Mannlegi þátturinn 08.sept 2016
Umsjón Magnús R Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir
Það kannast ekki margir við eldfjall sem heitir Tambora. Enda er það langt í burtu frá okkur. Þetta fjall hafði miklu meiri áhrif á veraldarsöguna en hingað til hefur verið talið. Við skoðum málið í pistli hér á eftir.
Sálarrannsóknarfélag Íslands verður 100 ára á næstu ári og af og til hefur félagið boðið til námskeiða, fyrir þá sem hafa áhuga á hugleiðslum, vilja þróa andlega hæfileika nú eða vera í bænahring.
Við litum í heimsókn og ræddum við forseta félagsins.
Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi heldur Bókasafnsdaginn 2016, fimmtudaginn 8. september Dagsetningin er valin með tengsl við alþjóðlegan dag læsis í huga sem valinn var af UNESCO og haldinn fyrst hátíðlegur 1966.
Yfirskrift Bókasafnsdagsins 2016 er LESTUR ER BESTUR - út fyrir endimörk alheimsins.