Verkefnið Spjöllum saman gengur út á að hringt er í allt fólk sem er 85 ára og eldri, býr einsamalt og hefur fengið þjónustu frá Reykjavíkurborg. Í símtalinu er líðan fólksins og aðstæður kannaðar og því boðið að eignast símaspjallsvin. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun eldri borgara á meðan samskipti og nánd er skert vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Bryndís Hreiðarsdóttir, er í forsvari fyrir verkefnið fyrir hönd Reykjavíkurborgar, hún kom í þáttinn og sagði frekar frá því.
Svo heyrðum við um skemmtilegt verkefni í sjónvarpsþættinum Landanum þar sem þau óska eftir efni frá landsmönnum sem þau taka upp á síma eða aðrar myndavélar. Þau óska eftir sögum úr sóttkví eða öðrum aðstæðum sem skapast hafa vegna COVID-19 faraldursins. Þau óska eftir myndskeiðum af skrítnum og skemmtilegum aðstæðum á heimilum eða vinnustöðum. Þau vilja fyrst og fremst fá eitthvað skemmtilegt en ekki veitir af þegar ástandið er eins og það er. Við heyrðum í Þórgunni Oddsdóttur í Landanum í þættinum.
Að lokum huguðum við að heyrn, hvað við getum gert til að minnka heyrnarskaða og hvað er til lausnar. Það er mikilvægt að fólk leiti sér hjálpar sem fyrst, þegar það verður vart við heyrnarskerðingu. Hvað þýðir td. að fá són eða suð í eyrun annað slagið og hvað er hægt að gera? Við töluðum við Kristján Sverrisson forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON