Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá Eflu: sjálfkeyrandi snjallbíll, tækni, vísindi og samfélagsáhrif. Erna Sif Arnardóttir, nýdoktor við læknadeild HÍ og Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor í næringarfræði við HÍ: Svefn og næring barna og ungmenna. Friðrik Páll Jónsson: Palestínudeilan og 70 ára Ísraelsríki.
Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis: Forvarnir gegn sjálfsvígum - starfshópur nýlega búinn að skila af sér tillögum um úrbætur. Steinunn Rögnvaldsdóttir og Finnborg Salóme Steinþórsdóttir, í félaginu feminísk fjármál: Umsögn um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, ábendingar um bætta kynjaða fjárlagagerð. Málfarsmínúta Edda Olgudóttir: Vísindaspjallið
Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunnar: ársfundur stofnunarinnar og markmið. Eygló Rúnarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands: Frítími unglinga, tómstundanotkun og áhrif þess á athafnir og áhættuhegðun. Málfarsmínúta Vera Illugadóttir: langlíf kónguló og áll.
Berglind Svava J'onsdóttir ljósmóðir: Farið í heimavitjun með ljósmóður, fylgst meðstörfum hennar og rætt við hana um starfið og kjörin. Lesið svar á Vísindavefnum við spurningu um útlit landnámsmanna. Runólfur Ólafsson framkvstj. FÍB: Könnun ASÍ sýnir gríðarlegan mun á iðgjaldi bílatrygginga milli tryggingafélaga. Jafnframt kemur fram að meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 7% frá 2014, þá hækkuðu iðgjöld um 25%. Runólfur segir eftirlit með starfseminni vera hjá fjármálaeftirliti en það hefur ekki gert athugasemdir við þetta. Hafdís Hanna Ægisdóttir: Umhverfispistill dagsins er um votlendi
Stefanía Ragnarsdóttir formaður Landvarðafélagsins: Rætt um starfið og sumarið framundan, en landvarðafélagið hefur skorað á stjórnvöld að fjölga landvörðum og lengja starfstíma þeirra yfir árið. Einar E Sæmundsen landslagsarkitekt: Gamlir garðar hafa menningarsögulegt gildi en aðeins tveir slíkir eru fríðlýstir núna. Nú hefur faghópur gert tillögu um friðlýsingu 10 garða. Ingi Björn Guðnason verkefnastjóri Háskólasetri Vestfjarða: Þar á að bjóða upp á nýja námsleið í sjávarbyggðafræðum.
Vera Knútsdóttir, frmkv. stjóri Félags Sameinuðu þjóðanna: Rætt um starfsemi félagsins og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun Hildur Gestsdóttir, fornleifafræðingur og beinafræðingur: Mannabein, hvaða sögu geyma þau? Edda Olgudóttir: Vísindaspjall.
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir formaður Skíðafélags Ísafjarðar og Ásgerður Þorleifsdóttir viðskiptafræðingur Hótel Ísafirði: Rætt um Fossavatnsgönguna sem nýtur sívaxandi vinsælda. Kristbjörn Róbert Sigurjónsson: Þórhildur lítur inn í verlsunina hjá Bobba og ræðir við hann um galdra gönskuskíðanna. Vera Illugadóttir: Hún fjallar um japanska lukkudýrahagkerfið með sérstarki áherslu á Kumamon
Kristján Vigfússon aðjúnkt í viðskiptafræði HR: Samningatækni. Krisján ræðir hvað einkenni góða og árangursríka samningatækni og hvernig hún geti komið að gagni fyrir hópa og einstaklinga í stjórnmálum, viðskiptum, á vinnumarkaði og í launaviðtölum. Steinþór Steingrímsson, verkefnastjóri í máltækni, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Steinþór segir frá verkefninu og vefsíðunni Risamálheild fyrir íslenskt ritmál sem geymir um 1.300 milljón orð. Stefán Gíslason: Í umhverfispistli dagsins fjallar Stefán um um fataframleiðslu en í dag eru 5 ár liðin frá Rana Plaza slysinu í Bangladesh og þess vegna er þessi vika alþjóðleg Tískubyltingarvika.
Eva Marín Hlynsdóttir, lektor í stjórnmálafræði: hvaða áhrif hefur fjölgun eða fækkun framboða á lýðræði, kosningaþáttöku og samstarf eftir kosningar? Björn B. Jónsson, verkefnisstjóri hjá Skógræktinni: eldsvoðar á víðavangi og skógareldar, reglur og forvarnir. Málfarsmínúta Ívar Halldórsson, Neytendasamtökin: netsvindl
Benedikt Jóhannesson Talnakönnun: Í nýrri skýrslu sem gerð var fyrir Samtök sparifjáreigenda er farið yfir bónusgreiðslur fyrirtækja, hvernig þeim var háttað fyrir hrun og birt könnun á því hvernig kaupauka í íslenskum fyrirtækjum er háttað í dag. Margrét Hugadóttir Landvernd: Á degi jarðar,24 apríl, verður hleypt af stokkunum strandhreinsunarátaki Landverndar og Bláa hersins, Hreinsum Ísland. Friðrik Páll: Í pistli dagsins fjallar Friðrik um deilur Ísraels og Írans sem hafa magnast að undanförnu og nú er stríð ekki lengur talið útilokað.
55 min
About Samfélagið
From the publisher's feed
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.