Skuggavaldið

Skuggavaldið

By skuggavaldidSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Typical duration

    54 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Skuggavaldið episodes

  • #42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur

    Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum.

    Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    1 hr
  • #41 - Geimverur fyrri þáttur

    Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfsemi í Area 51 í Nevada kynti enn frekar undir grunsemdum. Loks er rifjað upp þegar hópur Íslendinga beið eftir geimverum á Snæfellsjökli árið 1993. Með því að flétta saman stjórnmálasögu og sálfræði er leitað svara við því hvers vegna þessi fyrirbæri eru loks tekin alvarlega eftir áratugi af þöggun og háði. 

    Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] 

    55 min
  • #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar?

    Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar?

    Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    1 hr
  • #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar?

    Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar?

    Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    1 hr
  • #39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti

    Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA?

    Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“.

    Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld.

    Skuggavaldið er í samstarfi við  bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    48 min
  • #38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti

    Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles.

    Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    53 min
  • #37 - Sölumaður óttans: Alex Jones

    Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang.

    Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    45 min
  • #36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða

    Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk.

    Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    45 min
  • #35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina

    Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi helming auðæfa jarðar og fjármagni báðar hliðar í styrjöldum. En hver er raunveruleikinn? Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 1760, skoðum hvernig ættin breiddi úr sér í fjármálalífi Evrópu og kryfjum hina lífseigu mýtu um orrustuna við Waterloo. Í þessum fyrri þætti af tveimur er kafað ofan í hina raunverulegu sögu fjölskyldunnar, en goðsagnirnar og samsæriskenningarnar verða teknar fyrir í þeim næsta.

    Skuggavaldið er í samstarfi við Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst.

    Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

    41 min
  • #34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver

    Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar flugvallarbyggingunni og hvernig stjórnendur hans sneru vörn í sókn og nýttu brjálæðislegar sögusagnirnar sér til framdráttar í stað þess að þagga niður í þeim. Sagt er frá því hvernig byggingaskilti um „felustað eðlufólksins“ og talandi ufsagrýlur urðu svar við þrálátum orðrómi um dómsdagsbyrgi og leynigöng. Einnig er kafað ofan í jarðveginn sem þessar sögur spruttu úr: Allt frá stjarnfræðilegri framúrkeyrslu og biluðu farangurskerfi til bláa hestsins „Blucifer“ og apokalyptískra veggmynda sem sumir þykja boða nýja heimsskipan.

    46 min

About Skuggavaldið

From the publisher's feed

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Best of Skuggavaldið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Skuggavaldið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

122 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

3 Listeners