Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn hefur eldað mat fyrir landann lengi og framleitt allskonar matvörur undir eigin merki, erlendur blaðamaður sagði að hún væri besti hráfæðiskokkur í heimi, hún hefur verið kennd við Grænan kost og svo Gló. Þá ættu nú flestir að vera búin að átta sig á því hver hún er. Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla í Gló. Við fengum að vita hvar hún er fædd og uppalin, og svo ferðuðumst við með henni í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum að vita hvað hún er að bralla þessa stundina.
Svo var auðvitað matarspjall í dag og í þetta sinn héldum við okkur við mat af gamla skólanum, heita brauðréttir. Þeir eru auðvitað ómissandi hluti af hlaðborði í veislum þessa lands, fermingarveislur, skírnarveislur, útskriftarveislur. Flestir eiga margar minningar tengdar heitum brauðréttum. Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, og heitir brauðréttir í matarspjalli dagsins.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR