Álhatturinn

Álhatturinn

By ÁlhatturinnArts
Download on the App Store

Álhatturinn episodes

  • Ísraelar vissu af yfirvofandi áras Hamas 7. október og leyfðu henni að gerast

    Hryðjuverkaárásir Hamas á Ísrael 7.Október 2023 eru einn svívirðilegasti og grimmilegasti gjörningur seinni tíma, ef ekki sögunnar. Þar sem fjöldinn allur af blásaklausum borgurum allt frá ungabörnum til gamalmenna var myrtur á hrottafneginn og viðrustyggilegan hátt af blóðheitrum öfgamönnum. Allt í nafni trúar.

    Síðan þá hafa geysað gífurleg átök á Gaza sem hafa kostað gífurlegt magn mannslífa úr báðum fylkingum. Átökin virðast bara ágerast og ágerast og ekki einu sinni Bandaríkin eða Trump virðast geta miðlað málum eða stuðlað að friði eða miðlað málum. Gereyðingin á Gaza er gífuleg og ekki sér fyrir endann á þessum viðbjóðslegu og tilgangslausu blóðsúthellingum og stríðsátökum.

    En hvað ef koma hefði mátt í veg fyrir þetta allt saman? Hvað ef Ísraelsmenn vissu af yfirvofandi árásum Hamasliða með góðum fyrirvara en kusu af einhverjum ástæðum ekki að aðhafast neitt til að stöðva þær? Hvaða ástæður gætu Ísraelsher og ísraelska ríkisstjórnin haft til þess að hunsa aðvaranir og leyfa slíkum voðaverkum að gerast? 

    Getur verið að nokkurt ríki standi bara aðgerðalaust hjá á meðan óvinir murka lífið úr þegnum þess? Og ef svo er hvaða ástæðu gæti ríkið eða ríkisstjórnin haft til þessa að leyfa slíkum viðbjóði að gerast á sinni vakt? 


    Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í atburði 7.Október 2023 og kynna sér þá áhugaverðu kenningu að Ísraelsk yfirvöld hafi vitað af árásunum fyrirfram en vísvitandi ákveðið að aðhafast ekkert til þess að koma í veg fyrir þær og þess í stað sitja aðgerðarlaus og leyfa þeim að gerast.

    Hvaða hugsanlegan hag gætu ísraelsk yfirvöld haft af slíku aðgerðarleysi og hversu trúverðugt er það að nokkur stjórnvöld séu tilbúin að fórna eigin þegnum í einhverju ímyndar eða almannaálits -stríði?

    Þetta og margt margt fleira skringilegt og áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort Ísraelsmenn hafi hugsanlega fræðilega kannski vitað af fyrirætlunum Hamas 7. október fyrirfram og af einhverjum ástæðum kosið að aðhafast ekkert.

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 59 min
  • Fyrirboðum um áform hulduaflanna er plantað í dægurmenningu áður en þau raungerast (e. Predictive programming)

    Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áhugavert fyrirbæri sem kallað hefur verið forvirk forritun(e.predictive programming), þar sem dægurmenning virðist spegla eða jafnvel undirbúa almenning fyrir atburði áður en þeir raungerast. Sagan er þannig ekki einungis skrásett og skjalfest af sagnfræðingum heldur einnig skrifuð og skipulögð af handritshöfundum, leikstjórum og fréttastofum sem móta sameiginlega sýn almennings á heiminn í gegnum undirmeðvitundina.

    Þeir félagar fara yfir dæmi sem hafa vakið upp stórar spurningar og mikla undran. Þá kannski sér í lagi meðal Álhatta. Í The Lone Gunman birtist td árás á World Trade Center mánuðum fyrir 11. September, þar sem markmiðum yfirvalda um nauðsyn þess að  að finna nýja ógn eða óvin eftir endalok kaldastríðsins er lýst í smáatriðum.  Í BBC Panorama: London Under Attack var dregin upp sviðsmynd samhæfðra sprenginga í neðanjarðarlestum Lundúna, sem endurspeglaði atburðina 7. júlí 2005 af ótrúlegri nákvæmni. Áður en sprengingarnar áttu sér stað. Í kvikmyndinni Contagion birtist svo farsótt sem virðist óhugnanlega keimlík COVID-19. 

    Eru þetta aðeins ótrúlega óheppilegar tilviljanir, einhverskonar sammannlegt innra innsæi eða markviss sáðsetning hugmyndafræðilegra fræja í hugum fólks? Er kannski hægt að venja heilar þjóðir við ógnir og eftirlit með því að sýna ógnirnar nógu oft í skáldskap? Munum við frekar samþykkja aukið eftirlit og skert frelsi og réttindi ef við höfum séð það í dægurmenningu okkar? Normaliserar dægurmenningin kúgun og eftirlit svo yfirvöld þurfi ekki að eyða orku í það?  Hversu stórt hlutverk leikur dægurmenningin í að móta afstöðu okkar og skoðanir? 

    Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór kanna mörkin milli lista og valds og velta því fyrir sér hver sé munurinn  milli þess að segja sögur og að stjórna frásögninni. Þeir skoða hvort dægurmenningin sé aðeins spegill samtímans eða verkfæri til að móta framtíðina. Erum við að lesa of mikið  í tilviljanir eða er um kerfisbundið mynstur að ræða, sem mögulega er ætlað til þess að forrita okkur? Kannski er forvirk forritun ekki spádómur, heldur hluti af leikriti þar sem við öll leikum hlutverk án þess að vita af því eða hafa veitt samþykki fyrir því. 

    Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjast þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að fyrirboðum um áform hulduaflanna sé plantað í dægurmenningu okkar áður en atburðir raungerast(e.predictive programming).


    HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • https://www.youtube.com/watch?v=5P77bUdE4p4&list=RD5P77bUdE4p4&start_radio=1
    • https://youtu.be/Avj7Wbb-7FE?si=PvCka2atS1recQy4
    •  https://youtu.be/zZOn6rrpU-Q?si=gPrVRDkUS9QqiM-6
    • https://youtu.be/x7uIjg9dtoI?si=JRJ4EYAIHUqjIgZ4
    • https://youtu.be/x7uIjg9dtoI?si=JRJ4EYAIHUqjIgZ4
    • https://www.youtube.com/watch?v=NMzfCYvd3JA
    • https://www.youtube.com/watch?v=CmqqiVlT06M
    • https://youtu.be/rIZ205ccX8M?si=AkCLsCBnHTJxqJeA
    • https://youtu.be/oGFVySHbeqA?si=F35GdJKne3LkgRMc

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 30 min
  • P2: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 2

    Kæru Álhattar!

    Álhatturinn er kominn yfir á Pardus Hlaðvarps samfélagið og alla þætti má finna á eftirfarandi slóð: www.pardus.is/alhatturinn

    Við munum halda áfram að setja teasera fyrir þættina á Spotify og Apple en fyrir þau sem vilja heyra okkur kryfja málefnið til mergjar þá eru þættirnir fullri lengd á Pardusnum.

    Bestu kveðjur,

    Guðjón, Haukur og Ómar

    ----

    Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástríðu fyrir rökræðum og stjórnmálaumræðu og Charliei. Hann átti eldheita og dygga stuðningsmenn en líka blóðheita andstæðinga sem gjörsamlega hötuðu hann, einungis vegna skoðana hans. Fólk sem að var við það að froðufella af reiði í hvert sinn sem Charlie leyfði sér að tjá sig um sín hjartans mál. 

    Charlie var heldur ekkert heilagt þegar kom að rökræðum og var til í að ræða um öll málefni hvar og hvenær sem er. Hann viðraði skoðanir sínar ítrekað og óheflað jafn þegar almenningur eða erlend öfl töldu þær ekki réttar eða heppilegar. 

    Svo á björtum september degi í Orem í Utah var hann skotinn til bana af leyniskyttu, á viðburði sem Turning Point stóð fyrir þar sem byssueign almennings var eitt af umræðuefnunum. Viðburðurinn er tekinn upp frá öllum sjónarhornum, sendur út í beinni og dreifist um netið á ógnarhraða. Líkt og eldur í sinu. Og líkt og hendi sé veifað vöknuð strax grunsemdir  á netinu. Var þetta bara einmanna veikur einstaklingur með byssu eða hluti af einhverju stærra plotti? 

    Hvað ef  erlent óvinaríki eða stór erlend leyniþjónusta stóði á bakvið morðið? Bandaríkin eiga vissulega marga óvini en hvað gæti Charlie hafa sagt eða gert til þess að kalla fram slík viðbrögð?Í þessum síðari þætti af Álhattinum um hræðilegt morð Charlie Kirk velta strákarnir því fyrir sér hvort að ísraelska leyniþjónustan hafi mögulega skipulagt morðið. 

    Allt þetta og margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort morðið á Charlie Kirk hafi verið plott til að kveikja borgarastyrjöld í Bandaríkjunum

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 2 min
  • P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2

    Hvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti 

    Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn  dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta. 

    Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn og  sama útlit sem fóru meiraðsegja í sömu skurðaðgerð hjá sama lækni án þess að vera skildir eða tengjast á nokkurn hátt. 

    Eða sagan sem sögð er í Three Identical Strangers, þar sem þrír ókunnugir menn sem þykja furðulega líkir komast að því að þeir eru þríburar. Svo er það Laura Buxton sem sleppti blöðru sem endaði í höndum annarrar tíu ára stúlku með sama nafn. Tilviljun? Eða villa í gagnagrunni alheimsins?

    Tsutomu Yamaguchi, maðurinn sem lifði af bæði Hiroshima og Nagasaki. Ótrúleg tilviljun eða bara óvenjulega óheppinn gæi.  Galli í forrituninni? Svo eru það ótrúleg líkindi með morðunum á  Abraham Lincoln og Henry Ford. Dæmin úr sögunni eru mýmörg og hvert öðru ótrúlegra og furðulegra. 

    Erum við frjálsar manneskjur í raunveruleikanum eða forrit í buggy tölvuleik sem enginn er lengur að viðhalda? Í þessum seinni hluta hermiveröldarþáttarins fara Guðjón, Haukur og Ómar í gegnum frægustu tilvikin og vega og meta hvort þau séu bara tilviljanir eða sönnun þess að við búum í illa forrituðum sýndarveruleika og hermiveröld.

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 4 min
  • P2: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 2

    Í þessum síðari hluta um hina svokölluðu nýju heimsskipan, e:New World Order, halda þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór lengra ofan í kanínuholuna og skoða djúpt ofan í kjölin á kenniingunni. Hvað er eiginlega málið með alla þessa undarlegum fundi duldra áhrifavalda með skrýtna framtíðarsýn sem virðist ætluð okkur öllum  án þess að nokkur hafi nokkurn tíma spurt okkur álits eða að kosið hafi verið um hana. Fundir á borð við Bilderberg, WEF, Club of Rome og Trilateral Commission hafa lengi verið á radar Álhatta  en færri vita hvað fer þar raunverulega fram. Enginn fréttaflutningur, engar upptökur, engin dagskrá opin almenningi og samt virðast ríkisstjórnir heimsins fylgja ákvörðunum þesssara funda eftir í blindni í kjölfarið eins og ekkert sé sjálfsagðara.

    Strákarnir velta því fyrir sér hvernig það getur staðist að ókjörin samtök og „ráðstefnur“ með fín og viðkunnaleg nöfn og glansmyndir geti haft svo mikil áhrif á allt frá loftslagsmálum og hagkerfi til lýðheilsu, menntunar og jafnvel mataræðis. Hver er það sem ákveður að allir eigi að vera með stafrænt auðkenni og fá kolefniskvóta? Hver ákvað að samfélög framtíðarinnar ætti að byggjast á miðstýrðu eftirliti, samfélagslegri stýringu og reglugerðum sem virðast alltaf koma utan frá, en enda sem stjórnvaldsákvarðanir án mikillar umræðu eða aðkomu almennings?

    Þeir félagarnir skoða einnig Club of Rome og þær kenningar  að mannfjöldinn sjálfur sé mesta ógn mannkyns og hvernig sú hugmyndafræði hefur smám saman smogið inn í stefnumótun ríkja um allan heim, oft undir yfirskini sjálfbærni, velsældar og öryggis. En ef markmiðið er að bjarga heiminum, af hverju fær almenningur aldrei að taka þátt í ákvarðanatökunni? Og hvers vegna virðist öll gagnrýni á þessa þróun afgreidd sem samsæriskenningar og bull, sama hversu vel rökstudd hún er?

    Þeir Guðjón, Haukur og Ómar ræða líka áhrif WEF og hvernig það virðist nánast orðið eins konar stjórnkerfi handan ríkisvaldsins. Þar sem hagsmunaaðilar og „óháðir sérfræðingar“ fá að móta stefnu sem síðan verður að lögum og almenningur fær ekkert að segja. Hvað í ósköpunum merkja slagorð á borð við The Great Reset, Build Back Better eða One Health og hvað í veröldinni er eiginlega Stakeholder Capitalism? Er þetta sameiginlegt átak mannkyns í átt að bjartari framtíð? Eða nýtt kerfi þar sem völdin færast frá kjörnum fulltrúum til þeirra sem mæta á rétt fundarboð?

    Og ef þetta eru bara góðmenn í jakkafötum að reyna að gera sitt besta, hvers vegna er allt svona leynilegt, lokað og óræðið?  Og hvers vegna eru þetta alltaf sömu gömlu gráu jakkafatakakkalakkarnir á öllum þessum fundumm? Algerlega óháð því hver eða hverjir eru við völd? Og hvers vegna virðist alltaf vera búið að ákveða allt áður en almenningur fær tækifæri til að spyrja spurninga? Er raunverulega verið að reyna að bjarga heiminum eða eru þetta bara virkilega vel markaðsett heimsyfirráð?

    Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagarnir halda áfram að  ræða líklega  yfirgripsmiklu samsæriskenninguna, hugmyndina um að leynilega valdaklíka stefni að hinni nýju heimsskipan(NWO). Þar sem meiri og meiri völd færast á hendur færra og færra fólks. Fólks sem aldrei þarf að svara spurningum eða verða fyrir gagnrýni almennings.. Fólks  sem enginn kaus og vill helst að þú haldir áfram að hlýða, borga reikninga og halda kjafti



    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 49 min
  • P1: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 1

    Til er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka vanhæfni stjórnmálafólks eða einhverskonar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurin sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla. 

    Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New World Order“ (NWO) er líklega ein sú langlífasta og yfirgripsmesta af þeim öllum. Þar er því haldið fram að leynileg alþjóðleg elíta og  nokkurs konar valdaklíka úr röðum stjórnvalda, bankamanna og iðnjöfra vinni í skjóli nætur að því að koma á nýrri heimsskipan. Heimi þar sem þjóðríki eru leyst upp, sjálfsákvörðunarréttur landa afnuminn, og mannkynið situr allt undirgefið undir grjóthörðu miðstýrðu eftirlitskerfi elítunnar.

    En hverjir eru þessir huldumenn og konur í myrku reykfylltu bakherbergjunum?  Er þetta bara öfgakennt rugl og þvaður einhverra vitfyrringa með alvarlegar ranghugmyndir eða vel skjalfest saga sem teygir sig langt aftur? Hvernig tengist þetta Bilderberg-hópnum, frímúrarareglunni, WEF og World Bank? Var Maastrichtar-sáttmálinn bara eitt smátt skref í átt að NWO? Og hvers vegna er eins og enginn hafi nokkurntíman kosið um þessi „framtíðarsýn“? Hvar er lýðræðiið í því. 

    Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort að NWO sé raunveruleg þaulskipulögð áætlun  voldugra afla, til að sameina heiminn undir einni risavaxinni alheimsstjórn, sem mun stýra almenningi eins og  Sims karakterum. Eða hvort það sé einfaldlega einn stór misskilningur, þar sem ræðuhöld og opinberar stefnumótandi áætlanir hafa verið rangtúlkaðar af tortryggnum netverjum með full mikinn frítíma.

    Hvað er það sem veldur því að þessi kenning heldur áfram að lifa og dafna? Hverjir eiga að fá að ráða í hinni nýju heimsskipan  og hverjir verða undir? Hvað felst í slagorðum eins og „Build Back Better“, „The Great Reset“ og „One World Government“ þegar þau eru skoðuð í samhengi við valdafólk á Davos?

    Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þætti Álhattarins, sem er einungis fyrri hlutinn af tveimur, þar sem þeir félagar velta því fyrir sér hvort leynileg valdaklíka stefni að hinnu nýju heimsskipan(e: new world order) bakvið tjöldin. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • https://youtu.be/PjszCrNUvZE?si=nRdHX7BWxOGVsuu7

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 12 min
  • P2: Mannleg losun gróðurhusalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 2

    Hver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a

    Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öll haft rangt fyrir sér er það?

    Að ógleymdum öllum vísindamönnunum, sem samkvæmt hamfarhlýnunar harmakveiknurum, eru allir alltaf sammála um að hamfarahlýnun sé í gangi allstaðar og ekkert annað komi til greina. En er það  raunin? 

    Hvað ef að við mannfólkið höfum í raun lítil sem engin áhrif á loftslag eða hitastig jarðar? Eru þetta kannski bara glórulausar og óraunhæfar ranghugmyndir brjálaðra vísindamanna með mikilmennskubrjálæði? Hefur mannfólkið raunverulega öll þessi áhrif eða eru þetta bara hroki og hleypidómar í okkur mannfólkinu? Kannski erum við ekki eins megnum og við teljum? 

    Ef staðreyndin er sú að mannfólkið ber í raun einungis ábyrgð á 18% hluta af þeirri aukningu sem orðið hefur í losun koltvíoxíðs  og í raun bara um 4% heildarmagnsins á jörðinni. Hvaðan koma líka þessar fullyrðingar og skýrslur um að allir vísindamenn séu alltaf allstaðar sammála um að hamfarahlýnun af mannavöldum sé í gangi og hversu stór hluti þessara svokölluðu sérfræðinga og vísindamanna veit ekki einusinni afþví að þeir séu á þessum listum? Vega 18% virkilega meira en 82%? 

    Hafa falsvísindi, blekkingar og platgabb tekið yfir vísindaheiminn og heilaþvegið almenning með einhverju froðusnakki og frati? 

    Eða eru þetta allt falsfréttir, misskilningur og blekkingar ginnkeyptra Álhatta sem skortir vísindalæsi? Eru Trump og Álhattar að misskilja lífið og tilveruna eða hefur hulduöflunum tekist að heilaþvo okkur öll með brúðuleikriti sínu þar sem hinir meintu og svokölluðu vísindamenn eru notaðir sem strengjabrúður og áróðursmaskínur til þess að sannfæra almenning um að allt sé á leið til fjandans svo auðveldara verði að stjórna okkur? Okkur er sagt að þetta liggi allt fyrir klippt og skorið og að staðreyndirnar séu algjörlega óumdeildar og óvéfengjanlegar, svart á hvítu. En er það?

     Er allt vísindafólk alltaf sammála? Passar það við hugmyndir okkar um það hvað raunveruleg vísindi séu? Eflum við þekkingu mannfólksins með því að setja aldrei spurningar við ráðandi skoðanir eða viðmið og gildi? Hverjum hentar það? Almenning? Yfirvöldum? Valdastéttinni? Öreigunum? 

    Þetta og svo margt margt fleira spennandi í þessum síðari þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fjalla um þá skemmtilegu og áhugaverðu samsæriskenningu að mannfólkið hafi lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar eða loftslagsbreytingar. Sem okkur almenningi hefur verið selt sem vísindalega staðreynd og almenna vitneskju. En hvernig vitum við í raun að þetta rétt sé rétt?

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • https://youtu.be/_6qkjPRmNsA?si=AtNv3jDC6dMOHdcM
    • https://youtu.be/1fYlGk1UnK0?si=o2pEppisLmUG5WkO
    • https://www.youtube.com/watch?v=mhDrCPfKgG4
    • https://www.instagram.com/p/DEwsXmat0Tb/
    • https://www.youtube.com/watch?v=O-RRd743XwE

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 11 min
  • P1: Mannleg losun gróðurhúsalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 1

    Það eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já,  eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar. 

    Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breytingum á veðurfari jarðar sem séu ekki bara yfirvofandi heldur þegar hafnar og nauðsynlegt er að stöðva. Ef marka má umræðuna. Þetta ku vera stórt og grafalvarlegt vandamál og við berum öll sameiginlega ábyrgð. Öll verðum við að standa saman sem ein heid og leggja okkar vatn á vogarskálarnar til þess að stöðva þessa stórhættulegu hamfarahlýnun sem við, mannfólkið, berum ábyrgð á og enginn annar. Amk ef marka má meginstraumsmiðlana, Al Gore og almenna umræðu. 

    En til er fólk sem efast um þessar breytingar og þá aðalega þátt mansins í þessum breytingum. Eru þessar verðurfars og loftslagsbreytingar kannski bara ósköp eðlilegar og hluti af náttúrulegu ferli jarðarinnar sem hefur átt sér stað mörgum sinnum áður og mannskepnan hefur lítil sem engin áhrif á, sama hvað við reynum? Hefur jörðin ekki gengið í gegnum fjölmörg hita og kulda tímabil áður og ætíð komið aftur tilbaka ósködduð? Hverjar eru þessar svokölluðu gróðurhúsalofttegundir og í hverju felast hin meintu gróðurhúsaáhrif? 

    Líklega efast fáir um tilvist þessara efna eða möguleg áhrif þeirra á loftslagið en til er fólk sem hefur sett spurningamerki við raunverulegan þátt mannsins í losun þessara tegunda.

    Og hvernig getur mannfólkið hægt á þessum breytingum ef mannfreskjan ber í raun bara ábyrgð á örsmægðarhlut þessara 0,04%? Hverju breytir það þó við hættum allri losun koltvíoxíðs ef við mannfólkið losum bara 15% alls þess koltvíoxíðs sem er í andrúmsloftinu? 

    Þetta og svo fjölmargt annað áhugavert og spennandi í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá afar áhuugaverðu en jafnframt fremur umdeildu samsæriskenningu að mennsk losun gróðurhúsalofttegunda hafi lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • BREAKING: Karoline Leavitt Reveals What The Drones Were Flying Over New Jersey
    • GRETA THUNBERG & ANDREAS MAGNUSSON - Never Gonna Give You Up - Climate Live Sweden (HD)
    • CONTINENTAL U.S. HURRICANE LANDFALL FREQUENCY
    • Climate Change Hoax - Scam of a Century - New Movie
    • Al Gore Warns Polar Ice May Be Gone in Five Years
    • The Planet is Fine - George Carlin
    • Joe Rogan reveals THE TRUTH about Climate Change to Mel Gibson | JRE Podcast

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 37 min
  • P1: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 1

    Hvað ef allt sem þú sérð, finnur og upplifir er ekki raunverulegt? Hvað ef veröldin sem við búum í er ekkert annað en sýndarveruleiki, fullkomlega hannaður til að blekkja skynjun okkar og halda okkur frá hinum sanna raunveruleika? Þetta er spurningin sem liggur til grundvallar hermiveraldarkenningunni (e.Simulation Theory), sem hefur vakið ófáar vangaveltur heimspekinga, vísindamanna og samsærissinna undanfarin ár og í raun frá upphafi siðmenningar. Eða amk frá því heimspeki varð til. 

    Kenningin byggir á þeirri hugmynd að allt sem við upplifum sé hluti af risa tölvuforriti, hönnuðu af einhverskonar æðri og tæknivæddari siðmenningu, óþekktum valdaöflum eða jafnvel „forriturum“ sem stjórna heiminum. Frá Platón til hugmynda Nick Bostroms og James Gates hafa margir fjallgreindir og virtir vísindamenn haldið því fram að við búum í sýndarveruleika þar sem alheimurinn fylgir lögmálum sem minna meira á tölvukóða frekar en náttúrulögmál.

    James Gates hefur meðal annars bent á að undirstöðulögmál eðlisfræðinnar innihaldi mynstur sem líkjast villuleiðréttingarkóðum, svipuðum þeim sem notaðir eru í tölvukerfum. Og skammtafræðin, með dularfull fyrirbæri eins og tvírifatilraunina og skammtaflækjur, vekur spurningar um hvort raunveruleikinn sé aðeins „renderaður“ þegar við horfum á hann, líkt og grafík í tölvuleik.

    Svo eru það „Mandela-áhrifin,“ sem hafa áður verið til umfjöllunar hjá Álhattinum.  Furðuleg augnablik þegar fólk man eftir atburðum sem aldrei áttu sér stað, eins og breytingar á nafni Coca-Cola eða dánardegi Nelson Mandela? Einhverskonar sameiginlegar falsminningar. Gætu slík fyrirbæri verið villur í kerfinu? Er alheiminum  í raun stýrt  af ósýnilegum öflum sem tryggja að við sjáum aðeins það sem þau vilja að við sjáum?

    Í þessum þætti Álhattarins kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór djúpt í þessa stórmerkilegu kenningu. Þeir skoða hvernig hugmyndir Platós, Descartes, Immanuels Kant og nútíma vísindamanna eins og James Gates og Nick Bostrom varpa ljósi á mögulega hermiveröld. Þeir kanna líka hvernig skammtafræði, strengjafræði og poppmenning, eins og The Matrix og The Truman Show, varpa ljósi á eðli veruleikans. Eða óeðli. 

    En hvað ef þetta er allt samsæri? Hvað ef raunveruleikinn sem við trúum á er ekki annað en blekking? Erum við í raun leikmenn eða karakterar í stórkostlegum tölvuleik eða er alheimurinn einfaldlega flóknari en við höfumskiling á? Erum við öll keppendur á óraunveruleikunum? Þetta og margt fleira í þessum djúphugsaða, vonandi vitsmunalega og stórskemmtilegt þætti Álhattarins.

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 57 min
  • P2: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 2

    Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). 

    Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og aðra óvini fólksins og láta handtaka þá og fleygja lyklunum. Q talaði yfirleitt í óljósum margtúlkanlegum setningum sem oftar en ekki fólu í sér einhverskonar spurningar frekar en staðhæfingar og flestum færslunum var ætlað að vekja fólk til umhugsunar frekar en koma með einhverjar fullyrðingar eða spádóma. 

    Fylgisfólk Q, svokallaðir Qanons, hófu svo að dulkóða og túlka þessar færslur Q og reyna að átta sig á því hvað væri verið að vísa  hverju sinni. Svo hægt væri að upplýsa almenning. Voru fjöldahandtökur á barnaníðings demókrötum framundan? Myndi Trump nota ákveðin orð , handabendingar eða myndmál í næstu ræðu sinni?  Q kom oft með vísbendingar um eitthvað sem Trump átti að segja eða gera í ræðu á næstunni og svo raungerðist það, var þar með búið að sanna að Q væri náinn samstarfsaðilli Trump? Eða vara bara um hreinar tilviljanir að ræða?

    Voru þetta ef til vill óheiðarlegar tilraunir skuggalegra hulduuafla  og djúpríkisis til þess að stöðva framgöngu Trump og hreinsunarstarfs hans í Washington? Starfa stjórnmálafræðingarnir og sérfræðingarnir nánast allir fyrir jakkalakka og fjörulalla?  Varaði Q fólk við því að svindlað yrði á Trump í kosningunum 2020 og getur verið að kosningunum hafi raunverulega verið stolið? 

    Er Q mögulega mótvægið við hulduöflin sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda?? Mun Q bjarga heiminum frá tortímingu og glötun? Eða er Q einmitt merki um hið gagnstæða og vísbending um hnignun samfélagsins og forheimskun mannfólksins eins og sérfræðingarnir vilja meina?

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er fyrri partur af tveimur, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hina fremur umdeildu en einstaklega áhugaverðu samsæriskenningu að hinn dularfulli Q, sem póstaði nafnlaust á umræðu síðunni 4Chan, sé háttsettur aðilli sem hafi náin tengsl við Trump og stjórn hans. 


    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • QAnon: How a conspiracy theory turned into a radical movement
    • Q póstar
    • V For Vendetta Speech - Seeds of Revolution! HD
    • Michael Flynn talking about army of digital soldiers
    • Sidney Powell - Anthony Weiner Laptop! “Hardened investigators, literally threw up. It’s bad!
    • WATCH: Trumps, Obamas, Clintons and Carters share a pew at funeral of President George H.W. Bush

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    3 hr 16 min

About Álhatturinn

From the publisher's feed

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.


Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni…

More shows like Álhatturinn

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

71 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners