Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir fer að óbreyttu í fyrstu umræðu á þingi á morgun. Skiptar skoðanir eru um frumvarpið og hér í dag ætlum við að beina sjónum okkar að þeim þáttum sem mest hefur verið deilt um, annars vegar að breyttum lágmarksskilyrðum fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga og hins vegar styttingu bótatímabilsins, úr 30 mánuðum í 18.
Viðmælendur:
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA
Bryndís Fiona Ford, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi