Mannlegi þátturinn

Skiljum (við) verkina, NTC og póstkort frá Magnúsi


Listen Later

Það skiptir máli að skilja verkina til að geta skilið við þá. Þetta er orðað svona í lýsingu á námskeiðinu Skiljum (við) verkina hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þar munu þær Edda Björk Pétursdóttir, markþjálfi og jógakennari, og Sóley Stefáns, heilsumarkþjálfi og jógakennari, fræða þáttakendur um verki og taugakerfið og hvert samband heilans er við verkjaboð og hvort það sé jafnvel hægt að draga úr eða jafnvel rjúfa verkjaboðin. Við fengum þær til að útskýra þetta betur fyrir okkur í þættinum.
Við ætlum að fræðast um verkefnið NTC eða Need to Connect en það snýst um að styrkja og tengja ungar mæður, á aldrinum 18-30 ára, og rjúfa einangrun og einmanaleika með listþjálfun. Samstarfsaðilar verkefnisins koma frá Íslandi, Slóveníu, Ítalíu, Búlgaríu, Hollandi, Spáni og Litháen. Í verkefninu verður lögð áhersla á að gefa ungum mæðrum tækifæri og getu til að hafa áhrif og hjálpa öðrum mæðrum í svipuðum aðstæðum. Stefanía Kristinsdóttir, frá Einurð sem heldur utan um verkefnið hér á landi, og Sara María Estersebulvida Glaxorsdóttir móðir sem tekur þátt í námskeiðinu, komu í þáttinn í dag.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkortið snerist að þessu sinni um vatn, eða réttara sagt um skort á vatni. Hann sagði frá reynslu sinni af vatnsskorti og þurrkatíð í Ástralíu þegar hann dvaldi þar fyrir margt löngu. Í mörgum löndum hafa menn brugðið á það ráð að eima vatn úr sjó til að bregðast við breyttu veðurfari og þurrki, en sú aðferð er verulega mengandi og eykur í raun á vandann í stað þess að leysa hann. Eiming á vatni úr sjó hefur fimmfaldast frá aldamótum og margir telja að næstu styrjaldir í miðausturlöndum muni ekki snúast um olíu heldur vatn.
Tónlist í þætti dagsins:
Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson)
Our House / Crosby, Stills, Nash & Young (Graham Nash)
Missisippi / The Cactus Blossoms (Jack Torrey)
Rainbow Connection / Willie Nelson (Willie Nelson, Amy Nelson, David Zettner & Matt Hubbard)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners