SKÍÐAGANGA - GENGIÐ Á FÓLK

SKÍÐAGANGA - GENGIÐ Á FÓLK

By Einar Ólafsson og Óskar Páll SveinssonSports
Download on the App Store

SKÍÐAGANGA - GENGIÐ Á FÓLK episodes

  • #7 Magnús Eiríksson - 25 Vasagöngur og rúmlega 50 ára keppnisferill!

    Magnús Eiríksson er náttúrubarn og ólst upp í Fljótunum, flutti síðan til Siglufjarðar og byrjaði frekar seint að æfa skíðagönguna.  Magnús hefur keppt 25 sinnum í Vasagöngunni og náð ótrúlegum árangri. Í þessu einlæga viðtali fer hann yfir ferilinn hispurslaust, og það er gaman að hlusta á þennan mikla meistara og reynslubolta sem er enn að keppa.

    1 hr 14 min
  • #5 Sævar Birgisson - Ólympíufari og margafaldur íslandsmeistari

    Ólympíufarinn og margfaldi Íslandsmeistarinn Sævar Birgisson er gestur okkar í dag. Sævar er fæddur í Reykjavík, ólst upp á Sauðárkróki en er ættaður frá Siglufirði úr mikilli skíðagönguætt, þar sem bæði pabbi hans Birgir og afi hans Gunnar voru skæðir á gönguskíðunum. Sævar var gríðarlega góður en átti við þrálát meiðsli að stríða sem háðu honum töluvert og er í raun merkilegt að hann skildi ná eins langt og hann gerði.

    1 hr 19 min
  • #2 Stella Hjaltadóttir - Íþróttahetja frá Ísafirði.

    Stella Hjaltadóttir er íþróttamanneskja af Guðs náð. Hún stundaði allar íþróttir á Ísafirði sem hægt var að stunda og var best í þeim öllum. Sérstaklega skaraði hún framúr í skíðagöngu. Hún reyndar spilaði nokkra landsleiki í fótbolta líka. Stella átti ekki auðvelda æsku. Hún var sjúklega feimin og af þeim sökum urðu þau systkynin mjög náin og góðir vinir. Þau héldu hópinn og peppuðu hvert annað upp. Hún braust svo fram og gersigraði allt og alla í íþróttunum og þolir ekki að tapa. Hér tjáir hún sig á mjög opinskáin hátt um uppeldið, íþróttirnar, feimnina og ýmislegt fleira áhugavert sem hvergi hefur komið fram áður. Stella er sannkölluð íþróttahetja sem á son í skíðagöngulandsliði Íslands og dóttur sem er að gera það gott í blakinu.

    1 hr 9 min
  • #1 Snorri Einarsson - Besti skíðagöngumaður Íslands í áhugaverðu spjalli

    Snorri Einarsson er besti skíðagöngumaður Íslands fyrr og síðar, hann var í Norska skíðagöngulandslðinu og rúllaði upp bestu skíðagöngumönnum heims á sínum yngri árum á meðan hann bjó í hjólhýsi í Lillehammer Hann Keppti í Bandaríkjunum í tvö ár og varð þar skólameistari. Snorri Keppir núna fyrir Íslands hönd og býr á Ísafirði með konu og fjórum litlum börnum. Framundan eru Ólympíuleikar í Kína þar sem hann stefnir á að ná sínum besta árangri til þessa.   

    2 hr 10 min

About SKÍÐAGANGA - GENGIÐ Á FÓLK

From the publisher's feed

Einar Ólafsson og Óskar Páll Sveinsson eru meistarar hver á sínu sviði. Einar á gönguskíðum og Óskar Páll gamalreyndur útvarpsmaður og núna einn mesti nördinn í skíðagönguheiminum á Íslandi. Þeir fá…