröld að erfitt sé að átta sig á muninum.
En hvernig gæti þetta hafa gerst? Hvenær byrjuðu heimarnir að renna saman og fólk að upplifa þessar fölsku minningar og hvað veldur þessu? Er um einn alsherjar misskilning að ræða eða er einhver að rugla í okkur til að skapa sundrungu og óeiningu innan samfélagsins?
Hvað græðir nokkur maður á því að rugla í minningum fólks og valda misskilningi okkar á milli? Er þetta bara gert til þess að fá fólk til að þræta um ómerkilega hluti frekar en einbeita sér að því sem raunverulegu máli skiptir?
Þetta og um það bil allt það sem þú vildir vita um Mandela áhrifin og meira til í þessum nýjasta þætti Álhattarins, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða um tilvist hinna skemmtilegu og áhugaverðu Mandela áhrifa og hvað geti mögulega búið að baki þeim.
Hlekkir á ítarefni:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim.
Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi.
En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í meðlimi sveitarinnar og fljótt fór að bera á orðrómum um mikla vímuefnaneyslu meðlima og þá sérstaklega söngvarns Kurt Cobain. Hann átti I stormasömu sambandi við Courtney Love sem var söngkona grugg sveitarinnar Hole og saman áttu þau eina dóttur að nafni Frances Bean Cobain. Að endingu gekk neyslan það langt að hann sá sér ekkert annað fært en að skrá sig í meðferð á Exodus meðferðarheimilið í Kaliforníu. En einungis degi síðar gengur Kurt út af meðferðarheimilinu og fer heim í bíl með æsku vini sínum sem hafði komið að sækja hann.
Nokkrum dögum síðar finnst Kurt látinn í gróðurhúsi á heimili sínu, þar sem talið er að hann hafi fyrirfarið sér með hagglabyssu. Fljótlega runnu þó tvær grímur á fólk sem töldu afar ólíklegt að Kurt hafi þar sjálfur verið að verki. Benti fólk á þá staðreynd að gífurlega mikið magn af heróíni hafi mælst í blóði Kurt og að afskaplega ólíklegt þætti að hann hefði haft mátt í líkamanum til þess að hleypa af byssunni. Þá eru víst afar fátítt að fólk í heróín vímu skjóti sig og vilja einverjir álhattar jafnvel meina að Kurt sé eini maðurinn í sögunni sem hefur skotið sig í hausinn með hagglabyssu í heróín vímu.
Þá hafa einnig stigið fram einstaklingar sem hafa sagt að Courtney hafi boðið þeim peninga fyrir að myrða Kurt en þessir einstaklingar fundust svo afhausaðir á lestarteinum stuttu síðar.
Sviplegur og óvæntur dauði Kristen Pfaff, bassaleikara Hole, berst einnig í tal og því velt fyrir sér hvort Courtney hafi mögulega einnig haft eitthvað með hann að gera, enda voru Kristen og Kurt milir og góðir vinir og neyslufélagar. Sem gæti hafa valdið öfund eða afbrýðissemi hjá Courtney.
Þetta og margt margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri lífseigu og afar áhugaverðu samsæriskeningu að Kurt Cobain hafi ekki framið sjálfsmorð árið 1994 heldur hafi hann verið myrtur.
HLEKKIR Á ÍTAREFNI
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn?
Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna?
Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu og drottna yfir náttúrunni?
Samsæriskenningin um efnarákir(chemtrails) er síður en svo ný af nálinni og kenningin nýtur merkilega mikils stuðnings víðsvegar um heiminn. Svo virðist vera sem rákirnar megi finna á himnum í svo til hverju einasta sveitafélagi, fylki eða borg í hverju einasta landi varaldar.
Ef um samsæri er að ræða, þá er væntanlega um eitt stærsta og umfangsmesta samsæri veraldar að ræða. Hversu margir eru með í ráðum? Allir flugmenn, flugumferðarstjórar, hleðslu fólk á jörðu niðri? Eða er kannski samsærið falið fyrir þeim öllum líka? Og leynilegum eiturefnum blandað í flugvélabensínið?
Hvað í veröldinni voru Project Cirrus, Project Cumulus eða Project Skyfire? Hvers vegna myndu stjórnvöld og vísindamenn vilja stjórna veðrinu og hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Opinberu skýringarnar eru þær að mögulega megi koma í veg fyrir þurrka og uppskerubrest og þannig hugsanlega einnig koma í veg fyrir kreppur og ef til vill afstýra byltingum og óeirðum. Hvað ef þau eru ekki bara að reyna stjórna veðrinu? Geta þau kannski stjórnað hugsunum okkar og gjörðum með þessum efnum?
Hverju eru þau að spreyja og hvaða heilsufarsleg áhrif hefur það á fólk, plöntur og dýr? Eru ál, baríum og brennisteinn í snefilmagni raunverulega skaðleg og ástæða þess að svo gífurleg aukning hefur orðið í tilfellum krabbameina og alzheimers í heiminum? Eða hefur það kannski meira með hækkandi aldur og auknar lífslíkur fólks að gera?
Hvað í veröldinni er skýja sáning(e.cloud seeding)? Hver eru Council of foreign relations og hvers vegna í veröldinni vilja þau samtök dimma himininn? Getur verið að hér sé hugsanleg lausn á loftslagsvánni og hamfarahlýnun? Eða eru hér á ferðinni gífurlega valdamikil hagsmunasamtök sem bera einungis eigin hag í húfi?
Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sneisafullur af bitastæðu efni, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá stórkostlega skemmtilegu og áhugaverðu kenningu að efnarákum(chemtrails) sé skipulega úðað í andrúmsloftið með annarleg markmið að leiðarljósi.
Hlekkir á ítarefni:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
From the publisher's feed
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni…
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn

471 Listeners

139 Listeners

131 Listeners

27 Listeners

18 Listeners

71 Listeners

68 Listeners

30 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

35 Listeners

16 Listeners

16 Listeners

25 Listeners

11 Listeners