Harpa Njálsdóttir hefur kynnt sér og rannsakað stöðu eldri borgara og velferðarkerfið í fjölda ára. Við fórum með henni yfir stöðuna. Meðal þess sem við munum ræða er hvar stendur Ísland í samanburði við Norðurlöndin í velferðarmálum og hver hefur þróunin verið, en Harpa vill meina að Norræna velferðarlíkanið eigi í raun ekki við á Íslandi, heldur sé hér skilyrt velferð sem hún kennir við frjálslyndisstefnu. Auk þess skoðum við málefni eldri borgara og lífeyrisþega sem fá lágar greiðslur úr lífeyrissjóði, þeirra sem minnst fá, en sá hópur er yfir 70% konur.
Hláturjóga er líkams- og hugrækt sem bætir andlega líðan. Í gær var alþjóðlegi hláturdagurinn. Í tilefni af honum var hláturstund við þvottalaugarnar í Laugardal í gær. Við forvitnuðumst um hláturjóga og hvernig þetta fór fram í gær þegar Ásta Valdimarsdóttir, hláturjógakennari kom til okkar í þáttinn.
Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum þennan mánudaginn var Lára Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavík bókmenntaborg Unesco. Hún sagði okkur hvaða bækur eru á náttborðinu og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
Umsjón í dag, Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson