Mannlegi þátturinn

Súrkálið, hundrað Esjuferðir og Galdrasafnið tvítugt


Listen Later

Það er hreint ekki óhugsandi að einhverjir hlustendur hafi stigið á stokk um áramótin og strengt þess heit að lifa heilsusamlegra lífi á þessu nýja ári en því sem er nýbúið að kveðja. A.m.k. er nokkuð öruggt að einhverjir eru með oggulítið samviskubit yfir öllum freistingunum sem fallið var fyrir yfir hátíðarnar og við hvetjum þá hina sömu til að leggja við hlustir, því við erum að gera okkur vonir um að við séum búin að finna það sem bjargar málunum einn, tveir og þrír, barbabrelluna einu og sönnu. Dagný Hermannsdóttir afhjúpaði leyndardóma súrkálsins í þætti dagsins. (Vegna tæknilegra örðugleika í viðtalinu í dag viljum við benda á að viðtalið við Dagnýju verður í heild í þættinum á morgun, miðvikudaginn 6. janúar.)
Björn Kristján Arnarson, viðskiptafræðingur og fjallgöngumaður, setti sér áramótaheit á síðasta ári, að ganga fjörutíu og fimm sinnum upp á Esjuna fyrir 45 ára afmælisdaginn sinn. Áramótaheitið vatt upp á sig og það endaði með því að hann gekk hundrað sinnum upp á Esjuna á árinu. Björn kom í þáttinn og sagði okkur meira frá þessu, hvernig áramótaheitið fékk óvænt nýtt hlutverk og hvort hann hafi strengt áramótaheit núna um áramótin.
Galdrasafnið á Hólmavík hóf starfsemi sína árið 2020 og hefur síðan verið mjög vinsæll viðkomustaður ferðafólks. Galdrasafnið á því tuttugu ára afmæli um þessar mundir og Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ákvað af því tilefni að hitta framkvæmdastjórann Önnu Björg Þórarinsdóttur og fékk hana til að segja meðal annars frá því hvað kom til að safnið var sett á laggirnar á sínum tíma.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG MARGRÉT BLÖNDAL?
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners