Mannlegi þátturinn

Samvinna eftir skilnað, orsakir áfallastreitu og póstkort


Listen Later

Á föstudaginn næstkomandi heldur Félagsráðgjafafélag Íslands félagsráðgjafaþing í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og ÍS-FORSA og yfirskrift þingsins er: Vinnuumhverfi, valdefling og tækni. Gyða Hjartardóttir félagsráðgjafi kom til okkar og sagði okkur frá rannsókn um hvernig til hefur tekist með innleiðingu stafræna vettvangsins SES (Samvinna eftir skilnað) og hvert mat foreldra og þeirra reynsla af því. Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og við heyrðum frá Gyðu helstu niðurstöðurnar í þættinum.
Við fengum Andra Steinþór Björnsson prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands í þáttinn í dag. Hann sagði okkur frá nýjum rannsóknum sem snúa að áföllum sem bendir til þess að félagsleg áföll geti valdið áfallastreitueinkennum og jafnvel áfallastreituröskun. Hingað til hefur skilgreining orsaka áfallastreitu verið talsvert þrengri, því geti þessar nýju niðurstöður aukið skilning á áföllum og hjálpað til við meðferð þeirra. Andri fír betur yfir þetta með okkur í dag.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í lok þáttar. Magnús hefur verið á ferðalagi um Spán undanfarinn hálfan mánuð og hann segir meðal annars frá heimsóknum sínum til ýmissa borga, þar á meðal Madrid, Granada, Ronda og Málaga. Hann segir frá því þegar hann heimsótti Granada fyrir fjörutíu og fjórum árum og hvernig brogarbragurinn hefur breyst frá þeim tíma. Kjötkveðjuhátíðin er byrjuð á Spáni og stendur í allt að hálfan mánuð í sumum borgum. Hann segir líka frá upphafi karnivalsins í Málaga.
Tónlist í þættinum í dag
Sýnir/Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir og Steinn Steinarr)
Kókos og engifer / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)
Valentine / Laufey (Laufey Lín Bing Jónsdóttir og Spencer Stewart)
Come And Get Your Love / Redbone (Lolly Vegas)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners