Snorri Sturluson hefur löngum verið umdeildur maður. Þegar í miðaldaheimildum er honum lýst sem glöggum fræðimanni og snjöllum stjórnmálamanni en einnig sem föðurlandssvikara og strengjabrúðu Noregskonungs. Á morgun heldur Simon Halink, sagnfræðingur og nýdoktor við Háskóla Íslands, fyrirlestur hjá Miðaldastofu Háskóla Íslands um ímynd Snorra Sturlusonar. Simon kom í þáttinn í dag.
Embætti Landlæknis hvetur skóla til að kenna leikskólabörnum geðrækt með markvissum hætti. Það stendur um þessar mundir fyrir námskeiði í námsefni um félags- og tilfinningafærni sem nefnist Vinir Zippýs. Uppselt er á námskeiðin og þegar kominn biðlisti. Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri geðræktar hjá embættinu, segir að þjálfun í félags - og tilfinningafærni sé jafn mikilvæg og íþróttir. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana á Heilsuvaktinni í dag.
Ný dögun - samtök um sorg og sorgarviðbrögð setja fókus í september á aðstandendur þeirra sem látist hafa fyrir eigin hendi. Í kvöld verður flutt erindi sem heitir: „Að missa í sjálfsvígi - tekist á við sorgina“. Það er Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir sem sjálf hefur misst son í sjálfsvígi sem flytur erindið. Hún er jafnframt í stjórn Nýrrar dögunar og hefur stutt aðstandendur í stuðningshópum hjá samtökunum, en slíkur hópur hefur göngu sína 17. sept.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson