
Sign up to save your podcasts
Or


Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á tunglið.
Í huga þessara Álhatta var einungis um einn allsherjar blekkingarleik og sjónarspil í boði Hollywood að ræða og Neil Armstrong Buzz Aldrin og Michael Collins ekki aðeins fóru aldrei til tunglsins heldur yfirgáfu þeir hreinlega aldrei gufuhvolf jarðar.
Hvernig stóð til dæmis á því að bandaríski fáninn gat gefið frá sér skugga í margar mismunandi áttir líkt og ljós kæmi úr mörgum áttum, þegar eina ljóstíran kom frá sólu? Voru tunglfararnir kannski með kvikmyndaljós með sér í ferðinni? Hversvegna blakti fáninn líkt og í rammíslenskri sunnanátt ef hann var í raun í þyngdarleysi á tunglinu
Hvernig gat eiginlega Neil Armstrong skilið eftir sig djúp fótspor í tunglinu ef tunglfarið sjálft, sem var töluvert stærra og þyngra, skildi enga djúpa gíga eftir sig? Hvernig í veröldinni þoldu hinir meintu tunglfarar allan þann bilaðslega kulda og gífurlega hita sem myndast getur á tunglinu og afhverju sjást engar stjörnur á himninum á neinum af þeim ljósmyndum sem þeir tóku í ferð sinni? Ættu stjörnurnar einmitt ekki að sjást betur úti í geimnum.
Hvað hafa heimsóknir tunglfaranna til Íslands árin 1965 og 1967 með þetta að gera, hvað í veröldinni er eiginlega þetta Van Allen belti og hvernig tengist þetta allt kvikmynda leikstjóranum Stanley Kubrick?
Er jörðin raunverulega hnöttótt eða er hún kannski kartöflulaga og hvernig stendur þá á því að allar myndir frá NASA sýna jörðina hnöttótta? Getur verið NASA séu að blekkja okkur?
Var um raunverulegt einstakt og stórkostlegt tækniundur og mannlegan sigur að ræða sem sameinaði heimsbyggðina alla? Eða voru bandarísk yfirvöld hreinlegar orðin þreytt á því að tapa geimkapphlaupinu fyrir Sovétríkjunum svo þeir settu á svið einn allsherjar leikþátt með hjálp Hollywood og kvikmyndatækni.
Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn oh Ómar Þór ræða eina þekktustu og klassískustu samsæriskenningu fyrr og síðar. Sjálfa tungllendingu Bandaríkjamanna.
Hlekkir á ítarefni sem er til umræðu í þættinum:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar.
Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög.
Áður höfðu kaup Roman Abramovich á Chelsea vissulega vakið efasemdir einhverra stuðningsmanna annara liða og einhverjir kváðu oft við þegar Real Madrid og Barcelona kepptust við að slá metin yfir dýrustu leikmenn sögunnar á sínumtíma. En sú gagnrýni var ekkert í líkingu við þá gagnrýni sem komið hefur fram eftir kaup olíusjóðs sameinuðu arabísku furstadæmanna á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
En hvað hefur þetta eiginlega að gera með Álhatta og samsæri kann einhver að spyrja? Er möguleiki á að eigendur Manchester City séu það auðugir og valdamiklir í krafti auðjöfra sinna að það sé farið að hafa áhrif á dómara og dómgæslu í úrvalsdeildinni almennt?
Í nýjasta þættinum af Álhattinum ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór þá skemmtilegu samsæriskenningu að Manchester City séu ekki bara skekkja leikinn og kaupa titla með kaupum á öllum dýrustu og bestu leikmönnum á markaðnum heldur séu þeir einnig að hafa óeðlileg áhrif á dómara í ensku úrvalsdeildinni.
Hlekkir á efni rætt í þættinum:
Hvaða úrvalsdeildarlið græða mest á VAR?
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag.
Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.
Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um.
Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrrverandi forseti borgarstjórnar og einn fremsti Simpsons sérfræðingur landsins.
Spádómar ræddir í hlaðvarpinu
Top 4 spádómar
Hlekkir á annað ítarefni sem er nefnt í þættinum:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna?
Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað síðsumars og í haust 2023 eru sagðir vera umfangsmestu skógareldar í sögu Hawaii og mestu náttúruhamfarir sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum á síðustu hundrað árum.
En voru þetta raunverulegar og óumflýjanlegar náttúruhamfarir líkt og stjórnvöld og opinbera skýringin vilja meina? Eða getur verið að eitthvað mun dekkra búi að baki? Er möguleiki að eldarnir hafi verið kveiktir viljandi og þá hvers vegna?
Einnig ræða þeir undarlegar ákvarðanatökur lögreglu og annara viðbragðsaðila sem virðast um það bil allir hafa tekið eintómar rangar ákvarðanir auk þess að ræða það einfaldlega hvað í veröldinni háþróuð örbylgjuvopn séu.
Orkuveita Hawaii og eignarhald hennar ber einnig á góma og þeirri spurningu velt upp hvernig eldur geti kviknað út frá rafmagnslínum löngu eftir að rafmagnið hefur verið rofið af línunum.
Strákarnir spá einnig í það hvers vegna yfirvöld skrúfuðu fyrir vatnið í miðjum björgunaraðgerðum og takmörkuðu þannig möguleika slökkviliðsins til þess að berjast við eldana og hvað bjó að baki þeim ákvörðunum að loka öllum vegum út af meintu hamfarasvæðinu?
Getur verið að hús með bláum þökkum brenni síður en önnur hús og hvernig í veröldinni þetta eiginlega lögreglustjórum á Hawaii og hans fortíð?
Og hvað hafa Oprah Winfrey og Dwayne “The Rock” Johnson með málið að gera. Blackrock, Vanguard, Lockheed Martin og aðrir reglulegir vinir þáttarins eru að sjálfsögðu til umræðu auk John Podesta "uppáhalds" miljarðarmæringi Guðjóns Heiðars.
Þetta og margt meira í nýjasta þætti Álhattarins.
LINKAR Á VIDEO Í ÞÆTTINUM:
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni.
Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að hvíslast út sögur um ótryggð og framhjáhald þeirra hjóna. En það var ekki bara stormasamt sambandið sem Díana vakti athygli fyrir. Því auk þess að þykja einstaklega vel gefin og máli farin þá þótti hún einnig einkar glæsileg og var hún talin ein fegursta kona Bretlands.
Eftir nokkur hræðilega erfið og óhamingjusöm ár í hjónabandi skyldu Karl og Díana að borði og sæng árið 1992 þó lögformlegum skilnaði hafi ekki lokið fyrr en 1996.
Eftir það voru bæði Karl og Díana mikið á milli tannana á fólki og stöðugt fjallað um þau í breskum götublöðum og fjölmiðlum.
Það var svo að kvöldi 31.ágúst 1997 sem Díana og elskhugi hennar Dodi Fayed létust í árekstri ásamt bílstjóra sínum, Henri Paul, í Pont de Alma göngunum í París. Upphaflega var talið að um slys vegna háskaaksturs væri að ræða, sem skrifa mætti á glæfralegan eltilingarleik undan ágengum blaðaljósmyndurum en síðar breyttist skýringin og skuldinni skelt á bílstjórann, sem var sagður hafa verið dauðadrukkinn og sótölvaður.
En hvað ef að ekki var um slys að ræða? Getur verið að áreksturinn hafi verið planaður af konungsfjölskyldunni til þess að taka Díönnu og Dodi úr umferð?
Var samband Díönnu og Dodi í óþökk fjölskyldunnar eða getur verið að pólitísk barátta Díönnu, td barátta hennar gegn jarðsprengjum, hafi verið það sem kom henni í koll?
Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum?
Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum við einhverntímann heyrt talað um félög einsog Skulls & Bones, templarana, frímúrara ofl. En þekktast þeirra allra, af undanskildum Frímúrurum kannski, er þó eflaust fyrirbærið Illuminati. Hulduhópurinn og meinta valdaklíkan sem samsærissinnum og Álhöttum um víða veröld er svo tíðrætt um.
En þó flest okkar hafi kannski einhverntímann heyrt um Illuminati einhversstaðar á veraldarvefnum eða í sjónvarpsþáttum & kvikmyndum, þá gera sér kannski færri grein fyrir því nákvæmlega hvað Illuminati er. Hvaða fólk er þetta sem stjórnar heiminum bakvið tjöldin líkt og brúðuleikhússtjórar og hvert er endanlegt markmið þeirra? Hvernig er hægt að ganga til liðs við Illuminati og hvernig er ákvarðanatöku og valdastrúktur háttað innan svona leynireglna? Hversu stórir fundir eru þetta og hversu reglulega eru þeir haldnir.
Í þessum þætti af Álhattinum fjalla Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór um þá vinsælu og víðförlu samsæriskenningu að heiminum sé leynilega og skipulega stjórnað bakvið tjöldin, af valdagráðugu fólki sem tilheyrir leynireglunni Illuminati.
Strákarnir ræða m.a um furðuleg og afar óræðin fyrirbæri einsog World Economic Forum, Trilateral Commission, Club of Rome, Bilderberg Group, Bohemian Grove ofl hópa sem virðast allir hafa sameiginleg eða mjög sambærileg markmið.
Afhverju er allt þetta stjórnmalafólk í sífellu að funda með einhverjum vafasömum miljarðamæringum og jakkafatakakkalökkum í reykfylltum bakherbergjum bakvið luktar dyr? Snýst þetta í alvöru eingöngu um tengslamyndun og að auðvelda samskipti eða viðskipti milli landa eða býr eitthvað mun dekkra og alvarleg að baki? Afhverju þarf elítan eiginlega öll þessi mismunandi samtök og félög ef þau ganga í raun öll út á það sama? Hversu mikið og oft er hægt að ræða um alþjóðavæðingu, sjálfbærni og framtíðarskipan efnahagsmála án þess að tala einfaldlega í hringi?
Eru aukin alþjóðleg viðskipti og sjálfbærni kannski af hinu góða og hver veit nema þessir fundir snúist eingöngu um það að gera heiminn að betri stað fyrir alla með aukinni sjálfbærni, hagvexti og alþjóðahyggju? Eða er þetta alltsaman blekking og gildra til þess að hreppa almenning í hlekki? Er raunverulega verið að blekkja okkur öll eða er þetta bara einhver endemis vitleysa og þvæla?
Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn?
Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu um afdrif og örlög Titanic.
Getur verið að Titanic hafi í raun aldrei farist og að um annað skip hafi verið að ræða? Eða var Titanic grandað vísvitandi til þess að taka af lífi óþægilega einstaklinga sem stóðu í vegi J.P Morgan og viðskiptafélaga hans?
Hvort var Titanic ótrúlega óheppilegt slys eða þaulskipulagt tryggingasvik? Hvað hefur þetta með seðlabanka Bandaríkjanna að gera? Hvernig blandast Hersey súkkulaði inn í málið og hvað varð um systurskipin Olympic og Brittanic eftir atvikið hörmulega?
Málsmetandi aðilli þáttarins er Bjarni Jónsson tónlistar spekúlant, frumkvöðull og athafnamaður sem hefur m.a komið að skipulagi tónlistarhátíða á borð við secret solstice og komið á fót nikotínpúða fyrirtæki sem framleiðir cbd nikótípúða.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra.
Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim.
Eru geimverur til? Eru þær greindar eða bara einfaldar örverur? Hafa þær heimsótt jörðina? Ef svo er, hvar eru sönnunargögnin og af hverju eru ekki allir að tala um þetta?
Til eru endalausar sögur af geimverum að heimsækja jörðina, vitnisburður við misgáfulegt fólk sem segist hafa verið brottnumið og mörg okkar hafa séð myndefni af fljúgandi furðuhlutum í misgóðum gæðum.
En hvað er til í þessu?
Gæti verið að yfirvöld séu vísvitandi að láta okkur halda að þær hafi heimsótt okkur af annarlegum ástæðum til þess að dreifa athygli fólks frá mikilvægari málum?
Eru þetta falsfréttir og hugarburður ruglaðra einstaklinga með mikilmennsku brjálæði? Eru þetta einfaldlega fake og photoshoppuð video? Ef aðeins ein af þessum sögum, vitnisburðum eða myndefni er raunverulegt - þá myndi það kollvarpa heimsýn okkar sem jarðarbúar.
Þetta og margt fleira munu þeir félagar tækla í þessum þætti sem sem tekur á kenningu margir vilja meina að sé ein mikilvægasta samsæriskenningin af þeim öllum.
Þátturinn er tekinn upp og birtur í júlí / ágúst 2023.
Áhugavert ítarefni:
Gimball fljúgandi furðuhluturinn frá Pentagon
https://www.youtube.com/watch?v=QKHg-vnTFsM
Margskonar video af fljúgandi furðuhlutum
https://www.youtube.com/watch?v=HW7wfetKAU0
Nýlegur vitnisburður fyrir þinginu í BNA
https://www.youtube.com/watch?v=7ZDZGLaWEak
Viðtal við fólkið sem sá fljúgandi furðuhlut í skólanum í Ástralíu
https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs
Viðtal við Buzz Aldrin, geimfara
https://www.youtube.com/watch?v=ZNkmhY_ju8o
Unacknowledged heimildamyndin
https://youtube.com/watch?v=iXxeGUcmGFs&feature=share
Sirius heimildamyndin
https://youtu.be/5C_-HLD21hA
Egyptar og geimverur
https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs
Gömul málverk og geimverur
https://www.youtube.com/watch?v=39hMIgshgSo
https://www.youtube.com/watch?v=l-yNxkCLGjw&pp=ygUWcGFpbnRpbmdzIGV2aWRlbmNlIHVmbw%3D%3D
https://www.youtube.com/watch?v=vBLKYhfwyc4
Viðtalið við Bob Lazaar sem segist hafa unnið á area 51
https://open.spotify.com/episode/7Gg4Qi578G5SXoEtaLVVpx?si=25f24c69b43a41cf
https://www.youtube.com/watch?v=2GRjgBVw9Pk
Útskýring á Project Blue Beam - Yfirvöld eru að blekkja okkur
https://www.youtube.com/watch?v=wLZTaCL4yA0
Viðtalið við Travis Walton sem segist hafa verið brottnuminn
https://open.spotify.com/episode/0mCfpeY0Ga4meTanFzOkkL?si=81281143aef647c6
Viðtalið við Ryan Graves, orrustuflugmann í BNA hernum
https://open.spotify.com/episode/68t6BZRHenCslyLLaviW1H?si=cb499f7fcc724b
Grein um litlu geimveruna sem fannst í Chile
https://edition.cnn.com/2018/03/22/health/atacama-skeleton-mystery/index.html
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón.
Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni.
Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna algjört kjaftæði en fjölmargir aðdáendur um allan heim segjast sjá miklar breytingar á Avril síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og þetta hreinlega sé ekki sama manneskjan.
Er hin raunverulega Avril enn á lífi? Eða hefur henni verið skipt út fyrir klón/tvífara? Er hún fangi í dýflissu níðinga eða lést hún kannski í bílslysi? Af hverju myndi einhver skipta henni út og hvar væri á bakvið slíkan óverknað?
Strákarnir gefa einkunn á skalanum 1-10 í byrjun þáttarins sem og í lok þáttarins og kemur þá í ljós hversu mikið eða lítið þeir hafa breytt um skoðun í afstöðu sinni til kenningarinnar.
Hér má finna ítarefni sem minnst er á í þættinum:
Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=5vCRFCLdvkQ
Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=zCecV_hg1FM
Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=9pqRQlpkdWE
Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=LiaYDPRedWQ
Heimildarmyndin hans Guðjóns - https://www.bitchute.com/video/4Ivy8v4sXWZw/?fbclid=IwAR1sCn8dlKJZ2fhJuBJ9un616OodO8wRxe7MKby_aqDJQU-_n7eDta3Obt0
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkjunni í sitt eigið persónulega einræðisríki, þar sem enginn er óhultur. Nokkuð sem virðist eiga jafnt við um hans nánustu fjölskyldu sem og æðstu samstarfsmenn, sem hafa margir hverjir þurft að þola ótrúlega meðferð og niðurlægingu í nafni trúarinnar og agans.
Strákarnir fara vel yfir hið miskunnarlausa valdarán sem átti sér stað eftir dauða Hubbards árið 1986 þegar Miscavige var rétt um tvítugt. Þeir félagar skoða hvernig hinum metnaðarfulla unga manni tókst að rýma brautina og hrekja réttmæta arftaka á borð við hjónin Pat og Anne Broeker út í kuldann og algjöra einangrun. Hvað varð raunverulega um Pat Broeker og af hverju sá kirkjan ástæðu til að eyða yfir 10 milljónum dollara í að láta einkaspæjarana Paul og Greg Powell elta hann á hverjum einasta degi í tvo áratugi? Var Pat mögulega með leynileg skjöl í fórum sínum sem gátu steypt Miscavige af stóli og afhjúpað svikin við hinstu óskir Hubbards?
Félagarnir skoða hrollvekjandi vitnisburði þeirra sem þekkja leiðtogann best og hvernig hann herjar á sína nánustu með aðferðum sem minna einna helst á vinnubrögð mafíu. Hvaða sögu hefur Ron Miscavige faðir Davids að segja um soninn, sem hann kynnti sjálfur fyrir söfnuðnum? Eftir að Ron flúði samtökin árið 2012 voru sömu Powell-feðgarnir og njósnuðu um Broeker hjónin fengnir til að vakta hvert einasta spor hans í skiptum fyrir 10.000 dollara á viku. Getur virkilega verið að David hafi skipað einkaspæjurum sínum sitja hjá aðgerðarlausir án þess að grípa inní og láta föður sinn hreinlega deyja þegar þeir sáu hann grípa um brjósti sér á bílastæði og virðast fá hjartaáfall? Þegar spæjararnir hringdu í David í geðshræringu og báðu um leiðbeiningar var svarið einfalt, kalt og hrollvekjandi: „Ef það er hans tími til að deyja, látið hann þá deyja. Ekki grípa inn í.“
Stóra spurningin sem brennur á öllum er svo hvar í ósköpunum Shelly Miscavige sé niðurkomin en eiginkona leiðtogans hefur ekki sést opinberlega í tæp 20 ár. Álhatturinn kafar einnig ofan í dularfullt andlát móður hennar, Flo Barnett, sem sögð er hafa framið sjálfsvíg með fjórum skotum úr löngum Ruger-riffli. En hvernig getur smágerð veikburða eldri kona skotið sjálfa sig þrisvar í brjóstið og svo í höfuðið með tæplega metra löngu vopni þar sem hún náði varla til gikksins? Strákarnir kynna sér rjúkandi byssukúluna sem lögreglan gat aldrei útskýrt: hvers vegna fundust fimm eydd skothylki á vettvangi þegar aðeins fjögur skot hæfðu líkamann? Hvað varð um fimmta skotið?
Allt þetta og fleiri stórar níþungar sleggjur í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér hvort vísindakirkjan stundi skipulagðar njósnir og pyntingar á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar.
Support the show
UM ÁLHATTINN
Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.
Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
From the publisher's feed
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni…
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn

471 Listeners

139 Listeners

131 Listeners

27 Listeners

18 Listeners

71 Listeners

68 Listeners

30 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

35 Listeners

16 Listeners

16 Listeners

25 Listeners

11 Listeners