Norsk-íslenski fjárfestirinn Jón Stephenson von Tetzhner íhugar að flytja frá Bandaríkjunum eftir að hafa búið þar í meira en áratug.
Jón er tiltöluglega lítt þekktur á Íslandi þrátt fyrir að vera nokkuð stórtækur í fjárfestingum hér. Hann á meirihluta í símafyrirtækinu Hringdu, fasteignir á Eiðistorgi, hluti í mjólkurvinnslunni Örnu, tæknifyrirtækið Vivaldi sem rekur samnefndan vafra og hlut í bókunarfyrirtækinu Dohop. Jón er auk þess styrktaraðili íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi.
Þetta helst ræðir við Jón um stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum, af hverju hann íhugar að flytja frá landinu og áhyggjur hans af einokun bandarískra stórfyrirtækja á tæknimarkaði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson