Nú er liðið eitt ár frá því að Sigurhæðir, þjónusta við þolendur kynbundis ofbeldis á Suðurlandi, hóf starfsemi sína. Frá þessu er sagt í Dagskránni fréttablaði Suðurlands og fyrirsögn greinarinnar er Undraverður árangur í eitt ár. Það var Soroptimistaklúbbur Suðurlands sem hafði frumkvæðið að stofnun Sigurhæða og við heyrðum meira af þessari þjónustu og því sem áunnist hefur á þessu fyrsta starfsári þegar Hildur Jónsdóttir, verkefnisstjóri Sigurhæða, kom í þáttinn í dag.
Ung íslensk kona, Berglind Þrastardóttir, stundar nám í leikstjórn hjá Deutsche Film- und Fernseh-akademie Berlin og er með spennandi verkefni í vinnslu sem fjallar um það sem snertir alla, að eldast. Í myndinni er fylgst með ferðalagi einnar konu í gegnum breytingaskeiðið, fordómana sem hún mætir og hvernig hún finnur sína innri rödd. Við töluðum við Berglindi í dag.
Viktoría Ólafsdóttir tók nýlega við rekstri Hótels Laugarhóls í Bjarnarfirði. Hótel Laugarhóll er núna rekinn í húsnæði þar sem var áður Klúkuskóli og þar var Viktoría í skóla en hún bjó sem barn og unglingur á Svanshóli í sama firði. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ræddi við hana.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MARGRÉT BLÖNDAL