Björg Guðrún Gísladóttir sendi nýlega frá sér minningarbókina Skuggasól, en hún er framhald af fyrri bók hennar Hljóðin í nóttinni, þar sem hún rifjaði upp erfiða reynslu úr æsku. Í Skuggasól talar hún um hvernig það var að fóta sig á fullorðinsárunum með svona erfiða reynslu á bakinu. Þar vill hún gefa fólki von sem elst upp við erfiðar aðstæður. Björg kom í þáttinn í dag.
Eyrún María Rúnarsdóttir varði doktorsritgerð sína í síðustu viku þar sem hún fjallar um félagsleg tengsl og stuðning við unglinga af ólíku þjóðerni. Sjónum er beint að því hvernig þeir upplifa stuðning úr nánasta tengslaneti nærumhverfi sínu. Þótt rannsóknir hafi í nokkrum mæli beinst að líðan og velferð innflytjendabarna skortir þekkingu á því hvernig félagsleg staða tengist líðan þeirra og lífsánægju og hvernig félagslegur stuðningur gagnast þessum hópi til að fyrirbyggja vanlíðan og vansæld. Eyrún María sagði frekar frá í þættinum í dag.
Í síðustu viku fór í loftið ný vefsíða með hugleiðsluefni fyrir börn og unglinga, Heillastjarna.is. Vefsíðan er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi (og þó víðar væri leitað) og er markmið hennar að styðja heimili og skóla í að gera hugleiðslu að daglegri iðkun. Rannsóknir hafa sýnt að kvíði og streita fara vaxandi á meðal barna og unglinga og er efni vefsíðunnar ætlað að koma með mótvægi við þann mikla hraða og áreiti sem einkenna oft nútíma lifnaðarhætti. Í tengslum við stofnun vefsíðunnar verður boðið upp á ókeypis hugleiðslujóladagatal í aðdraganda jólanna. Við töluðum við stofnanda Heillastjörnu Stefaníu Ólafsdóttur.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON