Álhatturinn

Álhatturinn

By ÁlhatturinnArts
Download on the App Store

Álhatturinn episodes

  • P1: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 1

    Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). 

    Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og aðra óvini fólksins og láta handtaka þá og fleygja lyklunum. Q talaði yfirleitt í óljósum margtúlkanlegum setningum sem oftar en ekki fólu í sér einhverskonar spurningar frekar en staðhæfingar og flestum færslunum var ætlað að vekja fólk til umhugsunar frekar en koma með einhverjar fullyrðingar eða spádóma. 

    Fylgisfólk Q, svokallaðir Qanons, hófu svo að dulkóða og túlka þessar færslur Q og reyna að átta sig á því hvað væri verið að vísa  hverju sinni. Svo hægt væri að upplýsa almenning. Voru fjöldahandtökur á barnaníðings demókrötum framundan? Myndi Trump nota ákveðin orð , handabendingar eða myndmál í næstu ræðu sinni?  Q kom oft með vísbendingar um eitthvað sem Trump átti að segja eða gera í ræðu á næstunni og svo raungerðist það, var þar með búið að sanna að Q væri náinn samstarfsaðilli Trump? Eða vara bara um hreinar tilviljanir að ræða?

    Ef marka má meginstraums miðlana og mennta og menningarelítuna þá er ekkert að marka eitt aukatekið orð sem að Q sagði og allir hans spádómar eru innantómt merkingarlaust þvaður og einhverskonar stæk upplýsingaóreiða og falsflóðQ Anons, eru málaðir upp sem fáfrótt, ginnkeypt og jafnvel rasískt pakk sem samfélaginu stafar mikil ógn af og jafnvel ýjað að því að þagga verði niður í þessu fólki og koma í veg fyrir frekari dreifingu þessarar kenningar. 

    Voru þetta ef til vill óheiðarlegar tilraunir skuggalegra hulduuafla  og djúpríkisis til þess að stöðva framgöngu Trump og hreinsunarstarfs hans í Washington? Starfa stjórnmálafræðingarnir og sérfræðingarnir nánast allir fyrir jakkalakka og fjörulalla?  Varaði Q fólk við því að svindlað yrði á Trump í kosningunum 2020 og getur verið að kosningunum hafi raunverulega verið stolið? 

    Er Q mögulega mótvægið við hulduöflin sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda?? Mun Q bjarga heiminum frá tortímingu og glötun? Eða er Q einmitt merki um hið gagnstæða og vísbending um hnignun samfélagsins og forheimskun mannfólksins eins og sérfræðingarnir vilja meina?

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er fyrri partur af tveimur, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hina fremur umdeildu en einstaklega áhugaverðu samsæriskenningu að hinn dularfulli Q, sem póstaði nafnlaust á umræðu síðunni 4Chan, sé háttsettur aðilli sem hafi náin tengsl við Trump og stjórn hans. 


    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • QAnon: How a conspiracy theory turned into a radical movement
    • Q póstar
    • Ultimate QProofs
    • Doc"Q"mentary About The Plan To Save America And The World

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 33 min
  • P2: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 2

    Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið  umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa  þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu. 

    Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint út sagt ógeðfeldar.

    Elijah Wood, Corey Feldman og aðrar barnastjörnur og upplifun þeirra í Hollywood berast í tal auk þess er Álhatturinn kemst að því að Alefantis á og rekur einnig Borðtennis Pizzastaði í fleiri löndum, sem gætu mögulega hafa tekið við hlutverki Comet Ping Pong í barnaníðinu, eftir að upp komst um staðinn í Washington.

    Þetta og svo margt margt fleira áhugavert og undarlegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór halda áfram að kryfja hina umdeildu en jafnframt allt áhugaverðu kenningu sem kennd hefur verið við Pizzagate. 

    Er um stórhættulega upplýsingaóreiðu sem getur ógnað lýðræðinu og vitsmunalegri umræðu að ræða, líkt og stóru meginsstraumsmiðlarnir vilja meina? Eða er eitthvað gruggt í vatninu í Washington og James Alefantis er að baka pizzur með óhreint mjöl í pokahorninu? 


    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • Dr. Phil Kendall Trafficking Full Episode
    • #PizzaGate Everything You Need To Know About
    • PIZZAGATE/PEDOGATE
    • The PIZZAGATE Evidence You Will NEVER See In The Mainstream Media
    • 'PIZZAGATE KILL ROOM DISCOVERED @ PEGASUS MUSEUM! OWNED BY JAMES ALEFANTIS' - 2017
    • Pizzeria owner targeted by fake news stories speaks out
    • Actor Corey Feldman Exposes Pedophile Hollywood Elite
    • Elijah Wood Says There is a 'Major' Pedophilia Problem in Hollywood
    • Going undercover to catch a serial paedophile | 60 Minutes Australia
    • MARINA ABRAMOVIC SPIRIT COOKING
    • monica-peterson-who-traveled-to-haiti-to-investigate-sex-trafficking-was-suicided-when-she-linked-the-clinton-foundation-caracol-industrial-complex/

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 43 min
  • P1: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 1

    Í Október og Nóvember 2016 birtu Wikileaks fjölda tölvupósta úr persónulegu tölvupóstfangi John Podesta, kosningastjóra Hillary Clinton. 

    Fljótlega lagðist fólk, og þá kannski sérstaklega úr röðum andstæðinga Hillary, yfir tölvupóstana og hóf leit að einhverju bitasstæðu og krassandi sem mögulega mætti nýta til þess að koma höggi á Hillary. 

    Ekki leið á löngu þar til fólk áttaði sig á að það væri eitthvað verulega bogið við orðalag sumra tölvupóstanna og ekki væri allt með felldu. Meginstraums fjölmiðlarnir sýndu tölvupóstunum og málinu þó minni áhuga og töldu næsta víst að gagnalekinn kæmi frá Rússum og væri partur í herferð þeirra til þess að hafa áhrif á kosningarnar í Bandaríkjanna. Julian Assange var sagður ógn við þjóðaröryggi og Wikileaks sakað um að ganga erindi Rússa og vinna gegn lýðræðinu og réttarríkinu. 

    En um hvað snýst málið eiginlega og hvaða tengingu hefur þetta við Pizzastað í Washington DC? Pizzagate er líklega ein umtalaðasta og að sumra mati umdeildasta samsæriskenning síðari ára. Hugmyndin um stóran og þaulskipulagðan barnaníðshring valdamikilla einstaklinga í Washington sem hittist reglulega á fjölskylduvænum pizzastað og fremur þar mislindisverk og stundar þar satanískar helgiathafnir hljómar auðvitað eins og eitthvað úr frekar slæḿri bíómynd eða illa skrifaðri vísindaskáldsögu, en er kannski eitthvað til í þessu? 

    Af hverju ættu td háttsettir aðilar innan Demókrataflokksins og eigandi pizzastaðar stöðugt að vera senda tvíræða tölvupósta sín á milli þar sem þeir ræða flatbökur og pylsur? Hvers vegna halda svo margir demókratar fjáraflanir og safnanir á pizzastað sem fyrst og fremst er hugsaður fyrir börn og unglinga?  Eru Demókratar bara svona rosalega mikið áhugafólk um borðtennis og tölvuleiki? Og hvernig er hægt að eyða 65000 bandaríkjadala í pizzur og pylsur á einni kvöldstund? 

    Er valda fólkið í Washington skipulega að misnota börn inni á veitingastöðum í Washington eða eru álhattar heimsins að missa sig í að reyna að ráða í eitthvað dulmál sem ekki er til staðar? 

    Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er fyrri hluti af tveimur, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hina mjög svo umdeildu en jafnframt ótrúlega áhugaverðu samsæriskenningu sem kennd hefur verið við Pizzagate. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • Creepy Joke About "Little Boys" at Comet Ping Pong in Washington, D.C.
    • Marc Dutroux - the beast from Belgium (Crime / serial killer documentary)
    • Julian Assange Implies DNC Staffer Was Assassinated
    • Pizzagate: Are Democrats Harvesting Children’s Blood? - Jordan Klepper Fingers the Conspiracy
    • "Pizzagate" suspect charged after allegedly firing shot in D.C. restaurant
    • Elon Musk Bizarrely Tweets About Pizzagate, Then Deletes Post: Robby & Brie 

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 12 min
  • P Diddy er Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins

    Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar. 

    Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar af samskiptum sínum við Didday og hafa þó nokkrir aðilar lýst því hvernig Diddy misnotaði þau kynferðislega. 

    Aðrir hafa lýst dýrslegum og svæsnum kynsvöllum heima hjá Diddy og djöfullegum partíum sem gengu langt út fyrir öll velsæmismörk jafnvel hörðustu glæpamanna. Allt saman var þetta svo tekið upp á myndavélar sem hafði verið komið fyrir í hverjum króka og kima í risa stórri höll Diddy. Tugir ef ekki hundruðir myndavéla og myndbandsupptökur fundust við húsleit á heimili Diddy og mögulegt er að hann sé á leið í fangelsi það sem eftir lifir ævi sinnar. 

    Flestar fjalla sögurnar þó um hin svæsnu kynsvöll og djöfullegu teiti sem Diddy hélt í höllum sínum og hafa einhverjir gert að því skóna að þarna hafi Diddy verið að reyna að safna saman vafasömu efni af valdamiklu fólki til þess að eiga höggstað á þetta fólk í framtíðinni og mögulega kúga það til allskyns athafna sem það annars væri ekki til í.  Ekki svo ósvipað öllum viðbjóðnum og því sem fór fram í híbýlum Jeffrey Epstein. 

    Allt þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy sé Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • JUSTIN BIEBER's 48 HRS with DIDDY!!
    • JUSTIN BIEBER JOINS DIDDY'S DIRTY MONEY CREW!
    • Justin Bieber Gets EMOTIONAL About 'Protecting' Billie Eilish
    • 1990 Drew Barrymore interviews (Oprah and Arsenio Hall)
    • Drew Barrymore's Classic First Appearance | Carson Tonight Show
    • 2Pac - Hit 'Em Up (Dirty)
    • Gene Deal Reveals List Of HOLLYWOOD MEN Diddy SLEPT WITH (Jamie Foxx, Leo Di Caprio?!)
    • Gene Deal On Diddy Allegedly Having Cameras In Every Room & Blackmailing Celebrities & Politicians
    • DMX - Spazzes Out The Industry
    • 2005: Diddy & The Lox HEATED Argument On Live radio Over Contract Dispute
    • Katt Williams on Hollywood Drug Use & Parties
    • Dave Chappelle Will Not Wear A Dress . Hence.. Africa!
    • Katt Williams on Martin Lawrence & Big Momma's House 2

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 43 min
  • P2: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 2

    Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver,  í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar og fræðingar í þessum efnum spá og spekúlera hvernig pýramídarnir urðu til og hversvegna. 

    Sumir þessara, oft á tíðum sjálfskipuðu, fræðinga hafa eignað geimverum eða öðrum framandi verum heiðurinn að byggingu pýramídanna en aðrir vilja meina að samfélag manna hafi á öldum áður verið mun háþróaðra og tæknivæddara en fornleifafræðingar og annað fræðifólk telur.

    Eða getur verið að Egyptar hafi notast við einhverskonar hraðþornandi steypu sem þeir helltu í einhverskonar form eða skapalón til að móta steinana jafnóðum og píramídarnir voru byggðir? Eða notuðu þeir kannski einhverja sérstaka tíðni eða bylgjulengd til þess að lyfta steinunum upp? Eða gengu kannski risar um jörðina og þessir risar byggðu píramídana og fóru jafnvel létta með það? 

    Í þessum seinni hluta Álhattarins um píramídana í Egyptalandi ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram um Egyptaland til forna og hvaða aðrar skýringar gætu hugsanlega fræðilega legið að baki byggingu píramídanna. 

    Allt þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • The Mummy Official Trailer #1 - Brendan Fraser Movie
    • The Mystery Of The Great Pyramid | Graham Hancock
    • Ancient Apocalypse | Official Trailer | Netflix
    • Ancient Aliens_ Great Pyramid's Shocking Precision (Season 12)  History
    • Egyptian Pyramid Building Technique Reveal By Wally Wallington
    • Wally Wallington lifts 20 Ton Block By Hand?
    • Ancient Aliens_ Egyptian Mysteries Hide Proof of UFOs
    • Old Paintings with UFOs
    • Ancient Aliens_ Hidden Chamber Discovered in Great Pyramid
    • TESLA KNEW The Secret of the Great Pyramid: Unlimited Energy
    • Moving Large Pyramid Blocks: Testing the Wet Sand Theory
    • The Casing Stones & Pyramidion of The Great Pyramid
    • WERE THE GIANTS IN EGYPT THE BUILDERS OF THE PYRAMIDS?
    • The Science of Ancient Acoustic Levitation | How The Pyramids Were Built?
    • Ancient Aliens_ The Great Pyramids Are Power Plants

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 46 min
  • P1: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 1

    Pýramídarnir í Egyptalandi eru að flestra mati eitthvert merkasta byggingar og verkfræði -afrek mannkynssögunnar og eru þeir eina af upphaflegu sjö undrum veraldar sem enn standa í dag. Pýramídarnir í Egyptalandi eru fjölmargir og vissulega mis merkilegir og áhugaverðir en þekktastir og langumtalaðastir eru pýramídarnir 3 í Gísa. Þar sem Pýramídinn mikli í Gísa er langvinsælastur og mikilfenglegastur.

    En hvernig má það vera að Egyptar hafi búið yfir svona gífurlega mikilli verkkunnáttu og skipulagi fyrir svo óralöngu síðan? Hvernig náðu Egyptar að gera Pýramídana svona nákvæmnlega hornrétta og fullkomna? Má það virkilega vera að Egyptar hafi byggt hinn mikla Pýramída í Gísa á einungis 20 árum? Þrátt fyrir að í Pýramídanum mikla séu uþb 2-3 miljónir steina sem eru á bilinu 2-80 tonn hver? Ef það er satt þá hefðu Egyptar þurft að hlaða á bilinu einn stein á  fimm mínútna fresti allan daginn, alla daga í 20 ár samfleytt án þess að stoppa nokkurn tíma.

    Þá hafa ýmsir bent á að Egyptar hefðu einnig þurft að ferja þessa þungu steina rúmlega 800km leið að byggingarsvæðinu sem má ætla að sé heljarinnar verk og krefist bæði gífurlegs mannafls og enn frekari verkfræði kunnáttu. Aðrir hafa einnig bent á að varla séu til nægilega sterkir byggingarkranar í dag til þess að lyfta svo þungum steinum og jafnvel ef þeir kranar væru til þá væru ef til vill ekki til neinir vírar eða kaplar sem réðu við þungann. Hvernig má þá vera að slík tækni og kunnátta hafi verið til fyrir mörg ár þúsundum síðan?

    Getur mögulega verið að sögubækurnar séu einfaldlega að ljúga að okkur?  Og er þá vísvitandi verið að ljúga að okkur í einhverjum annarlegum tilgangi eða hafa sagnfræðingar og fornleifafræðingar einfaldlega rangt fyrir sér af því að þau vita ekki betur?

    Þetta og svo margt, margt fleira í þessum fyrri þætti af tveimur þar sem vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að sögubækurnar séu mögulega að ljúga að okkur um pýramídana í Egyptalandi. 

    Málsmetandi aðili þáttarins er Ólafur Jóhann Sigurðsson séntilmaður, lífskúnstner og „næstum því fornleifafræðingur“. 

    HLEKKIR Á ÍTAREFNI

    • Stargate (1994) Official Trailer HQ
    • Egypt Pyramid math
    • All 3 Giza Pyramids Correspond Directly to 432
    • The Great Pyramid uses simple 11:14 right-angled triangle geometry
    • Unlocking the Secrets of Egypt's Pyramids 
    • Building The Great Pyramid of Giza
    • How did they build the Great Pyramid of Giza?
    • GIZA - The Holy Grail of Geometry
    • GREAT PYRAMID & SACRED GEOMETRY

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 17 min
  • P2: Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell gengu erinda vestrænna leyniþjónusta | Hluti 2

    Það efast varla nokkur manneskja um þá staðreynd að Jeffrey Epstein  hafi verið illa innrættur fantur og fúlmenni með viðbjóðslegar hvatir og enn færri furðuðu sig á því þegar hann var dæmdur fyrir allan hryllinginn.  

    En hvað með Ghislaine Maxwell góðvinkonu hans? Er hún jafn sek? Og hvernig komust þessi skötuhjú og góðvinir upp með voðaverk af þessari stærðargráður án vitorðs og afskipta yfirvalda er líklega eitthvað sem færri skilja. Getur virkilega verið að ekki ein lögregla, dómari eða saksóknari hafi vitað af því sem fór fram á eyju Epstein? Eða eru annarlegar og ógeðfelldar skýringar að baki?

    Í þessum síðari þætti Álhattarins um örlög og ævi Epstein halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram að fjalla um eyju og afbrot Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell . 

    Strákarnir kynna sér nýjustu vendingar og þau gögn sem hafa nýlega komið fram í vitnaleiðslum í málinu gegn Ghislaine Maxwell  og velta því fyrir sér fyrir hvort þau hafi mögulega starfað fyrir leyniþjónustur á vesturlöndum eða hvort þau hafi bæði bara verið djöflar í mansmynd með viðbjóðslegar og ómanneskjulegar hvatir að skemmta sjálfum sér og öðrum djöflum með álíka hvatir? 

     HLEKKIR Á ÍTAREFNI:

    • NEW Jeffrey Epstein Documents UNSEALED?! Who is Named? - News Dump
    • 9 Disturbing Accusations in Final Jeffrey Epstein Document Dump
    • Jim Gaffigan RIPS HOLLYWOOD PEDOPHILES In Thinly-Veiled Epstein Joke at Golden Globes
    • I fell down the Balenciaga rabbit hole.
    • Prince Andrew uses 'inability to sweat' to refute Epstein allegations
    • The SHOCKING story of Ghislaine Maxwell | House of Maxwel
    • Epstein accuser NAMES former Israeli Prime Minister
    • Young Leo DiCaprio with Child Predator Co-Star
    • Video of Bill Clinton getting interrogated over his Jeffrey Epstein ties goes viral
    • Google Founder Larry Page MISSING After Epstein Subpoena
    • Who Is Robert Maxwell?
    • Epstein, Robert Maxwell, and Intelligence Ties
    • Robert Maxwell, the KGB and MI6 | House of Maxwell | BBC Select
    • Was Jeffrey Epstein an Intelligence Asset? (w/Nick Bryant) 
    • Mossad vs CIA - How Do They Compare?

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 51 min
  • P2: Hryðjuverkin 11 september 2001 í Bandaríkjunum voru innanbúðarverk | Hluti 2

    Í þessum hluta 2 af Álhattinum  halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar áfram að ræða kenninguna um að 9/11 hafi verið innanbúðarverk.

    Atburðirnir á Manhattan í New York, að morgni 11.September 2001, eru líklega einhver skelfilegustu voðaverk sem framin hafa verið, amk í seinni tíð.  Hvort sem að fólk trúir því að um hræðileg hryðjuverk eða þaulskipulögð innanbúðarverk hafi verið að ræða.

    Í fyrri þætti Álhattarins um voðaverkin í síðustu viku fjölluðu Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór um hinar meintu árásir, hrun Tvíburaturnanna sjálfra, byggingu 7, týndu flugfélina sem á að hafa flogið inn í Pentagon og tengsl milli meintra höfuðpaura og æðstu ráðamanna Bandaríkjanna. Strákarnir fóru vel ofan í saumana á opinberu skýringuna á atburðunum en fjölluðu einnig um þá gagnrýni sem skýringin hefur fengið, þar á meðal frá Álhöttum um allan heim. Göt voru stungin í saumana og opinbera skýringin rakin upp.

    Í þessum síðari hluta Álhattarins um voðaverkin 11.September verður haldið áfram þar sem frá var horfið en örlítið skipt um gír. Í seinni hlutanum ræða þeir félagarnir nefnilega um það hvað gerðist í framhaldi af voðaverkunum og hvaða afleiðingar þessi hræðilegi viðburður raunar hafði, ekki bara fyrir vesturlönd eða Bandaríkin, heldur heimsbyggðina alla. Sérstaklega þegar kemur að borgaralegum réttindum.

    Þá velta þeir félagar því einnig fyrir sér að ef ekki var um hræðileg hryðjuverk illra innrættra einstaklinga að ræða og bandarísk stjórnvöld skipulögðu og jafnvel framkvæmdu verknaðinn sjálf, hvað gekk þeim þá til?  Hvað gerðu bandarísk yfirvöld og Bandaríkjaher í framhaldið af árásunum og hversvegna?

    Kannski voru það ekki Osama Bin Laden og kumpánar hans sem voru illmenni eftir allt saman heldur George Bush og félagar í bandarísku ríkisstjórnini? Var þetta etv eingöngu til þess að réttlæta síðar frekari árásir á Líbíu og önnur lönd til þess að koma þar fyrir þæginlegum hlýðnum stjórnvöldum sem eru hliðholl Bandaríkjunum og ekkert að vesenast fyrir?

    Hlekkir á ítarefni
    September 11, 2001: Former President George W. Bush addresses the nation | ABC News

    9/11: Press For Truth Heimildamynd

    911 - BBC news states that the WTC#7 collapsed before it did

    911 Mysteries - Demolitions (Full Documentary)

    9/11 - Loose Change 2nd Edition : A MUST WATCH

    ✈️#911Truth Part 16: Bill Cooper’s 9/11 Prediction During June 28, 2001 Radio Broadcast

    911-conspiracy-alex-jones-predicts-911-in-july-2001

    President Obama on Death of Osama bin Laden

    Project for the New American Century

    Thomas Kean: The 9/11 Commission Was Set Up To Fail

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 21 min
  • P1: Hryðjuverkin 11 september 2001 í Bandaríkjunum voru innanbúðarverk | Hluti 1

    Í nýjasta þætti Álhattarins ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór eina umdeildustu samsæriskenningu allra tíma, kenninguna sem hræddi ungan Guðjón svo mikið að hann var aldrei samur og varð kveikjan að ævilangri baráttu hans til að afhjúpa og uppræta lygar, feluleiki og samsæri heimsins.

    Þessi þáttur er hluti 1 af 2 sem fjalla um hryðjuverkaárásina hinn 11 september 2001, iðulega þekkt sem 9/11.

    Það efast líklega fáir um að hryðjuverkaárásirnar að morgni 11 september 2001 hafi verið einhver umfangsmestu voðaverk seinni tíma. 2973 manns auk hryðjuverkamannanna 19 létu  lífið  í árásum sem höfðu mikil áhrif á alþjóðasamfélagið.

    Fljótlega eftir árásirnar var sökinni skellt á Osama Bin Laden og félaga hans í Al-Qaeda og í kjölfarið hófu Bandaríkjamenn hið svokallaða stríð gegnhryðjuverkum þegar þeir réðust inn í Afganistan og steyptu þar talíbanastjórninni af stóli. Tveimur árum seinna réðust Bandaríkin svo inn í Írak.

    Síðan þá hafa Bandaríkin verið nánast samfellt í hernaðaraðgerðum á svæðinu í stríði gegn hryðjuverkum sem virðist engan endi ætla að taka.

    En atburðarásin vakti strax furðu margra og fljótlega fóru álhattar um allan heim að spurja spurninga og efast um opinbera skýringu stjórnvalda . Getur verið að ekki hafi verið um hryðjuverk að ræða og að bandarísk stjórnvöld hafi mögulega sjálf átt þátt í skipulagi eða framkvæmd atburðanna?

    Hvaða ástæðu gætu yfirvöld haft til að skipuleggja slík voðaverk gegn eigin borgurum og hvernig gætu þau komist upp með slíkt? 

    Hlekkir á ítarefni
    18 Views of Plane Impact in South Tower | 9/11 World Trade Center (2001)

    Georg Bush reading "My Pet Goat" - Fahrenheit 9/11

    Founder Of Architects & Engineers for 9/11 Truth Answers Whether Jet Fuel Can Melt Steel Beams

    Larry Silverstein, eini leigjandi tvíburaturnanna talar um að "pull it" þ.e. mögulega fella byggingu 7

    War games 5 í gangi 11.september, hverjar eru líkurnar?

    Æfingar sem líktu eftir flugvélum að fljúga á byggingar

    Hvernig er hægt að undirbúa svona aðgerð leynilega?

    Osama Bin Laden was a CIA Agent!

    911 Firefighters Tell How Bombs Were Going Off

    Osama bin Laden "Confession video"

    Fundur George Bush eldri með hálfbróðir Bin Laden að morgni 11.september

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    2 hr 8 min
  • P1: Jeffrey Epstein var strengjabrúða fyrir hulduöflin sem stjórna heiminum | Hluti 1

    Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá margfrægu samsæriskenningu að bandaríski barnaníðingurinn, nauðgarinn og auðjöfurinn Jeffrey Epstein hafi verið strengjabrúða fyrir hulduöflin sem stjórna heiminum.

    Það efast eflaust enginn um að Jeffrey Epstein hafi verið fantur og fúlmenni og líklega myndi flest fólk lýsa honum sem sturluðum og sóðalegum siðblindingja. 

    En hvað bjó að baki brotum hans og hvernig komumst hann og vinir hans upp með svona svæsin brot síendurtekið og ítrekað? Var Epstein einfaldlega djöfull í mansmynd með viðbjóðslegar og annarlegar hvatir sem hann leyfði sér að svala hömlulaust án þess að blikna eða bjó eitthvað meira að baki? 

    Hvernig stendur á því að millistéttarstrákur og húsvarðarsonur frá Brooklyn auðgaðist svo svakalega og hvernig í veröldinni komst hann í kynni við bókstaflega allt þotuliðið og elítuna? 

    Tónlistarfólk, kvikmyndastjörnur og stjórnmálaelítan fylktist í kringum hann og nánast kepptust við að kíkja í vafasöm teiti til hans og láta mynda sig með honum. Hversvegna? Hvað hafði Epstein að bjóða elítu elítunnar sem þau komust ekki auðveldlega í annarsstaðar og hvernig komst Epstein eiginlega í upphafi í tæri við þetta fólk?  

    Getur verið að Epstein hafi  einungis verið strengjabrúða yfirvalda og starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna og/eða Ísrael? Var Epstein gagngert gerður út til þess að safna vafasömu myndefni af þotuliðinu að gera viðbjóðslega hluti svo hægt væri að beita þau fjárkúgunum með hótunum um afhjúpanir?  

    Hvernig stendur á því að öryggismyndavélar bandarískra yfirvalda eru alltaf að bila? Og hvernig fremur maður sem á að vera í einangrun og á sjálfsmorðsvakt sjálfsmorð? 

    Er opinbera skýringin á dauða Epstein sönn eða var honum einfaldlega komið fyrir kattarnef af illum myrkraöflum þotuliðsins til þess að útiloka að Epstein gæti kjaftað frá og afhjúpað viðbjóð elítunnar? Eða er Epstein ef til vill enn á lífi að njóta lífsins í vitnavernd á vegum stjórnvalda? 

    Málsmetandi aðili þáttarins er leikkonan, leikstjórinn, handritshöfundurinn, TikTok flippkötturinn og annar þáttarstjórnandi margrómaða hlaðvarpsins Boss Bitch Birna Rún Eirkíksdóttir.

    Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.

    Support the show

    UM ÁLHATTINN
    Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.

    Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

    1 hr 54 min

About Álhatturinn

From the publisher's feed

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.


Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni…

More shows like Álhatturinn

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

71 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners