Marta Gunnardóttir var 25 ára einstæð móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit árið 1974.
Þau bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börnin voru tveggja og fjögurra ára þegar þau fóru á heimilið. Stúlkan var beitt kynferðisofbeldi og drengurinn var bundinn og honum hótað með stórum hundi.
Þegar Marta áttaði sig á því í hverju börnin hennar höfðu lent talaði hún við barnaverndaryfirvöld í Mosfellssveit.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson