Mannlegi þátturinn

Sigríður Soffía, klifurstöð og leiksýning um virði hluta


Listen Later

Við fengum Sigríði Soffíu Nielsdóttur, dansara, danshöfund, listakonu og nú síðast ljóðskáld í spjall í dag. Þetta er Mannlegi þátturinn og hún gaf út ljóðabók sem heitir Til hamingju með að vera mannleg, því urðum við að skoða það aðeins. Í ljóðunum í bókinni fer Sigríður í gegnum reynsluna af því að greinast með krabbamein og að ganga í gegnum erfiða meðferð við meininu og það í heimsfaraldri. Sem dansari og danshöfundur var hún vön því að skapa og túlka sína list með líkamanum, en í þessu tilfelli þurfti hún að nota orðin. Sigríður Soffía sagði okkur frá því hvernig það gekk í þættinum í dag.
Í gömlu verksmiðjuhúsunum á Hjalteyri við Eyjafjörð hefur ýmis konar starfsemi byggst upp undanfarin ár. Það nýjasta er aðstaða til klifurs sem er opin almenningi. Klifurstöðin kallast 600Klifur og við fengum tvo meðlimi þaðan, þau Magnús Arturo Batista og Kötu Kristjánsdóttur, í þáttinn til að segja okkur betur frá starfseminni.
Verðbólga, vaxtahækkanir og almennar verðhækkanir hafa sett strik í reikninginn hjá flestum í dag. Við forvitnuðumst um sýninguna This Is Not My Money sem verður sýnd í Tjarnarbíói. Í henni eru peningar og fjármál skoðuð og verðmæti og virði hluta. Til dæmis í stað þess að rukka peninga fyrir aðgöngumiðann á sýninguna eru áhorfendur beðnir um að færa leikhópnum einn hlut, gjarnan hlut sem á sér sögu. María Pálsdóttir kom, fyrir hönd hópsins subfrau sem stendur að sýningunni, og sagði okkur meira frá því sem þarna mun fara fram.
Tónlist í þættinum:
Sumartíð / Guðrún Gunnarsdóttir og Latínudeildin (Ingvi Þór Kormáksson)
Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason)
Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners