Álhatturinn

Álhatturinn

By ÁlhatturinnArts
Download on the App Store

Álhatturinn episodes

  • Paul McCartney lést í bílslysi árið 1966 og var skipt út fyrir loddara

    Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. 

    Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í lagi hjá unga fólkinu. Plötur þeirra seldust í bílförmum og hvert sem þeir fóru voru þeir eltir á röndum af æstum aðdáendum og enn þann dag í dag njóta plötur þeirra og lög gífurlegra vinsælda. 

    Færri, en þó einhverjir, kannast þó við áhugaverða samsæriskenningu um að einn Bítlanna, Paul Mccartney, hafi látiast í bílslysi árið 1966 og verið skipt út fyrir tvífara sinn og loddara. Í upphafi var bara um einhverskonar flippkattar flökkusögu að ræða, sem virðist aðallega hafa verið rædd í hipstera partýjum og reykfylltum herbergjum á háskóla heimavistum.

    Það breyttist haustið 1969 þegar háskólablaðið Drake Times-Delphic í Iowa birtir grein með fyrirsögninni Paul is dead þar sem sú kenning að Paul Mccartney hafi látist í bílslysi er reifuð. Í október sama ár vekur hinn goðsagnakenndi útvarpsmaður Russ Gibb athygli á málinu í útvarpsþætti sínum, eftir að diggur hlustandi og aðdáandi þáttarins hafði hringt inn í þáttinn og vakið athygli Russ á kenningunni. Eftir það var kötturinn kominn úr tunnunni og sagan dreifðist hratt um heiminn líkt og eldur í sinu. 

    Bítlaaðdáendur sem og aðrir lögðust yfir myndir, texta og annað efni frá Bítlunum og reyndu að lesa í meint falið dulmál eða myndmál, sem kenningarsmiðir vildu meina að Bítlarnir hefðu skilið eftir á framhliðum platna eða í textum laga sinna. Þá voru einnig einhverjir sem vildu meina að með því að spila ákveðin lög Bítlanna afturábak mætti finna enn frekari leynd og dulúðleg skilaboð. En er einhver fótur fyrir þessum kenningum? 

    Lést Paul McCartney raunverulega í slysi á léttbifhjóli sínu árið 1966 eða er bara um reykmettaðar pælingar einhverra misvitra hippa,  með kannski aðeins of mikinn frítíma eða örlítið of óhindrað aðgengi að hinum ýmsu ofskynjunarefnum og vímuefnum að ræða?

    Er eitthvað til í þessari flökkusögu og samsæriskenningu eða er fyrst og fremst um fyndnar og skemmtilegar pælingar rammskakkra háskólanema að ræða?

    Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá langlífu, stórskemmtilegu en mögulega örlítið fjarstæðukenndu samsæriskenningu að Paul McCartney úr Bítlunum hafi látist af slysförum árið 1966 og verið skipt út fyrir loddarann Faul. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • Paul McCartney vs Billy Shears - voice comparison - Yesterday 1965 vs 1973. Very different voices.
    • The Beatles - Revolution 9 (vinyl LP - first 40 seconds backwards)
    • Strawberry Fields Forever - I Buried Paul - TURN UP VOLUME AND LISTEN CAREFULLY!
    • Paul McCartney Recalls The Beatles' 1964 U.S. TV Debut | Letterman
    • The Bizarre Fan Theory Claiming Paul McCartney Is Dead

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 7 min
  • Nýlenduherrar létu granda flugvél Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna

    Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á fólk og ýmsa fór að gruna að ekki væri allt með felldu og mögulega væri þarna eitthvert óreint mjöl í pokahorninu. 

    En hver var Dag Hammerskjöld eiginlega, hvernig hlaut hann þessa stöðu hjá sameinuðu þjóðunum og hví ætti einhver að vilja hann feigann??

    Getur verið að yfirlýsingaglaður og skoðanagjarn Dag hafi aflað sér það mikillar óvildar innan sameinuðu þjóðanna með gengdarlausri baráttu sinni fyrir því sem hann taldi réttlátari og betri heim? Er möguleiki á að nýlenduherrar á borð við Belgar og/eða Bretar hafi hreinlega fengið nóg af þessum óþreytandi réttlætisriddara sem hætti ekki að tjá sig um arðrán og þjófnað vesturveldanna í Afríku og látið koma honum fyrir kattarnef? 

    Hver er The Lone Ranger og hvernig tengist málið belgískum námufélögum og Suður-Afrísku hafrannsóknarstofnunni? 

    Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu en kannski lítt þekktu samsæriakenningu að nýlendunherrarnir hafi látið granda vél Dag Hammerskjöld framkvæmdastjóra sameinuðu þjóðanna. 


    HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • Cold Case Hammarskjöld | Documentary
    • Dag Hammarskjold: The Man Who Built the United Nations
    • The Mysterious Death of a UN Secretary-General
    • Nýjustu fréttir og skjöl í rannsóknum á Hammarskjold
    • UN extends investigation into mysterious death of its former Secretary-general Dag Hammarskjöld in 1961
    • JFK Patrice Lumumba Dag Hammarskjöld CIA Allen Dulles
    • Hammarskjold the Movie
    • Cold Case Hammarskjöld - Exclusive Clip - Hammarskjöld the Flaming Idealist

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 53 min
  • Jörðin er flöt

    Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga?

    Ef eitthvað er að marka flatneskjufræðinga og ákveðna Álhatta á borð við Eric Dubay, Mark Sargent og Patricia Steere þá hafa geimvísindamenn og stofnanir verið að ljúga að okkur, ekki bara í nokkra áratugi heldur í fleiri fleiri aldir og eru ekkert að fara að hætta því í bráð. 

    Allt sem okkur verið kennt um sólina, tunglið, sólkerfið og alheiminn er eitt stórt platgabb og allar meintar geimferðir manna(og hunda) hvort sem er til Tunglsins eða eitthvað annað eru ekkert annað en hugarburður og skáldskapur einhverra brjálaðra spunameistara á vegum ríkisins og hagsmunaðilla. 

    Getur verið að ríkiskassar um allan heim séu mergsognir og blóðmjólkaðir af gráðugum peningaplokkurum, sem hafa selt heiminum einhver falsvísindi um hnöttótta jörð, himingeim og aðrar plánetur þegar staðreyndin er sú að jörðin er flöt og að við búum öll undir einhverskonar glerhjúp? Svífast þessir hnattlingar einskis? 

    Kenningin um að jörðin sé flöt er alls ekki ný af nálinni og einsog við þekkjum af sögubókunum er sú skýring mun eldri en allar hugmyndir manna um að jörðin sé einhverskonar hnöttur eða kúla. Hvað ef að fólk hafði rétt fyrir sér í upphafi en var síðar blekkt? Hvað höfum við raunverulega fyrir okkur í því að jörðin sé hnöttur? 

    Kenningin um að jörðin sé flöt er eldgömul og lífseig og varla lifði svona lengi í gömlum glóðum þessarar kenningar, ef ekki væri nokkur fótur fyrir kenningunni, eða hvað? V

    Í þessum nýjasta þætti Álhattarins ræða vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór einstaklega skemmtilegu og áhugaverða kenningu sem notið hefur gífurlegra vinsælda á samféalgsmiðlu og veraldarvefnum á undanförnum árum, þá skemmtilegu og afskaplega áhugaverðu kenningu að jörðin sé í raun og veru flöt. 

    Hlekkir á ítarefni:

    • BEHIND THE CURVE movie trailer 
    • Convex Earth  - The Documentary - The Flat Earth Scientific Proof
    • LEVEL (Flat Earth Film) 2021
    • Jimmy Kimmel Asks Shaq if He Really Thinks the Earth is Flat
    • Joe Rogan - Neil deGrasse Tyson on Eric Dubay & Flat Earth
    • https://www.youtube.com/@truthavision
    • https://www.youtube.com/@flateartheric
    • https://www.youtube.com/@markksargent
    • Phillip Is Absolutely Baffled by the Men Who Believe the Earth Is Flat | This Morning

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 22 min
  • Valdarán á Seðlabanka Bandaríkjanna leiddi af sér algjöra stjórn á landinu

    Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt.

    Hversvegna ættu einkaaðillar að fá að stjórna magni og flæði peninga í hagkerfinu fremur en ríkið sjálft og hversvegna fá þessir einkaaðillar að prenta peninga af vild án þess að ríkisvaldið hafi eitthvað að segja um það? Eru einkaaðillar kannski betur til þess fallnir að taka vaxtaákvarðanir og sjá um stjórn hagkerfisins, fremur en að setja valdið í hendur dittótra og sérlundaðra atvinnu-pólitíkussa sem stjórnast eingöngu af eiginhagsmunum og eigin metnaðargirni

    JP-Morgan, Rothschild og félagar hans myndu færa fyrir því rök að það væri óráð og hálfgalið að setja slíkar ákvarðanir í hendur stjórnmálamanna enda getur slíkt leitt til óreið og glundroða í hvert sinn sem skipt er um ríkisstjórn eða seðlabankastjóra? Stjórnmálamenn eltast við vinsældir almennings og gætu tekið glórulausar og efnahagslega hættulegar ákvarðanir í tilraun sinni til atkvæðaveiða, með tilheyrandi efnahagslegri áhættu og auknum líkum á sveiflukenndu hagkerfi, á meðan einkaaðillar þurfa ekki að reiða sig á atkvæði eða vinsældir hjá almenningi og eru því líklegri til þess að taka réttar ákvarðanir sem þjóna hagkerfinu öllu, ekki satt

    Eða getur verið að um eitt allsherjar samsæri og plott örfárra ríkra fjölskyldna til að stjórna heiminum sé að ræða, í krafti auðs og fjármagns?

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félgarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að valdarán hafi verið framið á seðlabanka bandríkjanna og hafi leitt af sér algjöra stjórn á landinu.

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    •  Money for nothing heimildamynd um federal reserve
    • Money Masters heimildarmynd
    •  Century of Enslavement: The History of the Federal Reserve"
    • NPR podcast um leynifundinn á bakvið federal reserve 
    • Money, Banking, and the Federal Reserve
    • Escaping the Rat Race: What School Failed to Teach You About Money.

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 26 min
  • Stórfótur (e. Bigfoot) er til

    Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru?

    Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víðar. 

    Mannaparnir eða stórfótarnir eru sumir hverjir ógnar stórir en aðrir smærri, allt eftir því frá hvaða menningarheimi sögurnar eru.

    En þrátt fyrir fjöldan allan af þjóðsögum og munnmælum um þessar gríðarstóru verur þá hefur engum tengist að sanna tilvist þeirra. Engar beinagrindur, hauskúpur eða ummerki um verurnar hafa fundist og ekki svo mikið sem ein hárlufsa, sem tekist hefur að sanna að tilheyri stórfæti eða einhverskonar risavöxnum mannapa. 

    Þá virðist líka allt myndefni af verunum vera frá sjötta eða sjöunda áratug tuttugustu aldar og af einhverjum ástæðum hefur enginn stórfótur náðst á mynd eftir tilkomu myndavélasímanna. Er það vegna þess að stórfætur eru raunverulega ekki til eða er það vegna þess að stjórnvöld um allan heim og vísindasamfélagið þegja og hylma yfir tilvist þeirra? 

    Búa þessar verur mögulega yfir einhverskonar hæfileikum til þess að gera sig ósýnilegar mönnum og tekst þeim sífellt að fela sig fyrir okkur? Mögulega er bara um þjóðsögu eða skáldskap að ræða en hvernig útskýrum við þá allan þennan fjölda vitnisburða og sambærilegra munnmæla frá jafn ólíkum menningarheimum og löndum?

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að stórfótur hinn ógurlegi sé til. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • A Flash of Beauty: Bigfoot Revealed (The Official Documentary)
    • Bigfoot and Wildboy Theme
    • Bigfoot Patterson film hoax solved 2005
    • Shocking New Bigfoot Documentary!
    • Is Big Foot an Inter-dimensional Creature?
    • OVER 1 HOUR OF BIGFOOT ENCOUNTERS
    • Bigfoot Chasing Car in Colorado
    • The Proof Is Out There: The Man Who Killed Bigfoot
    • Is this Sasquatch? He was spotted near Washington mountain passes
    • The UnXplained: Bigfoot Sighting BAFFLES Researchers
    • Top 10 Concerning Bigfoot Evidence The Government Is Hiding From Us
    • Big Foot Sighting " Hi Deff "
    • ‘Bigfoot’ sighting in Colorado?
    • BIGFOOT SIGHTINGS BY MONTH

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 35 min
  • Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap)

    Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans. 

    Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur, gullkeðjur og aðrar vörur sem tengdar eru við gengja lífsstíl seldust eins og heitar lummur.

    En hvað olli þessum skyndilegu og óvæntu vinsældum bófarappsins? Hversvegna fóru plötufyrirtæki allt í einu og að því er virðist upp úr þurru að leggja höfuðáherslu á tónlist og dægurmenningu sem lofsamar eiturlyfjasölu, morð og aðra glæpi? Hvað hefur þetta allt saman með menningarstríð austurstrandarinnar og vesturstrandarinnar að gera og hvers vegna var annað tónlistarfólk í öðrum geirum ekki jafn iðið við glæpastarfsemi? 

    Hvað hvatti þessar stóru útgáfur til þess að ýta undir samfélagsmein eins og morð og fíkniefnaneyslu? Getur verið að plötuútgefendur hafi mögulega haft hagsmuni af því að halda glæpatíðni hárri? Hvað hefur þetta með einkarekin fangelsi að gera og getur verið að eigendur fangelsanna tengist eigendum plötufyrirtækja á einhvern hátt?

    Þetta, stríðið gegn fíkniefnum, deilurnar milli oasis og blur, nýjustu vendingar í rappstríðinu í Chicago og svo margt, margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum af Álhattinum. 

    Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að eigendur plötufyrirtækja og einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum hafi vísvitandi ýtt undir vinsældir bófarapps á 10.áratug síðustu aldar til þess að fylla fangelsin. 

     HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • Ice Cube Admits 90's Gangster Rap was a Government Psyop
    • ÁTRÚNAÐARGOÐIN - Tungumálarar
    • Blondie - Rapture
    • Coolio - Gangsta's Paradise
    • Chief Keef - I Don't Like f/ Lil Reese
    • Scapegoat
    • Fbg Duck - Dead Bitches Official Video
    • King Von "Crazy Story" 

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr
  • Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis

    Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld.

    Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons.

    Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína gegn frumvörpunum SOPA og PIPA sem voru frumvörp sem hefðu takmarkað verulega athafnar og tjáningarfrelsi fólks á netinu. En þökk sé baráttu Aaron og fleiri þá tókst almenningi að stöðva frumvörpin ógurlegu.

    Auk þess að brjótast inn í MIT háskólann og fela þar fartölvu sem hann hafði forritað sérstaklega til þess að stela gífurlegu magni af gögnum á ógnarhraða.
    Fyrir þetta sóttu Bandarísk yfirvöld fast á hælar honum og hugðust draga Aaron fyrir alríkisdóm og skella honum í margra áratuga fangelsi. En á meðan Aaron beið réttarhalda sinna fremur hann öllum á óvörum sjálfvíg í búð sinni. Eða svo segir amk opinbera sagan sem yfirvöld vilja að við trúum.

    En ekki eru allir sem kaupa þessa sögu yfirvalda og telja afar ólíklegt að Aaron hafi fallið fyrir eigin hendi. Getur kannski verið að Aaron hafi fundið eða séð eitthvað af gögnum sem ekki máttu líta dagsins ljós eða komast í hendur almennings?  Hvernig tengist þetta hinum títtnefndu og margumræddu hulduöflum og hvað í veröldinni hefur Epstein góðvinur þáttarins með málið að gera?

    Hversvegna valdi Aaron að brjótast inn í MIT en ekki einhvern annan háskóla og hvernig tengist þetta hinum gífurlega metnaðarfullu "góðgerðarverkefni" One Laptop Per Child?

    Þetta, Julian Assange, Alexei Navalny og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.

     HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • The Internet's Own Boy: The Story of Aaron Swartz | full movie (2014)
    • 'The Murder of Aaron Swartz' - Rumble
    • Dad_ The govt. killed my son, Reddit co-founder
    • President Joe Biden Boasted About Using A Billion-Dollar Loan Agreement With Ukraine As Leverage
    • Aaron Swartz_ How We Stopped SOPA
    • What Is Reddit_ How Reddit became the front page of the internet
    • Hunter Biden on _Beautiful Things_ and his struggles with substance abuse
    • How Downloading Too Much Destroyed Reddit's Founder
    •  One Laptop Per Child
    • Top MIT Official Resigns Over Epstein Donations
    • Cornyn Questions Holder Over Death of Aaron Swartz

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 2 min
  • Tæknin til að klóna fólk er raunveruleg og stjörnum & stjórnmálafólki hefur verið skipt út

    Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor þeirra. 

    En getur verið að þrátt fyrir blátt bann við klónun manna hafi fólk samt verið klónað? Hvað ef að frægum og valdamiklum einstaklingum hefur jafnvel verið skipt út fyrir klóna, sem láta auðveldlega af stjórn, og gera allt sem þeim er sagt þegjandi og hljóðalaust, líkt og strengjabrúður? Ef svo er, hvar eru þessir klónar geymdir á meðan þeir alast upp og vaxa úr grasi eða fæðast þeir kannski fullvaxta? Hver er það sem er að klóna þessa einstaklinga, hvernig og hversvegna? Hverra hagur er að það að skipta þessum aðillum út? 

    Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort það sé mögulega búið að klóna fólk og þagað sé yfir því og skoða strákarnir líka hvort frægum og áhrifamiklum einstaklingum hafi jafnvel verið skipt út fyrir undirgefna klóna sem fylgja fyrirskipunum að ofan í blindni. 

    Strákarnir kynna sér líka hvað í veröldinni hönnunarbörn(e: designer babies) séu og hvernig yfirstéttarfólk á vesturlöndum sækir í auknu mæli í glasafrjóvganir í Kína og öðrum löndum, hvar þau geta “hannað sín eigin börn” með því að velja t.d hárlit, augnlit og önnur útlitseinkenni algjörlega eftir eigin höfði og smekk. 

    Gæti yfirstéttin og hulduöflin gert sjálf sig að ofurmanneskjum sem eru ónæm fyrir allskyns sjúkdómum sem munu herja á almenning í framtíðini? Verða krabbamein sykursýki og aðrir kvillar eingöngu áhyggjuefni okkar pöpulsins í framtíðinni á meðan valdaklíkan og fína fólkið lifir áhyggjulausu lífi laust við alla erfðagalla og hættulega sjúkdóma?

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum Álhattinum.

     HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • Rappers Who Have Been CLONED (Kodak Black, Eminem, Gucci Mane And MORE!)
    • Actor Jamie Foxx speaks out about his mysterious medical issue that landed him in the hospital
    • Designer Babies
    • South Korea’s Dog Cloning Industry
    • Kid Buu Exposes Clone Theory
    • Clonaid Claims First Cloned Human Baby (2002)
    • Doctor Claims He Cloned Human Embryos
    • Eminem ESPN Interview - Notre Dame vs. Michigan Halftime 2013 MMLP2
    • Britney Spears glitch
    • Gene Editing: How CRISPR Will Change EVERYTHING & Create Designer Babies
    • Anderson Cooper mocks Al Roker's frozen pose
    • 10 Famous People Who Look EXACTLY The Same

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 35 min
  • WEF stefna á hinu stóru endurræsingu (e. Great Reset) á fölskum forsendum

    Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl.  En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum).

    Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls kyns hindrunum sem mögulega gætu staðið í vegi fyrir frekari þróun mannkyns. Það þarf að tryggja efnahagslegan vöxt án þess að ganga á náttúruna eða að vöxturinn bitni á framtíðar kynslóðum. Það þarf að tryggja sjálfbæra þróun.

    Trilateral Comission, Club of Rome og Council On Foreign relations eru allt samtök sem gefa sig öll út fyrir þessi sömu óræðu markmið og hafa tekið upp teygjanleg og túlkandi tískuorð sem sín einkunnarorð og gildi.

    En WEF er enmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattarinum. Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að það geti verið að WEF starfi undir fölsku flaggi? Hvað ef þetta snýst ekkert um aukna sjálfbærni eða jafnræði heldur um aukin völd og enn frekari söfnun auðs á fárra hendur.

    Þetta og svo margt margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hin stórmerkilegu en jafnframt furðulegu samtök WEF og velta því fyrir sér hvað felist eiginlega í hinni miklu endurræsingu

     HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • Frá WEF í Davos - COVID-19: The Great Reset
    • Viðtal við Klaus Schwab
    • What is the Great Reset? í orðum WEF
    • The Great Reset auglýsing 
    • You will own nothing be happy auglýsing
    • World Economic Forum's "8 Predictions for the World in 2030"
    • Karl Bretakonungur talar um The Great Reset 
    • Can you rent everything you need in life?
    • How we'll live in 2030?
    • Warnings of ‘Orwellian’ Great Reset
    • How we can stop them from stealing everything from us
    • King Charles | We have no alternative
    • How To Prepare For The GREAT RESET (It's Happening)
    • What is "The Great Reset" | Economics Explained
    • WEF Davos Ræða frá Yuval Noah Harari
    •  Yuval - The Great Reset
    • Yuval | Drugs & Video Games 
    • Dutch banker exposes religion of the elite & who they worship

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 21 min
  • Hamskiptandi eðlufólk er meðal vor og gegnir áhrifastöðum í öllum krókum og kimum samfélagsins

    Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans. 

    En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það?  Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til?

     Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri samsæriskenningum sem til eru en lifir þó góðu lífi og á sér merkilega marga fylgjendur. Svo marga fylgjendur að sjónvarpsstöðvar framleiða heilu þáttaraðirnar um kenninguna og fylgjendur hennar og reglulega er vísað í kenninguna í bíómyndum og annari dægurmenningu. 

    En er eitthvað sem raunverulega styður við kenninguna eða er þetta bara glórulaust en fyndið þvaður misvitra einstaklinga? Hvað hefur þetta td með blóðflokka að gera(ef eitthvað) og hversvegna fæðist sumt fólk með skott? Eru þau kannski afkomendur eðla? Tengist þetta jafnvel á einhvern hátt fornri menningu Egyptalands eða Mesopotamiu? Eða er þetta kannski bara eitt stórt peningaplokk og svikamylla og David Icke og félagar eru einungis að ganga erinda hulduaflanna og í raun gagngert og skipulega að reyna að kasta rýrð á samsæriskenningar og fylgjendur þeirra? Svo eru þau til sem segja kenninguna ekkert annað en dulbúið gyðingahatur. 

    Hvort sem að eðlufólk er til og hversu valdamikil sem þau eru í raun verður amk að viðurkennast að kenningin er í það minnsta áhugaverð þó sumt fólk kunni að kalla hana gjörsamlega galna. 

    Þetta er einmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór reyna að ræða á eins vitrænan en jafnframt glórulausan hátt og á annað borð er hægt um þá kenningu að einhverskonar eðlufólk gangi á meðal vor og sé búið að koma sér fyrir í öllum krókum og kimum samfélagsins þar sem þau stjórna í raun öllu bakvið tjöldin. Allt frá stjórnmálum til skemmtanaiðnaðarins. 


    Hlekkir á ítarefni sem er til  umræðu í þættinum:

    • THEY LIVE Clip - Obey (1988)
    • Species (1995) | Official Trailer
    • David Icke claims that he's the "Son of God"
    • David Icke talks conspiracy theories - BBC News
    • David Icke: Conspiracy of the Lizard Illuminati (Part 1/2)
    • David Icke Animated Video - The Spider, The Cult & The Pyramid
    • Ancient Aliens: The Hollow Earth Theory (Season 10) | History
    • Richard E. Byrd's second trip to the Antarctic, 1935
    • Louis C.K. Asks Donald Rumsfeld If He Is A Lizard
    • Crab people....crab people

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 2 min

About Álhatturinn

From the publisher's feed

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.


Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni…

More shows like Álhatturinn

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

71 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners