Mannlegi þátturinn

Sparnaður við úrvinnslu áfalla, Ásgarður handverkstæði og örsögur


Listen Later

Í viðtali í þættinum í síðustu viku var vitnað í niðurstöður greiningar hagfræðings um það að grípa fyrr inn í erfiðar aðstæður barna og að aðstoða börn við að vinna úr áföllum og þann gríðarlega ávinning af því að gera það fyrir þjóðfélagið. Því með því verði hægt að spara gríðarlegan kostnað vegna fjölbreyttra afleiðinga áfallanna síðar meir fyrir heilbrigðis- og menntakerfið og í félagslegri þjónustu. Þetta vakti áhuga okkar og í dag fengum við Hjördísi Evu Þórðardóttur sérfræðing hjá Mennta- og barnamálaráðuneytinu til að koma í þáttinn, því greiningin sem um ræðir var gerð á vegum ráðherra og hún sagði okkur frá því hvernig verið er að vinna í að taka þess hugsun inn í verkefni á vegum ráðuneytisins.
Svo fórum við í heimsókn í Ásgarð handverkstæði í Mosfellsbænum. Ásgarður er verndaður vinnustaður og þar starfa nú 37 fatlaðir einstaklingar ásamt 9 leiðbeinendum. Þar eru framleiddir fallegir munir, gjafavörur og skartgripir úr viði, leðri, bronsi og fleiru. Það eru 30 ár frá því að Ásgarður var stofnaður í ár og Óskar Albertsson hefur verið starfsmaður þar frá upphafi og hann tók á móti okkur á handverkstæðinu í gær og leiddi okkur í gegnum þennan fallega stað þar sem haldið verður jólamarkaður á laugardaginn og á verkstæðinu náðum við einnig tali af Gunnari Jónssyni þar sem hann var að pússa forláta smjörhnífa úr tréi.
Meistaranemar í ritlist við Háskóla Íslands hafa undanfarin ár verið í samstarfi við Rás 1 í desember vegna útgáfu Jólabókar Blekfjelagsins út en Blekfjelagið er nemendafélag Ritlistar. Ritlistarnemar lesa inn örsögur eða örtexta sem eru nákvæmlega 89 orð hver sem þau hafa skrifað og þemað í ár er Órói. Við heyrðum fyrsta hluta þessara örsagna í þættinum. Höfundar sagnanna í dag voru (í þessari röð): Ösp Eldjárn, Bergþóra Björnsdóttir, Elísabet Kristjánsdóttir, Orri Matthías Haraldsson, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Hera Fjord og Daníel Daníelsson.
Tónlist í þættinum í dag:
Á skotbökkum / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson)
Carey / Joni Mitchell (Joni Mitchell)
I've Got You Under My Skin / Frank Sinatra (Cole Porter & Harold Arlen)
Við viljum lifa / Ríó tríó (Helgi Pétursson og Alberto)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners