Sigraðu sjálfan þig er heiti á nýútkominni bók sem getur liðsinnt öllum þeim sem hafa hug á að brjótast úr fari vanans, stefna hærra og sækja lengra, hvort heldur er í starfi eða einkalífi. Byggt er á hugmyndafræði markþjálfunar og unnið með fjölmörg verkfæri sem auðvelda lesandanum að ná markmiðum sínum og sigra sjálfan sig. Eða eins og Ingvar Jónsson höfundur bókarinnar segir, þriggja vikna áskorun fyrir venjulegt fólk sem vill meira. Ingvar kom í þáttinn.
Varðskipið Þór sinnir fjölbreyttum verkefnum, eins og t.d. nú fyrir helgina var áhöfnin við störf í Flatey á Breiðafirði en heimamenn höfðu haft samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eynni. Áhöfn Þórs dældi þrjátíu tonnum af ferskvatni yfir í eyna. Við hringdum í Sigurð Steinar Ketilsson skipherra á varðskipinu í dag.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Óttar Proppé fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Lísa Páls spjallaði við hann og fékk að vita hvað hann er að lesa þessa dagana og hvaða bækur hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.