Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Sólveig Guðmundsdóttir. Sólveig hlaut grímuverðlaunin árið 2017 fyrir hlutverk sitt sem Sóley ræstitæknir og þessa dagana er hún að leika í leikritinu Svartlyng í Tjarnarbíói. Sólveig sagði okkur frá æsku sinni og uppvexti og hvenær leiklistin fór að láta á sér kræla.
Við slógum á þráðinn til Ingibjargar Sigurðardóttur á Raufarhöfn- og heyrðum af menningar- og hrútadögum sem standa nú yfir þar í bæ.
Og svo enduðum við þáttinn með góðum Afríkutakti. Hátíðin Fest Afríka Reykjavík verður haldin í dag og á morgun. Markmiðið með hátíðinni er að að kynna menningu og listir frá Afríku. Þær Kristín Álfheiður Árnadóttir og Linda Hartmanns komu í þáttinn af því tilefni.
Umsjón Margrét Blöndal og Gunnar Hansson